Morgunblaðið - 20.11.2005, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 53
DAGBÓK
www.kontakt.is
Suðurlandsbraut 4, 7. hæð. • Sími: 414 1200 • www.kontakt.is • Netfang: kontakt@kontakt.is
Sérfræðingar þínir í fyrirtækjaviðskiptum.
H
O
R
N
/H
a
u
k
u
r
/
2
0
5
2
Leiguíbúð
Kvenkynsrithöfundur á miðjum aldri óskar eftir íbúð til leigu í
Reykjavík. Verður að vera með sérbaðherbergi og eldunaraðstöðu.
Draumasvæðið er 101 eða 107 í göngufæri við Ægissíðuna og
Vesturbæjarsundlaugina.
Greiðslugeta á mánuði 45 þúsund krónur. Upplýsingar í síma 893 8155.
Nemendum í doktorsnámi við íslenskaháskóla hefur fjölgað mjög á liðnumáratug. Árið 1995 voru sjö nemendurskráðir í doktorsnámi, en nú eru yfir
160 einstaklingar skráðir í doktorsnám við ís-
lenska háskóla. Áður hafa flestir Íslendingar sótt
rannsóknanám erlendis og gjörbreytir aukið
framboð íslenskra háskóla möguleikum íslenskra
ungmenna á heimavelli, að sögn Hans Kristjáns
Guðmundssonar, forstöðumanns Rannsóknamið-
stöðvar Íslands.
RANNÍS gengst fyrir fyrsta haustþingi sínu
föstudaginn 25. nóvember nk. undir yfirskriftinni
„Doktorsmenntun á Íslandi – fyrirheit og fall-
gryfjur“. Því er einkum ætlað að stuðla að um-
ræðu um markmið og forsendur doktorsnáms á
Íslandi. Leitað verður svara við ýmsum spurn-
ingum á borð við þær hvort hið fámenna íslenska
háskólasamfélag geti axlað hlutverk sitt og
menntað íslenska vísindamenn til framtíðar og
hvort heimamenntaðir frumkvöðlar íslenskra vís-
inda, tækni og nýsköpunar öðlist þá hæfni, sem
þarf til þess að vera í fararbroddi á mikilvægum
sviðum. Einnig ætla menn að velta því fyrir sér
hvernig tryggja megi að íslensk doktorsmenntun
verði ekki annars flokks í alþjóðlegum saman-
burði, hver sé þörf þjóðfélagsins og atvinnulífsins
fyrir doktorsmenntaða einstaklinga, hvers við
getum vænst af fólki með doktorsgráður og hver
sé hagur ríkisins af fjárfestingu í slíkri menntun.
Um 30–40 Íslendingar hafa árlega hlotið dokt-
orsgráðu á ári hverju, þar af fjórðungur eða færri
hérlendis. Aðrir hafa útskrifast úr háskólum víðs
vegar um heim allan, þar af um 40% í Bandaríkj-
unum og um 20% á Norðurlöndunum. „Íslenskt
vísindasamfélag hefur vaxið mjög á undanförnum
árum. Styrkur og fjölbreytni þess eru gjarnan
rakin til þess að íslenskir vísinda- og tæknimenn
hafa verið menntaðir við bestu háskóla heims,“
segir Hans Kristján. „Þessi styrkur er nú for-
senda fyrir framboði háskólanna á doktors-
menntun. Mikið er í húfi að slík tækifæri til
heimamenntunar verði ekki til þess að veikja hið
einstæða alþjóðlega vísindasamfélag á Íslandi
heldur skapi enn meiri fjölbreytni og virðisauka.
Meðal frummælenda á þinginu verða ýmsir
fulltrúar háskóla og atvinnulífs. Íslenskir háskóla-
rektorar munu svo taka þátt í pallborðsumræðum
undir stjórn Elínar Hirst, fréttamanns. Haust-
þingið verður haldið á Hótel Loftleiðum og er öll-
um opið. Skráning fer fram hjá RANNÍS. Með
þinginu heldur RANNÍS líka upp á hið evrópska
ár vísindamannsins með uppskeruhátíð fyrir
verkefnið Vísindin snerta þig og Evrópusáttmáli
vísindamanna verður kynntur. Þingforseti verður
Hjálmar Árnason, alþingismaður.
Haustþing | Aukið námsframboð gjörbreytir möguleikum til framhaldsnáms
Dr. Hans Kristján
Guðmundsson er fædd-
ur árið 1946. Hann lauk
doktorsprófi í eðl-
isverkfræði frá
Tækniháskólanum í
Stokkhólmi árið 1982.
Hans Kristján hefur
gegnt starfi forstöðu-
manns RANNÍS frá því
árið 2003, en var áður
rektor NorFA, norrænn-
ar stofnunar um vísindamenntun. Hans Krist-
ján er kvæntur Sólveigu Georgsdóttur og eiga
þau soninn Gunnar Ólaf.
Íslenskum doktorsnemum fjölgar
70 ÁRA afmæli. Á morgun, 21.nóvember, er sjötugur Sig-
urður E. Kristjánsson skrifstofu-
maður, Trönuhjalla 1, Kópavogi. Eig-
inkona hans er Hólmfríður Sigmunds.
Sigurður ver deginum í faðmi fjöl-
skyldunnar.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Okkar árlega jóla-
hlaðborð verður 2. des. kl. 18. Hátíð-
arstemmning, hljóðfæraleikur, söngur
og góðir gestir. Skráning á Afla-
granda og í síma 411 2700.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur í kvöld kl. 20. Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Hæðargarður 31 | Skráning á Vín-
arhljómleikana 6. jan. 2006 stendur
yfir. Markaður mánudag kl. 13–15.
