Morgunblaðið - 27.11.2005, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
AÐBÚNAÐUR aldraðra, mönn-
un og þjónusta hjúkrunarheimila
hefur verið mikið til umfjöllunar í
fjölmiðlum undanfarnar vikur. Það
er sammerkt öllum þeim sem hafa
tjáð sig um málið að allir vilja bera
hag aldraðra fyrir brjósti og allir
vilja að þeir búi við sem bestar að-
stæður. Margir hafa réttilega
hneykslast á því að enn þann dag í
dag skuli fólki boðið upp á það að
búa sín síðustu æviár í litlum her-
bergjum sem þeir þurfa auk þess
jafnvel að deila með alls ókunnugu
fólki. Þá hafa verið nefnd dæmi
um að aðstandendur greiði úr eig-
in vasa fyrir viðbótarþjónustu við
ættingja sína sem búsettir eru á
hjúkrunarheimilum. Spurt er um
lágmarksgæði þjónustu og um
jafnan rétt til heilbrigðisþjónustu
óháð efnahag.
Hjúkrunarmönnun á
öldrunarstofnunum
Í lögum um málefni aldraðra er
tilgreint það markmið að aldraðir
eigi völ á þeirri heilbrigðis- og fé-
lagsþjónustu sem þeir þurfi á að
halda og einnig að hún skuli veitt
á því þjónustustigi sem er eðlileg-
ast miðað við þörf hvers og eins. Í
nýútkominni skýrslu Ríkisend-
urskoðunar um stjórnsýsluúttekt á
þjónustu við aldraða kemur fram
að stjórnvöld hafa ekki skilgreint
lágmarkskröfur um magn og gæði
þjónustu og aðbúnað íbúa á öldr-
unarstofnunum, ef samningurinn
um rekstur Sóltúns er undanskil-
inn. Skortur á slíkum viðmiðunum
um aðbúnað og þjónustu leiði til
mismununar. Í skýrslunni er sú
skýring gefin á skorti á bindandi
lágmarkskröfum um þjónustu og
aðbúnað að stjórnvöld hafi metið
það svo að slíkt myndi auka kostn-
að við rekstur stofnananna!
Allt frá árinu 2001 hafa þó legið
fyrir ábendingar Landlæknisemb-
ættisins um hjúkrunarmönnun á
öldrunarstofnunum. Þar er lögð
áhersla á að slíkum mönn-
unarstöðlum sé ætlað að vera leið-
beinandi um þá mönnun sem
reynsla og þekking hafa sýnt að
gefi bestan árangur í umönnun
miðað við eðlilega nýtingu
mannafla og hagkvæmni í rekstri.
Þar er áætlaður nauðsynlegur
fjöldi hæfra starfsmanna til að
tryggja fullnægjandi hjúkrun og
öryggi íbúanna. Bent er á að of lít-
il mönnun á öldrunarstofnunum
leiði ekki aðeins til minni lífsgæða
hinna öldruðu heldur einnig að
hún geti leitt til aukins kostnaðar
t.d. vegna aukinnar lyfjanotkunar.
Þá leiðir lítil mönnun til mikils
álags á starfsfólk og mikillar
starfsmannaveltu, sem ekki aðeins
dregur úr gæðum þjónustunnar
heldur er einnig mjög kostn-
aðarsöm vegna þjálfunar nýrra
starfsmanna.
Í ljósi markmiða með lögum um
málefni aldraðra og ábendinga í
skýrslu Ríkisendurskoðunar er
ljóst að stjórnvöldum ber að setja
hið fyrsta fram bindandi lágmarks-
kröfur um aðbúnað og þjónustu á
öldrunarstofnunum. Ábendingar
Landlæknisembættisins um hjúkr-
unarmönnun eru grundvallarþáttur
í slíkri kröfugerð.
Fjölgun hjúkrunarrýma
Komið hefur fram að um 350
einstaklingar séu nú í brýnni þörf
fyrir hjúkrunarrými hér á landi.
Einnig að um 950 einstaklingar
deili nú herbergi á hjúkrunarheim-
ili með öðrum en maka. Þjóðin og
stjórnvöld standa því frammi fyrir
Hjúkrunarrými í stað
skattalækkana
Elsa B. Friðfinnsdóttir fjallar
um hjúkrunarumönnun á
öldrunarstofnunum ’Öll viljum við verðagömul og öll viljum við
njóta góðs aðbúnaðar og
góðrar hjúkrunar þegar
við höfum þörf á.‘
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Dofraberg 21 - Hf.
