Morgunblaðið - 27.11.2005, Qupperneq 44
19
122
10
73 85
52
70
35
161
33
31
22
62
20
17
20
5
15
6
12
49
12
21
4
1
1
1
00
20
40
60
80
100
120
140
160
180
200
n
ú
v
.m
a
k
i
s
a
m
b
.k
.
s
a
m
b
.m
fy
rr
v
.m
a
k
i,
s
m
b
.k
.
g
a
g
n
a
ð
il
i
s
e
m
b
o
ri
n
e
ru
k
e
n
n
s
l
á
k
u
n
n
in
g
i/
k
u
n
n
in
g
ja
k
o
n
a
ó
þ
e
k
k
tu
r
a
n
n
a
r
ú
r
f j
ö
ls
k
y
ld
u
ó
ti
lg
re
in
d
u
r
v
in
k
o
n
a
/v
in
u
r
b
a
rn
/b
a
rn
a
b
a
rn
fo
re
ld
ra
r/
a
fi
/a
m
m
a
ó
ti
lg
re
in
d
u
r
e
n
b
o
ri
n
e
ru
k
e
n
n
s
l
á
lö
g
re
g
lu
y
fi
rv
ö
ld
a
ð
il
i
h
á
ð
u
r
þ
e
im
s
e
m
fy
ri
r
o
fb
e
ld
in
u
v
e
rð
u
r
E
k
k
i
s
k
rá
ð
Kvk
KK
NEYÐARMÓTTAKA vegna
nauðgunar var opnuð í mars 1993 á
slysa- og bráðasviði Landspítala
Fossvogi og er opin allan sólar-
hringinn. Þar er þeim sem hafa ver-
ið beitt kynferðisofbeldi veitt þver-
fagleg þjónusta lækna,
hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og
lögmanna.
Til móttökunnar leituðu 1.154 ein-
staklingar til ársins 2004, um 96%
konur og 4% karlar. Aldursdreifing
þeirra sem hafa fengið aðhlynningu
eru frá 10 ára til 78 ára.
Gerendur voru langflestir kunn-
ugir og yfirleitt eldri eða talsvert
eldri en þolendur (sjá súlurit um
komur á Neyðarmóttöku.)
Mat okkar sem störfum á Neyð-
armóttöku er að virðingarleysi í
samskiptum kynjanna sem má rekja
til þeirrar kyn- eða klámvæðingar
sem gengið hefur yfir heiminn hafi
haft mikil áhrif á fjölgun og eðli kyn-
ferðisbrota gegn bæði konum og
börnum. Hafa áhrif frá kvikmynd-
um, netinu, tímaritum, mynd-
böndum og fleiri fjölmiðlum sem
gera markvisst út á kynlífið orðið
eitt af þessum neysluhugtökum þar
sem konur, ungar stúlkur og jafnvel
börn eru hlutgerð sem kynverur og
misnotuð til að svala ofbeldishneigð
karla.
Þrýstingur er stöðugur frá um-
hverfinu að taka þátt í þessum at-
höfnum, bæði á stúlkur og stráka.
Sumir gera sér ekki grein fyrir því,
að það að taka þátt í skemmandi og
niðurlægjandi at-
hæfi, misnota aðra
kynferðislega og
beita þrýstingi, tæl-
ingu og ofbeldi, er
alvarlegur glæpur.
Tilgangur og
markmið með stofn-
un Neyðarmóttök-
unnar var og er að
trúa þolendum, veita
þeim andlegan og
líkamlegan stuðning
og bæta réttarstöðu
þeirra. Er það gert
með því að boðin er
læknisskoðun, réttarlæknisfræðileg
skoðun, öflun sakargagna og skráð
niður nákvæm lýsing á ástandi og
líðan þolanda eftir að brotið er fram-
ið og er mjög mikilvægt að koma
sem allra fyrst eftir brot. Er þetta
gert til þess að styrkja frásögn og
stöðu þolanda ef hún/hann óskar eft-
ir að kæra málið til lögreglu og leita
réttar síns með aðstoð réttargæslu-
manns og að varpa þannig ábyrgð af
ofbeldinu yfir á gerandann.
Það sem er samt mikilvægast er
að veittur er sálfræðilegur stuðn-
ingur og ráðgjöf til að hjálpa ein-
staklingnum að finna aftur tilfinn-
ingu um heilleika og styrk eftir
þetta ofbeldi, óháð því hvort mál er
kært eða ekki.
Þrátt fyrir tilkomu Neyð-
armóttöku og bætta málsmeðferð
frá byrjun og að um helmingur þol-
enda kærir mál til lög-
reglu, þá hafa hlutfalls-
lega ekki fleiri mál endað
í sakfellingu yfir ger-
endum.
Er það umhugsunar-
efni að þrátt fyrir aukna
vitneskju um alvarleika
þessara mála og slæmar
afleiðingar á heilsu og líð-
an þolanda, þá er lítið
horft til þess af rétt-
arkerfinu.
