Morgunblaðið - 27.11.2005, Side 20
20 SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Dyr kirkjunnar eru opn-ar og hún virðistmannlaus. Augljóst erað enginn býst viðvandræðum. Þetta er
hlýr og bjartur sunnudagsmorg-
unn og messunni er lokið. Kirkju-
gestir höfðu kveikt á kertunum
sínum og eru farnir og nokkrir
menn vinna á nálægum akri. Í
næsta húsi tekur ábóti lítils
klausturs á móti gestum. Þetta
virðist venjulegur morgunn á
venjulegum og friðsamlegum stað í
Evrópu.
Að nokkru leyti er það rétt. Tíu
árum eftir að stríðinu í Bosníu og
Hersegóvínu lauk er þó þessi litla
kirkja í Zitomislic tákn um allt það
sem hefur – og hefur ekki – áunn-
ist í landinu. Það er auðvelt að
endurreisa kirkju. En ekki að end-
urreisa land.
Hún tilheyrir serbnesku rétt-
trúnaðarkirkjunni og var reist árið
1566. Þegar Bosníustríðið blossaði
upp árið 1992 laut þetta svæði
stjórn Króata og múslíma (sem
nefnast nú Bosníakar). Kirkjan var
sprengd í loft upp. Þannig voru
Serbum send skilaboð um að snúa
ekki aftur. Það hafa þeir þó gert.
Kirkjan var endurreist og vígð í
maí.
Nær óþekkjanlegt land
Það sama hefur gerst víða um
Bosníu. Kaþólskar kirkjur hafa
verið endurreistar á svæðum þar
sem Króatar búa og moskur, sem
sprengdar voru í loft upp á yf-
irráðasvæðum Serba, hafa risið
upp úr rústunum. Í Mostar,
nokkra kílómetra frá Zitomislic,
var víðþekkt Ottómanabrú, líka frá
árinu 1566, endurreist og opnuð í
fyrra eftir að hafa eyðilagst í átök-
um Króata og Bosníaka.
„Við þurfum að sýna að við vilj-
um búa hérna og fólk viðurkennir
það,“ sagði Abbot Danilo, 29 ára
Bosníumaður, um þá staðreynd að
Serbar sæta ekki lengur beinum
árásum þegar þeir snúa aftur til
heimkynna sinna.
Á mánudaginn var, 21. nóvem-
ber, voru tíu ár liðin frá lokum
stríðsins sem geisaði í Bosníu frá
1992 til 1995. Serbar, Króatar og
Bosníakar samþykktu á fundi í
bandarískri herstöð í Dayton í
Ohio að binda enda á átökin og
reyna að lifa saman. Áhöld eru um
hvort þeir hafi trúað því að friður
myndi haldast.
Landið sem var lagt nær al-
gjörlega í rúst er nú óþekkjanlegt.
Öryggi landsins hefur verið
tryggt, gert hefur verið við vegi og
veitur, hús hafa verið endurreist
og hundruð þúsunda flóttamanna
hafa snúið aftur til heimkynna
sinna.
Strax eftir friðarsamkomulagið í
Dayton náðu um 60.000 friðar-
gæsluliðar undir stjórn NATO tök-
um á landinu. Núna eru þar tæp-
lega 6.000 hermenn frá
Evrópusambandinu.
Allir Bosníumenn eru með eitt
vegabréf. Þeir geta ferðast að vild
um allt landið. Ein tollgæsla og
landamæralögregla annast eftirlit
á landamærunum. Hersveitir ein-
stakra þjóðernishópa hafa verið
lagðar niður og frá byrjun næsta
árs gilda sömu skattalög í öllu
landinu.
Allt þetta virtist óhugsandi fyrir
tíu árum. Það er til marks um
hversu mikið hefur áunnist í Bosn-
íu að Evrópusambandið hóf á
föstudaginn var viðræður um
hugsanlega aðild landsins að sam-
bandinu. Þrátt fyrir umskiptin er
ljóst að mikið verk er enn óunnið í
Bosníu.
Dayton-samningurinn batt enda
á stríðið en innleiddi flókið og dýrt
stjórnkerfi. Bosnía skiptist í tvær
„einingar“, Lýðveldi Serba og
Sambandslýðveldi Bosníu og Her-
segóvínu. Sambandslýðveldið
skiptist síðan í tíu kantónur. Báðar
„einingarnar“ eru með eigin rík-
isstjórn og miðstjórn allrar Bosníu
er mjög veik. Ennfremur er þar
sjálfstjórnarhérað sem tilheyrir
hvorugri „einingunni“.
