Morgunblaðið - 20.11.2005, Qupperneq 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 51
Grand Cherokee, árg. '05, ekinn
13 þús. km. Laredo, 3.7L vél. Inn-
fluttur nýr í maí 2005. Verð 3.350
þús. Sveinn, sími 856 7334.
Flottur Explorer '91 til sölu. Ný-
skoðaður. Nýuppt. skipting og
vél. Sjsk. Cruise control, vel með-
farinn og ryðlítill á 33". Dráttar-
kúla. Geislaspilari. Upplýsingar
í síma 557 7043 og 822 0715.
Toyota Landcruiser 90 disel gx
08/'99, 3000 cc. slagrými. Bein-
skiptur, ek. 129 þús. Dráttarkúla,
CD, heilsársdekk. Verð 1.890 þús.
Sími 820 6263 eða 557 3481.
Til sölu Toyota Rav 4. Nýskráður
í apríl 2003, ek. 56.000, sjálfskipt-
ur, dráttarkrókur, spoiler, sumar-
og vetrardekk. Einn eigandi, vel
með farinn. Ásett verð 2.200.000.
Upplýsingar í síma 694 4414 og
557 1540.
Volvo S 40 05/03, 2 l vél, 136 hö.,
ek. 40 þús., leður, loftkæling,
vindskeið, cd, sjálfsk., cruise
control. Fallegur konubíll. (Verð
nýr kr. 2.760 þús.) Verð 2.030
þús., bein sala. S. 865 6663.
SUBARU FORESTER '98.
Ek. 154 þús. km. Sjálfsk., dráttar-
krókur, upphækkaður um 3 cm.
Reyklaus, einn eigandi. Þjónu-
staður af Subaru-verkstæði. Auka
felgur fylgja. Verð 690 þús. Uppl.
554 5188 og 699 6188.
Stórútsala. Toyota Carina E,
sjálfsk., 2000 vél, árg. '93. Raf-
magn í öllu, fjarst. samlæsingar,
nýr geislaspilari. Skoðaður '06.
Mjög vel með farin, smurb. frá
upphafi og toppviðhald. Verð að-
eins 160 þ. stgr. Upplýsingar í
síma 897 7166.
Nissan Patrol SE + 09/2000. Ek-
inn 93 þús., 3,0, leður, sjálfsk., ný
dekk. Alveg óbreyttur. Einn eig-
andi. Gullfallegur bíll. Skipti á
ódýrari. Upplýsingar í síma
894 5899.
Volvo 740 GLE station, árgerð
1988, til sölu. Sjálfskiptur,
vökvastýri, rafknúnar rúður og
speglar, læst drif, hundagrind.
Bíllinn er á 15 tommu álfelgum,
einnig fylgja nýleg nagladekk og
auka 14 tommu álfelgur og dekk.
Bílnum fylgir einnig nettur NMT
sími með handfrjálsum búnaði.
Uppl. í síma 896 4924
Isuzu Trooper 3.0, nýskr. 09/00,
ek. 105 þús. Verð kr. 1.850.000.
Upphækkaður, góð nagladekk og
nýleg aukadekk á álfelgum. Jeppi
í góðu standi. S. 897 6770.
Smáauglýsingar
Pera vikunnar
Þegar talan 5 er lögð við þriðjung tölu fæst helmingur tölunnar.
Hver er talan?
Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er kl. 12.00 mánudaginn 28. nóv-
ember.
Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopavogur.is
en athugið að þessi pera verður ekki virk þar fyrr en eftir hádegi þann 21.
nóvember.
Þessi þraut birtist á vefnum fyrir kl. 16.00 þann sama dag ásamt lausn
síðustu þrautar og nöfnum vinningshafanna.
Frekari upplýsingar eru á vef skólans.
Stærðfræðiþraut Digranes-
skóla og Morgunblaðsins
RANNSÓKNASTOFNUN í hjúkr-
unarfræði tók við höfðinglegri gjöf
frá Ingibjörgu R. Magnúsdóttur 1.
nóvember sl. þegar dagur hjúkr-
unarfræðideildar Háskóla Íslands
var haldinn hátíðlegur með mál-
þingi í Norræna húsinu. Ingibjörg
færði stofnuninni 500.000 kr. ávís-
un með orðunum „Megi þessi stofn-
un vaxa og blómgast og vinna að
mörgum góðum verkefnum, landi
og þjóð til blessunar.“ Ingibjörg
gegndi m.a. stöðu námsbraut-
arstjóra við námsbraut í hjúkr-
unarfræði við Háskóla Íslands frá
1975 og stöðu skrifstofustjóra í
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neyti.
Færði hjúkrunar-
fræðideild gjöf
Ingibjörg R. Magnúsdóttir við afhendinguna í Norræna húsinu.
MARGIR kvarta undan því að asinn
og amstrið í daglegu lífi geri fólki
erfitt fyrir að undirbúa sig fyrir jól-
in á þann hátt sem það gjarnan vill,
að taka á móti friðarboðskap og lát-
lausri gleði jólanna í kyrrð og ró.
Þess vegna er boðið upp á tvenna
kyrrðardaga í Skálholti núna á að-
ventunni, þar sem áherslan verður
einmitt á textum aðventunnar og
stefjum í bókmenntum tengdum jól-
um og fólki gefst kostur á að hvílast
andlega sem líkamlega og skapa
með sér innri sem ytri kyrrð, segir í
fréttatilkynningu.
Kyrrðardagar á aðventu hafa
alltaf verið mjög vel sóttir enda
mæta þeir þörfum þeirra mörgu
sem vilja njóta kjarna jólanna og
undirbúa sig fyrir það við upphaf
aðventu 24.–27. nóvember.