Nýleg norræn rann-
sókn sýndi að tíðni
nauðgana er hlutfallslega
há á Íslandi, en samkvæmt þessari
rannsókn höfðu 17%–33% kvenna
sem leituðu til kvensjúkdómadeilda
á Norðurlöndunum fimm orðið fyrir
kynferðisofbeldi einhvern tíma á
lífsleiðinni og var hæsta talan á Ís-
landi og 17% íslenskra kvenna sögð-
ust þjást enn, einnig hæsta talan.
Athyglisvert fyrir heilbrigðisstarfs-
fólk er að 96% kvennanna í öllum
löndunum sagði kvensjúkdóma-
lækninum ekki frá þessari reynslu.
Rannsókn sem gerð var af sál-
fræðinemum í samvinnu við Neyð-
armóttöku á áfallaröskun hjá þol-
endum nauðgana sýndi að yfir 80%
þolenda í nauðgunarmálum þjást af
áfallaröskun.
Alls 195 konur leituðu á Slysa- og
bráðadeild LSH vegna ofbeldis nú-
verandi eða fyrrverandi maka árin
2003–2004. Er það um 20% af heild-
arkomum vegna ofbeldis á íbúða-
svæði. Teljum við að ofbeldið sé
mjög vangreint og að þolendur
heimilisofbeldis greini ekki rétt frá
ástæðu áverka eða veikinda. Von-
umst við til að með skilvirkari leit og
þjónustu muni þolendur sjá sér
frekar fært að leita hjálpar og líka
að leita réttar síns eftir þessi alvar-
legu brot, líkt og á Neyðarmóttöku.
Heilbrigðisstarfsfólk á margt
ólært í þessum efnum, en markviss
umræða og fræðsla til þeirra getur
orðið til þess að bæta líðan þolenda
og einnig að binda enda á þetta al-
varlega ofbeldi.
Trúum við
þolendum ofbeldis?
Eftir Eyrúnu B. Jónsdóttur
’… virðingarleysi ísamskiptum kynjanna
má rekja til þeirrar kyn-
eða klámvæðingar sem
gengið hefur yfir heim-
inn …‘
Ofbeldi á íbúðasvæði 2003-2004 Alls 959 manns, 56 % karlar, 44 % konur
(36% af komum á Slysa- bráðadeild LSH. 2003-2004)
Höfundur er hjúkrunarfræðingur á
Neyðarmóttöku vegna nauðgunar á
slysa- og bráðadeild LSH.
16 daga átak
Eyrún B. Jónsdóttir
44 SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Arnarás - 3ja - Garðabæ
Sérlega glæsileg íbúð á þessum vinsæla stað í Garðabænum. Íbúðin er 97,3 fm og á
efri hæð í litlu fjölbýli. Sérinngangur. Skipting eignarinnar: Stofa, borðstofa, eldhús,
baðherbergi, 2 svefnherbergi, sjónvarpshol og geymsla. Þetta er vönduð eign sem
hægt er að mæla með. V. 25,5 millj.
Strandvegur - Gbæ - glæsil. sjávarútsýni
Mjög glæsileg 118 fm íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi í Sjálandshverfi Garðabæjar. Húsið
stendur mjög vel við ströndina og er þægileg aðkoma að húsinu. Sérstæði í lokaðri
bílageymslu fylgir íbúðinni. Forstofa, hol, eldhús, stofu, borðstofa, vinnuaðstaða
(herb. á teikningu), hjónaherb., herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla. Glæsi-
legar innréttingar og gólfefni eru parket og flísar. Mjög falleg eign.
Lyngmóar - 3ja-4ra herb. - Garðabæ
Mjög góð 97 fm 3ja-4ra herbergja íbúð á 2. hæð auk 13 fm yfirbyggðra flísalagðra
svala og 16,2 fm bílskúrs, samtals 126,5 fm. Húsið hefur meira og minna verið tekið
í gegn að utan. Forstofa, hol, eldhús, stofa, borðstofa, gangur, baðherbergi, tvö
svefnherb. Í kjallara er sérgeymsla, sameiginl. þvottah. Gólfefni eru parket og flísar.
Verð 23,2 millj.
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is
91,0 fm góð 3ja til 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð. Íbúðin skiptist í parketlagt
hol, tvö parketlögð herbergi, baðherbergi með baðkari, innréttingu, sturtu og
tengi fyrir þvottavél, eldhús með snyrtilegri innréttingu og góðum borðkrók,
parketlagða stofu með útgangi á svalir með fallegu útsýni og geymslu. Stutt í
skóla og alla þjónustu. 5719. Verð 16,2 millj.
Haraldur, sími 898 9524, sýnir í dag milli kl. 13.00 og 14.00.
Austurberg 28 – opið hús
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is
166,1 fm glæsilegt einbýli á einni hæð við Fannafold í Grafarvogi með innbyggðum bílskúr. Húsið er teiknað af Kjartani
Sveinssyni. Húsið skiptist í forstofu, hol, stofu og borðstofu, eldhús með borðkrók, þvottahús, sjónvarpshol, tvö svefnher-
bergi og baðherbergi. Stórt geymsluloft. Falleg og vel viðhaldin lóð. Stórt bílaplan með hitalögn. Sjón er sögu ríkari. 6018.
Verð 47,5 millj.
Magnús, sími 865 2310, sýnir í dag milli kl. 13.00 og 14.30.
Fannafold 43 – opið hús