Handverkstofa Dalbrautar 21–27 opin
öllum virka daga kl. 8–16. Halldór í
Hollywood fimmtudag kl. 20. Alltaf
eitthvað um að vera alla virka daga.
Kíkið við og lítið á dagskrána. Sími
588 9533.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Skráningu á Vínarhljóm-
leika 6. nóv. að ljúka. Jólamarkaður
Jennýjar mánudag. Tungubrjótar
koma í heimsókn á þriðjudag kl. 15.
Halldór í Hollywood fimmtudag kl. 20.
Kíkið við í kaffi og lítið í blöðin. Sími
568 3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun
mánudag er ganga í Egilshöll kl. 10.
Vesturgata 7 | Jólafagnaður föstu-
daginn 2. des. Veislustjóri séra Hjálm-
ar Jónsson. Jólahlaðborð. Herdís
Þorvaldsdóttir leikkona les jólasögu.
Kór félagsstarfs aldraðra syngur und-
ir stjórn Kristíne Tumi og Óskar spila
á saxafón. Ungverskir dansar frá
Kramhúsinu. Hljómsveit Hjördísar
Geirs. Skráning í síma 535 2740.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Æskulýðsfélags-
fundur kl. 20.
Árbæjarkirkja | Fundur æskulýðs-
félags Árbæjarsafnaðar kl. 17 í safn-
aðarheimilinu.
Áskirkja | Kökubasar safnaðarfélags-
ins í Áskirkju verður eftir guðsþjón-
ustu kl. 15.
Grafarvogskirkja | Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum alla
virka daga frá kl. 9–17 í síma
587 9070.
Háteigskirkja | Eldri borgarar í Há-
teigskirkju. Aðventuferð á Þingvöll
þriðjudaginn 29. nóvember nk. Farið
verður frá Setrinu klukkan 13.30.
Haldið beint í Þingvallakirkju, þar sem
séra Kristján Valur tekur á móti okk-
ur. Kaffi í Valhöll. Verð 1.500 kr. Þátt-
taka tilkynnist í síma 511 5405 fyrir
mánudaginn 28. nóv.
Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir 9.–
10. bekk er með fundi kl. 20–21.30.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
SÝNING á verkum Sigtryggs
Bjarna Baldvinssonar hefur verið
opnuð í Gallerí Turpentine, Ingólfs-
stræti 5. Sýningin ber yfirskriftina:
Bjart vatn, svart vatn I.
„Ég hef lengi haft þá tilfinningu
að vatnsflötur og málverk séu svo
náskyld fyrirbrigði að undrun sæti.
Sama kennd gagntekur mig þeg-
ar ég horfi inn í góð málverk og of-
an í djúpan hyl,“ segir listamað-
urinn.
„Ég trúi því að málverkið sé
náttúrufyrirbrigði, veit þó betur.
Trúi að vatnið sé að segja mér eitt-
hvað mikilvægt en veit þó betur.
Það er sitt hvað að trúa og vita.“
Opið frá þriðjudögum til föstu-
daga 12 til 18 og laugardaga 11 til
16. Sýningu lýkur 6. desember.
Sigtryggur
Bjarni í
TurpentineÚT er kominn jóladiskur með Mót-
ettukór Hallgrímskirkju, Ísak Rík-
harðssyni drengjasópran, Sigurði
Flosasyni saxófónleikara og Birni
Steinari Sólbergssyni orgelleikara.
Á diskinum er að finna íslensk jóla-
lög borin fram með frískum blæ og
nýju bragði.
Rödd Ísaks Ríkharðssonar
drengjasóprans bræddi hjörtu
áheyrenda á jólatónleikum kórsins
fyrir ári og hljómar hér á sama tíma
og Sigurður blæs inn jólin á nýstár-
legan og magnaðan hátt. Hann efnir
til spennandi tónaleiks með Mót-
ettukórnum þar sem jólalögin okkar
taka á sig nýjar og óvæntar myndir.
Söngur kórsins er orðinn fastur lið-
ur í helgihaldi jólanna undir öruggri
stjórn Harðar Áskelssonar, kantors
Hallgrímskirkju. Hið glæsilega
Klaisorgel Hallgrímskirkju leggur
einnig sitt til málanna og eykur há-
tíðarbrag tónlistarinnar á diskinum
sem hefur hlotið nafnið Jólagjöfin.
Mörg af ástsælustu jólalögum og
-sálmum þjóðarinnar hljóma þar en
einnig ný lög sem ekki hafa komið út
áður. Má þar nefna titillagið, Jóla-
gjöfina, eftir Hörð Áskelsson við
texta Sverris Pálssonar sem notið
hefur mikilla vinsælda frá frum-
flutningi þess. Meðal kunnra jóla-
laga á diskinum eru Nóttin var sú
ágæt ein eftir Sigvalda Kaldalóns og
Jól eftir Jórunni Viðar. Meðal ann-
arra höfunda, sem eiga lög á disk-
inum, eru Jón Ásgeirsson, Bára
Grímsdóttir, Atli Heimir Sveinsson
og Áskell Jónsson. Þá eru flutt þrjú
erlend lög, Nú kemur heimsins
hjálparráð, Hin fegursta rósin er
fundin og Það aldin út er sprungið.
Hlóðritun, klipping og hljóð-
blöndun er í höndum Sveins Kjart-
anssonar og tónmeistari er Sverrir
Guðjónsson. Í textahefti er að finna
söngtexta og skrif um tónlistina
bæði á íslensku og ensku. Dreifing-
araðili er 12 tónar og er diskurinn til
sölu í helstu hljómplötuverslunum
og verslun Hallgrímskirkju. Útgáfu-
tónleikar verða í Hallgrímskirkju
þriðjudaginn 29. nóvember kl. 20 og
laugardaginn 3. desember kl. 17.
Mótettukórinn
gefur út Jólagjöf