Þessir kyrrðardagar marka upp-
haf aðventunnar, sem er undirbún-
ingstími jólanna. Séra Krisján Val-
ur Ingólfsson lektor og dr. Kristinn
Ólason annast leiðsögnina og fjalla
um texta og sálma aðventunnar
sem leiða fram til jólahátíðarinnar.
Dagarnir hefjast á fimmtudags-
kvöld og þeim lýkur síðdegis á
sunnudag. Þeir eru því degi lengur
en almennt gerist og er það að
beiðni þátttakenda síðasta árs og
þannig gefst meiri tími til að njóta
kyrrðar og hvíldar í nánd jóla, 24.
desember.
Hjónin dr. Hjalti Hugason pró-
fessor og Ragnheiður Sverrisdóttir
djákni annast leiðsögnina og fjalla
um aðventuna og undirbúning jóla
m.a. út frá Aðventu, bók Gunnars
Gunnarssonar. Væri æskilegt að
þátttakendur hefðu lesið bókina
eða tækju hana með til aflestrar.
Þetta efni var tekið fyrir á aðvent-
unni í fyrra og tókst svo vel að sjálf-
sagt þótti að endurtaka dagskrána
svo að fleiri gætu notið hennar í
umhverfi kyrrðardaga.
Á dagskránni eru fræðslustund-
ir, hugleiðingar, útivist og boðið er
upp á trúnaðarviðtöl. Boðið er upp
á reglubundið helgihald í Skálholts-
dómkirkju og góðan aðbúnað í
Skálholtsskóla. Nánari upplýsingar
og skráning er í Skálholtsskóla sími
486 8870 og netfang skoli@skal-
holt.is.
Kyrrðardagar í Skálholti
til undirbúnings jólum
HINN 22. október síðastliðinn fengu börn tækifæri til að
styðja gott málefni í verslun Yggdrasils, Skólavörðustíg
16. Þá var öllum börnum boðið að koma og mála myndir
með náttúrulegum litum undir leiðsögn Helgu Ósk-
arsdóttur frá Waldorf-leikskólanum Sólstöfum. Europris
og Litir og föndur gáfu rammana. Þátttaka var góð og
söfnuðust margar myndir, hver annarri fallegri, segir í
fréttatilkynningu. Myndirnar verða seldar á uppboði til
styrktar Mæðrastyrksnefnd laugardaginn 27. nóvember
kl. 17 í verslun Yggdrasils og verður Örn Árnason leikari
uppboðshaldari. Nefndin fór þess á leit við nokkrar
verslanir í miðbænum að þær tækju að sér að sýna
myndirnar í búðargluggum sínum fram að uppboðinu.
Eftirtaldar verslanir verða með myndirnar til sýnis
fram að uppboði: Sævar Karl, tískuverslunin Joss, Kós
leðurvörur, Yggdrasill, GK Reykjavík, Sipa, Kaffi
Hljómalind, Leikbær, Jurtaapótek, Húfur sem hlæja,
Rauði kross Íslands, Hattabúð Reykjavíkur, barnafata-
verslunin Du pareil au meme, Villtar og vandlátar,
Dressmann, Ecco-skóbúðin og Englabörnin.
Litlir listamenn leggja
Mæðrastyrksnefnd lið
Morgunblaðið/Jim Smart
JÓLAKORT Soroptim-
istaklúbbs Grafarvogs eru
komin í sölu.
Myndin Jól eftir Brynhildi
Guðmundsdóttur prýðir kort-
in að þessu sinni.
Hægt er að fá kortin bæði
með og án texta. Verð kort-
anna með umslagi er 100 kr.
stk. og eru þau seld tíu saman
í pakka. Allur ágóði af sölu
kortanna rennur til líkn-
armála. Upplýsingar gefa for-
maður klúbbsins, Ingibjörg
Ragna Óladóttir og Sigrún
Árnadóttir.
Jólakort
Soroptimista í
Grafarvogi
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð-
isins (SHS) hefur gefið út upplýs-
ingarit þar sem fjallað er um elds-
voða og vatnstjón og viðbrögð við
slíkum áföllum. Ritið nefnist Eftir
áfallið og höfundur þess er Garðar
H. Guðjónsson kynningarráðgjafi. Í
ritinu er fjallað um eðli skemmda
sem verða af völdum elds, hita,
reyks og vatns. Einnig er greint frá
hlutverki SHS og lögreglu við slíka
atburði. Í ritinu má líka finna sér-
stakar leiðbeiningar fyrir þá sem
eru ekki tryggðir.
Áhersla er lögð á hið andlega
áfall sem fólk getur orðið fyrir og
viðbrögð við því og svo eru gefnar
upplýsingar um fjölda aðila sem
geta veitt frekari upplýsingar og
aðstoð. Ritið er skreytt myndum
eftir Kristínu Rögnu Gunnars-
dóttur og textinn var unninn í sam-
ráði við starfsmenn SHS, trygging-
arfélögin, lögregluna, Rauða
krossinn og fleiri.
Rit um við-
brögð við áföll-
um eftir tjón
STOFNFUNDUR Ungra vinstri
grænna á Akureyri verður haldinn
miðvikudagskvöldið 23. nóvember
2005 klukkan 20–22, í húsi VG
Hafnarstræti 98. Rætt verður um
skipulag starfs UVG á Akureyri í
vetur. Sérstakur gestur verður
Þuríður Backman, þingmaður VG.
Heitt verður á könnunni og eru all-
ir hjartanlega velkomnir.
Stofnfundur UVG
á Akureyri