Morgunblaðið - 20.11.2005, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2005 57
MENNING
EIVÖR Pálsdóttir semur nýtt jólalag fyrir Jólasöngva, árlega jóla-
tónleika Kórs Langholtskirkju dagana fyrir jól. Jólasöngvarnir
hafa notið mikilla vinsælda í tæp þrjátíu ár, en þetta er í fyrsta
skipti sem Eivör Pálsdóttir syngur á Jólasöngvum. Hana er óþarfi
að kynna, svo rækilega sem hún hefur sungið sig inn í hug og
hjörtu, ekki aðeins Íslendinga, heldur vítt um heim. Hún var ein-
söngvari með Stórsveit danska útvarpsins nýlega á tónleikum í
nýja óperuhúsinu í Kaupmannahöfn og fékk frábæra dóma. Séra
Kristján Valur Ingólfsson hefur staðfært texta jólalagsins á ís-
lensku en Árni Harðarson útsetti það.
Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju verða haldnir í Langholts-
kirkju föstudaginn 16. desember kl. 23, laugardaginn 17. desember
kl. 20 og 23 og sunnudaginn 18. desember kl. 20. Auk Kórs Lang-
holtskirkju syngur Gradualekór Langholtskirkju á tónleikunum og
fjöldi hljóðfæraleikara leikur með. Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Einsöngvarar í ár verða auk Eivarar, Garðar Thór Cortes og
Ólöf Kolbrún Harðardóttir.
Garðar Thór Cortes hefur oft komið fram sem einsöngvari með
kórum Langholtskirkju. Hann var um tíma félagi í Kammerkór
Langholtskirkju en starfar nú sjálfstætt sem einsöngvari. Hann
söng nýlega hlutverk hertogans í Rigoletto í Nordfjord óperunni í
Noregi og fékk frábæra dóma og nýverið kom út fyrsti geisla-
diskur hans.
Ólöf Kolbrún hefur tengst Kór Langholtskirkju frá unglings-
aldri og verið einsöngvari á Jólasöngvum.
Sæti í Langholtskirkju eru nú númeruð þannig að tónleikagestir
þurfa ekki lengur að mæta klukkutíma fyrir tónleika til að tryggja
sér sín uppáhaldssæti. Miðasala fer fram á midi.is.
Eivör semur jólalag fyrir
Jólasöngva Langholtskirkju
Morgunblaðið/Þorkell
Eivör Pálsdóttir semur jólalag fyrir Jólasöngva Kórs
Langholtskirkju og syngur jafnframt í fyrsta sinn á
þessum árlegu jólatónleikum, sem nú verða í 27. sinn.
ÞAÐ ER alltaf mikið að gerast
í Leikfélagi Mosfellssveitar. Nú
setur félagið upp einþáttunga-
dagskrá í fyrsta sinn, fjóra
þætti sem eru skrifaðir og þeim
leikstýrt af félagsfólki. Þætt-
irnir eru áhugaverðir að efni og
hver öðrum ólíkur en tengdir
skemmtilega saman með því
sem virðist vera spuni tveggja
sviðsmanna.
Þáttur Péturs R. Péturs-
sonar, Húð og hitt, var áður
sýndur á hátíðinni Margt smátt
í Borgarleikhúsinu. Þá var hon-
um leikstýrt af Herdísi Þor-
geirsdóttur en nú af Ólöfu A.
Þórðardóttur. Það er erfitt að
skilja af hverju Ólöf er skrifuð
fyrir þættinum nú þar sem upp-
færslan virðist í engu frábrugð-
in hinni fyrri. Fjórum mann-
eskjum er teflt saman á
biðstofu „Húð og kyn“ og hugs-
anir þeirra leiknar af bandi. Ég
skil ekki nú fremur en fyrr
hvers vegna hið dauða form
upptökunnar er notað þegar
svo auðvelt er að lífga þáttinn
við með því láta persónurnar
tala hugsanir sínar. Það er allt
hægt í leikhúsi.
Lárus H. Jónsson átti næstu
tvo þætti. Það verður að stoppa
þennan mann er fundur á Al-
þingi með þekktum og óþekkt-
um þingmönnum. Margt er
fyndið og beitt í þættinum og
lætur leikstjórinn Ólafur hann
gerast í sandkassa þar sem per-
sónurnar eru í hvítum skyrtum
og stuttbuxum í flokkslitunum.
Sviðsetningin býður upp á
miklu meiri leik en raun var á.
Persónurnar voru helst til kyrr-
ar á sama stað og horfðu of
mikið niður á leiki sína til þess
að húmorinn skilaði sér. Jóel
Sæmundsson var lifandi og
barnslegur í leik sínum og Stef-
án Bjarnarson var kómískur í
eftirhermuleik sínum en því
miður kvað ekki að öðrum leik-
urum.