Opið hús í dag frá kl. 15:00 til 16:00
Sérlega fallegt parhús á þessum frábæra stað í Setberginu. Húsið er 210 fm og er á
tveimur hæðum. 4 svefnherb., stofa, sjónvarpshol, 2 baðherb., þvottahús, eldhús
með borðkrók, forstofa, svalir og bílskúr. Þetta er gott hús sem vert er að skoða.
Laust fljótlega. Sigurjón og Díana bjóða ykkur velkomin.
Gullsmári 2 - Kópavogi
Opið hús í dag frá kl. 14:00 til 16:00
Mjög falleg 79,7 fm íbúð á frábærum útsýnisstað í litlu fjölbýli. Forstofa, hol, eldhús,
tvö herb., stofa, baðherb. og geymsla. Góðar sv-svalir. Fallegar innréttingar. Parket
og flísar. Verð 19,5 millj. Hilmar og Elísabet bjóða ykkur velkomin.
Reykjavíkurvegur 3 - Hafnarfirði
Opið hús í dag frá kl. 14:00 til 16:00
Sérlega skemmtilegt þríllyft einbýlishús með aukaíbúð, 143,6 ferm., í göngufæri við
miðbæinn. Á jarðhæð er lítil 2ja herb. íbúð með sérinngangi. Húsið hefur verið nán-
ast allt endurnýjað á síðastliðnum árum. Verðtilboð. 19011.
Magný býður ykkur velkomin.
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS Í DAG
Rauðalækur 45, jarðhæð
Sýnum í dag mjög vel skipulagða og bjarta 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í þessu
húsi við Rauðalæk. Íbúðin er lítið niðurgrafin og hefur verið mjög mikið endurnýjuð
að utan sem innan. Sérbílastæði. Húsið er nýmálað, endurnýjað skolp, dren, gler,
rafmagn o.fl. Þrjú herbergi, þar af eitt forstofuherbergi sem nýtist vel sem vinnuher-
bergi eða fyrir ungling. Sjónvarps- og tölvutenglar í öllum rýmum, innbyggt.
Fallegur suðurgarður. Verð 17,8 millj.
Alda og Pétur taka á móti þér og þínum í dag á milli kl. 14.00 og 16.00.
OPIÐ HÚS - TIL AFHENDINGAR STRAX
LAUGAVEGUR 58
117 FM EFRI SÉRHÆÐ OG RIS
Mjög sérstök, björt, falleg og mjög
mikið endurnýjuð
efri sérhæð ásamt risi í gömlu og
virðulegu timburhúsi, byggðu 1904.
Eignin er 117 fm. Eignin heldur
sérlega vel upprunalegum sjarma
sínum. Nýlega er búið að endurnýja
gler, glugga, þak, einangra húsið að
utan, vatnslagnir og skólp.
Verð 26,9 millj.
Björk og Þiðrik sýna
eignina í dag, sunnudag,
milli kl. 14.00 og 16.00.
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
Vorum að fá í sölu fallegt 110 fm
milliraðhús efst í Ásgarðinum.
Bílastæði fyrir framan hús.
Húsið er á þremur hæðum,
kjallari, hæð og ris. Góðar
nýlegar innr. Þrjú svefnherb.
Björt og rúmgóð stofa með útg.
í fallegan sérgarð til suðurs.
Glæsilegt útsýni. Eignin hefur fengið gott viðhald.
Verð 23,5 millj.
Þórdís sýnir eignina í dag,
sunnudag, frá kl. 14:00-16:00.
ÁSGARÐUR 59 - RAÐHÚS
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
OPIÐ HÚSOPIÐ HÚS
Til leigu - Vatnagarðar
Glæsilegt lager- og skrifstofuhúsnæði, alls 784 fm, sem skiptist í 210 fm
skrifstofuhæð og 574 fm lagerhúsnæði. Stórar og góðar innkeyrsludyr.
Mikið útisvæði þar sem auðvelt er að koma gámum fyrir. Skrifstofuhæðin er
afar vel innréttuð og er vandfundið jafn gott húsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Allar nánari upplýsingar veita Ingi Björn í síma 820 3155 eða Kristberg
í síma 892 1931.