Yfir þessu öllu er síðan Skrif-
stofa aðalfulltrúa alþjóðasam-
félagsins (OHR). Þótt heiti hennar
hljómi hlutlaust hefur aðalfulltrú-
inn feikileg völd og í raun má jafna
honum við landstjóra breska
heimsveldisins forðum tíð. Breski
lávarðurinn Paddy Ashdown hefur
gegnt þessu embætti í þrjú ár.
Hann getur haldið því fram og
færa má allgóð rök fyrir því að
með því að beita þessum völdum af
krafti, meðal annars með því að
reka óbilgjarna kjörna embættis-
menn, hafi honum tekist að leiða
Bosníu „frá Dayton til Brussel“.
Löturhægar framfarir
Útlendingum þykir þó alltaf
meira til um þróunina í Bosníu en
Bosníumönnum sjálfum. Í augum
þeirra hafa breytingarnar gengið
afskaplega hægt fyrir sig. Efna-
hagur landsins er enn veikur en
eins og á svo mörgum öðrum svið-
um er erfitt að verða sér úti um
tölfræðilegar upplýsingar sem
hægt er að treysta. Til að mynda
er atvinnuleysið um 43% sam-
kvæmt opinberum gögnum. Það er
hins vegar í raun 16–20% ef tekið
er tillit til gráa hagkerfisins, að
mati Dirks Reinermanns hjá Al-
þjóðabankanum. Hann viðurkennir
samt að 18% Bosníumanna lifi
undir fátæktarmörkum og 30%
rétt fyrir ofan þau.
Stjórnarskránni breytt?
Á síðustu mánuðum hafa leið-
togar Bosníu tekið þátt í viðræðum
um breytingar á stjórnarskránni,
sem byggist á Dayton-samningn-
um, vegna þess að allir eru sam-
mála um að hún geti hvorki tryggt
skilvirka stjórnsýslu né stuðlað að
þeim umbótum sem þarf til að
Bosnía geti fengið aðild að Evr-
ópusambandinu. Bosnísku leiðtog-
arnir samþykktu á fundi í Wash-
ington á dögunum að breyta
stjórnarskránni ekki síðar en í
mars á næsta ári en þeir hafa ekki
enn náð samkomulagi um hvers
konar breytingar verði gerðar.
Hugsanlegt er að í þessu máli, eins
og í öllum mikilvægum ákvörðun-
um sem teknar hafa verið á síð-
ustu árum, þurfi útlendingar að
skerast í leikinn til að ýta leiðtog-
um Bosníu í rétta átt, ef ekki
þröngva lausninni upp á þá.
Samt óttast fáir Bosníumenn að
átök blossi upp að nýju. Serbar og
Króatar sem vildu stofna Stór-
Serbíu og Stór-Króatíu viðurkenna
nú að Bosnía er ríki sem verður til
frambúðar. Þetta þýðir þó ekki að
þeir hafi ást á landi sínu eða felli
sig vel við það. Þegar Serbía vann
Bosníu í fótbolta nýlega streymdu
ungir Serbar í Bosníu út á göt-
urnar til að fagna. Ólíkt fána Serb-
íu sést bosníski fáninn sjaldan á
svæðum Bosníu-Serba og króatíski
fáninn sést oft á svæðum Króata.
Þeir komu ekki allir aftur
Ef þróunin í Bosníu er skoðuð
grannt kemur stundum í ljós að
ekki er allt sem sýnist. Þótt
kirkjur og moskur hafi verið end-
urreistar eru tölur um fjölda
þeirra sem hafa snúið aftur til
svæða, sem eru undir stjórn fyrr-
verandi óvina þeirra, ekki eins há-
ar og ætla mætti.
Fyrir stríðið bjuggu um 4,4
milljónir manna í Bosníu. Um 2,2
milljónir þeirra flúðu heimkynni
sín í stríðinu og talið er að 1,2
milljónir hafi farið til annarra
landa. Talið er að allt að 150.000
hafi beðið bana. Íbúar Bosníu eru
nú ef til vill um 3,5 milljónir en
gætu verið enn færri þar sem ekk-
ert manntal hefur farið fram eftir
stríðið.
Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna segir að rúm milljón
bosnískra flóttamanna hafi snúið
heim og 450.000 þeirra tilheyra
minnihlutahópi í heimahögunum. Í
þessum hópi eru meðal annars
Bosníakar sem búa í Lýðveldi
Serba eða Króatar og Serbar í
Sarajevo þar sem Bosníakar eru í
meirihluta. Staðreyndin er hins
vegar sú að minnihlutahóparnir
sem hafa snúið aftur til fyrri heim-
kynna sinna eru ekki eins fjöl-
mennir og tölfræðilegu upplýsing-
arnar benda til.
Margir þeirra sem sneru aftur
gerðu það aðeins á pappírnum til
að endurheimta eignir sínar. Í
mörgum tilvikum voru eignirnar
síðan seldar. Þeir sem hafa snúið
aftur, og tilheyra minnihlutahópi í
heimahögunum, búa flestir í
sveitahéruðum eða byggðum sem
vart geta talist blandaðar. Í lang-
flestum bæjum og borgum Bosníu
er einn þjóðernishópur í miklum
meirihluta. Lítið er um að fólk í
minnihlutahópum hafi snúið aftur
til borganna.
Öðru máli ætti að gegna um
Mostar sem á pappírnum er eina
blandaða borgin í Bosníu. Stað-
reyndin er sú að fáir Serbar hafa
snúið þangað aftur og Bosníakar
búa í öðrum hluta borgarinnar en
Króatar í hinum. Markalínan er
gata sem er með tvö nöfn. Þótt
andrúmsloftið í borginni sé miklu
betra en fyrir nokkrum árum (og
ferðamennirnir séu komnir þangað
aftur vegna „nýju-gömlu brúarinn-
ar“ eins og hún er kölluð í Mostar)
skiptast skólarnir eftir þjóðerni
nemendanna og menn umgangast
lítið fólk sem tilheyrir öðrum þjóð-
ernishópum.
Þeir sem aka um Bosníu á
kvöldin taka eftir öðru. Mörg
húsanna í sveitunum eru dimm.
Margir hafa endurheimt og end-
urreist hús sín en búa ekki lengur
í þeim. Vegna stríðsins og eft-
irkasta þess hafa börn þeirra alist
upp í borgum og vilja ekki búa í
strjálbýlinu. Í mörgum tilvikum,
og Zitomislic er gott dæmi um
það, hefur aldraða fólkið snúið aft-
ur til heimahaganna og afkomend-
urnir koma þangað aðeins í fríum.
Því fer fjarri að heimkoma flótta-
fólks hafi gert þjóðernishreinsan-
irnar í stríðinu að engu.
Veikar stofnanir
Hvað um sameiginlegu stofnan-
irnar sem komið hefur verið á fót á
síðustu árum? Á meðal þeirra er
landamæralögregla, tollgæsla og
sameiginlegt varnarmálaráðuneyti.
Góðu fréttirnar eru þær að þessar
stofnanir eru til. Spurningin er
hins vegar hversu raunverulegar
þær eru. Nerma Jelacic, yfirmaður
BIRN, stofnunar sem hefur það að
markmiði að efla óháða blaða-
mennsku á Balkanskaga, lýsir
þessum sameiginlegu stofnunum
Bosníu sem „sviðsmynd í Holly-
Bosnía þokast í rétta átt en enn
Tíu ár eru liðin frá lokum
stríðsins í Bosníu og þótt
margt hafi áunnist þar á
þessum tíma eiga lands-
menn enn mikið verk fyrir
höndum, skrifar Tim Judah.
Bosníumenn þurfa til að
mynda að breyta stjórn-
arskránni og axla ábyrgð á
stjórn eigin mála án íhlut-
unar erlends „landstjóra“.
Reuters
Ættingjar hermanna Bosníu-Serba minnast þeirra sem féllu í stríðinu við minnismerki í Banja Luka í liðinni viku er tíu ár voru liðin frá lyktum ófriðarins.
Afturköllun – „Recall“
Afturköllun til notenda á
One Tree Hill Urban Jungle Buggy kerrum
Ef þú ert eigandi einfaldrar Urban Jungle Buggy
kerru með silfurhnappi á handfangsstillaranum,
biðjum við þig að skila henni í búðina þar
sem þú keyptir hana (serial 00000-012893).
Í ljós hefur komið hugsanlegur galli á
stillaranum sem gæti leitt til bilunar.
Til þess að koma í veg fyrir vandamál viljum við
skipta út öllum stillurum með silfurhnöppum.
Verslunin þar sem þú keyptir kerruna
getur aðstoðað þig við þetta.
info@onetreehill.nl
Vandamálið nær ekki til Urban Jungle kerra
með svörtum hnöppum.