Seinni þáttur Lárusar, Einn
dagur í einu, var harmrænn og
fallegur í senn, leikinn prýði-
lega af Stefáni Bjarnarsyni,
Maríu Guðmundsdóttur og
Hjálmari Bjarnasyni. Þátturinn
fjallar um mann sem er bund-
inn við hjólastól, hann býr einn
en fær vin sinn og móður sína í
heimsókn til að þrífa margra
daga skít og drífa hann í bað.
Þau reyna einnig að fá hann til
að líta björtum augum á lífið en
hann þjáist af depurð. Sviðsetn-
ing Hörpu Svavarsdóttur var of
bundin af stórum borðum og
stólum en í henni voru athygl-
isverðar tilraunir til að nýta
rýmið til fulls svo hver og ein
persónanna þriggja fengi notið
sín.
Síðasti þátturinn var eftir
Pétur R. Pétursson; einleik-
urinn Það er frítt að tala í GSM
hjá Guði. Margt var fallegt í
þættinum, eintalið skýrt og
hnitmiðað, fyndið og harmrænt
á víxl. Jóel Sæmundsson lék
ákaflega vel; mann sem er dá-
inn, hann hefur lent í slysi og
veltir fyrir sér atburðunum, því
sem var og því sem verður.
Ólafur leikstjóri á hrós skilið
fyrir sviðsetninguna sem öll var
stílhrein, öguð og færð eins ná-
lægt áhorfendum og mögulegt
var. Einnig var tónlistin falleg
og viðeigandi sem og lýsingin.
Harpa Svavarsdóttir og Pét-
ur Rúnar Pétursson léku sviðs-
mennina tvo sem spjalla saman
og gera fínt milli þátta en sam-
leikur þeirra var góður og ein-
feldnin sannfærandi. Sýning
Mosfellinga var forvitnileg og
ánægjuleg og áreiðanlega
hvatning til meiri frumsmíða.
Mosfellingar
sækja á ný mið
LEIKLIST
Leikfélag Mosfellssveitar
Höfundar: Lárus H. Jónsson og Pétur
R. Pétursson. Leikstjórar: Harpa
Svavarsdóttir, Ólafur Haraldsson og
Ólöf A. Þórðardóttir. Tónlist: Ólafur
Haraldsson. Lýsing: Jökull Jóhanns-
son.
Bæjarleikhúsið 13. nóvember 2005
4 einþáttungar
Hrund Ólafsdóttir
CARITAS á Íslandi efnir til Styrkt-
artónleika í þágu fatlaðra barna, í
Kristskirkju við Landakot í dag kl.
16. Þetta verða 12. styrktar-
tónleikarnir sem Caritas efnir til, til
styrktar góðu málefni. Að þessu
sinni mun allur ágóði renna til
Greiningar- og ráðgjafarstöðvar rík-
isins. Dagskráin verður í flutningi
valinkunnra tónlistarmanna og gefa
allir gefa vinnu sína. Forsala að-
göngumiða fer fram í Pennanum Ey-
mundsson í Austurstræti og Smára-
lind og einnig á Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins að Digranes-
vegi 5 í Kópavogi.
Miðaverð 2.500 kr.
Flytjendur eru Jóhann Friðgeir
Valdimarsson, tenór, Hulda Björk
Garðarsdóttir, sópran, Bergþór Páls-
son, baritón, Sigrún Eðvaldsdóttir,
fiðla, Gunnar Kvaran, selló, Einar
Jóhannesson, klarinett, Elísabet
Waage, harpa, Hrafnhildur Val-
garðsdóttir, orgel, Úlrik Ólason, org-
el, Karlakórinn Fóstbræður, stjórn-
andi Árni Harðarson, Vox Feminae,
stjórnandi Margrét J. Pálmadóttir.
Á efniskrá eru verk eftir Atla
Heimi Sveinsson, Árna Thor-
steinsson, Bach, Bizet, Bruckner,
Händel, Kuran, Mozart, Palestrina,
Saint-Säens, Schubert, Sigvalda
Kaldalóns og Verdi.
Styrktartónleikar Caritas
Morgunblaðið/Ásdís
ÞESSA dagana standa yfir mála-
ferli á Ítalíu, þar sem forsvarsmenn
og listfræðingar J. Paul Getty lista-
safnsins í Los Angeles, hafa verið
leiddir fyrir rétt ákærðir um að
hafa tekið við stolnum listmunum.
Réttarhöldin þykja endurspegla
vanda sem listheimurinn allur
stendur frammi fyrir, hver beri
ábyrgð á verslun með illa fengna
muni og þjóðargersemar. Getty-
safnið, sem er eitt það ríkasta í
heiminum, þurfti í síðustu viku að
skila þremur listaverkum aftur til
Ítalíu, en ítalski menntamálaráð-
herrann sagði við það tækifæri, að
hann myndi ekki linna látum fyrr
en Gettysafnið skilaði öðrum 39
verkum sem safnið hefur eignast í
viðskiptum við vafasama lista-
verkabraskara. Meðal verkanna
sem um ræðir er verðmæt, forn-
grísk stytta af Afródítu, aðrar
forminjar og listmunir.
Getty fyrir
rétti á Ítalíu