Morgunblaðið - 14.12.2005, Page 57

Morgunblaðið - 14.12.2005, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 57 TÓNLIST Íslenskar plötur Dimma – Dimma  Dimmu skipa þeir Hjalti Ómar Ágústsson (söngur), Ingó H. Geirdal (gítar, söngur, píanó og galdrar), Sigurður „Silli“ Geirdal (bassi, píanó og óhljóð) og Bjarki Þór Magnússon (trommur og slagverk). Við sögu koma einnig þeir Ragnar Zolberg (gítar), Pétur Örn Guðmundsson (hljóm- borð), Birgir Jónsson (trommur), Védís Hervör Árnadóttir (kórsöngur), Hall- grímur Oddsson (kórsöngur), Lárus O. Láruson (dragspil) og Haraldur V. Svein- björnsson (forritun). Lög eru eftir Geir- dalsbræður. Allir textar eru eftir Ingó ut- an að Hjalti á þátt í tveimur. Geirdalsbræður stýrðu upptökum. GB gefur út. DIMMA er hugarfóstur þeirra bræðra, Ingó og Silla Geirdal, sem marga rokkfjöruna hafa sopið á undanförnum árum. T.a.m. varð Ingós fyrst vart fyrir heilum tutt- ugu árum er hann lék á gítar með þungarokkssveit- inni Gypsy en þeir bræður gerðu svo garðinn frægan með hetjuþung- arokkssveitinni Stripshow sem náði svo langt að vera bönnuð í Suður- Kóreu. Seinna léku bræðurnir svo með Michael Bruce, gítarleikara sem léði Alice Cooper riff-snilld sína á gullaldarárum sjokkrokk- arans. Með þeim bræðrum í Dimmu eru fyrrverandi trymbill Stripshow og svo söngvarinn Hjalti Ágústsson, best þekktur fyrir að hafa verið í ísfirsku sveitinni Urmull sem gaf út hina merku skífu Ull á víðangi fyrir réttum ellefu árum. Tónlistin er oftast fremur kröft- ugt þungarokk, stundum drunga- legt með áru svartagaldurs yfir sér og ætli töframaðurinn Ingó hafi ekki mest um þann blæ að segja. Tónlistina er ekki hægt að kalla frumlega enda næsta víst að ekki var lagt upp með neitt slíkt. Fyrsta lagið, samnefnt plötu og sveit, er hæggeng og myrk (dimm?) stemma. Ágætlega heppn- uð, en næsta lag á eftir, „Bullets“, er til muna áhrifaríkara, borið uppi af beittu og nokkuð glúrnu gít- arriffi. Hæglega besta lag plöt- unnar. Grallaralegri stefna er tekin í lögum eins og „Cockey Gutter- worm“ og „Mr. Sinister“, eitthvað sem fer Dimmu þó fremur illa. Og lag eins og „Doom“ gengur sömu- leiðis ekki upp, er í raun hvorki fugl né fiskur. Nei, hlutirnir ganga frekar upp í tuddarokkara eins og „Big Bad Mama“ (alvöru titill!). Gítarar eru oft skemmtilegir, tví- gítar að hætti Iron Maiden bregður t.d. stundum fyrir. Hljómur plöt- unnar er þá góður og kraftmikill og hljóðfæraleikur allur er þéttur og fagmannlegur, án þess þó að sviti og hráleiki tapist. Söngvarinn Hjalti er kraftmikill og skilar sínu vel en á þó til að detta í fullmikla „vedderísku“ (Eddie Vedder, söngvari Pearl Jam) eins og svo margir rokksöngvarar sem hófu upp raustina á mektarárum gruggsins. Lagið „Silverstar“ er t.d. lítið annað en æfing í þessum téða söngstíl. Þeir sem vilja „bara“ rokk eiga eftir að verða vel sáttir við þessa fyrstu afurð Dimmu en hún mun tæplega snúa þeim „trúlausu“. Arnar Eggert Thoroddsen Hefðbundinn drungi HVAR eru sannanirnar? er yfirskrift tón- leika sem haldnir verða í kvöld á Gauki á Stöng. Yfirskriftin er hápólitísk og vísar til þess að bandarísk stjórnvöld hafa aldrei lagt fram sannanir um að al-Qaeda og Osama bin Laden beri ábyrgð á hryðju- verkaárásunum sem framin voru 11. Sept- ember 2001. Fjöldi tónlistarmanna hyggst leggja þessari hugvekju nafn sitt og spila á tón- leikunum sem hefjast kl. 20. Á meðal þeirra sem fram koma eru Megas og Súkk- at, Lokbrá, Noise, Touch, Palindrome, Brylli, Bob, We Painted the Walls, og fleiri. 11. september Morgunblaðið/Jim Smart Megasukk sendu á dögunum frá sér plötuna Hús datt. Tónlist | Pólitík og tónlist í eina sæng á Gauknum Tónleikarnir hefjast kl. 20 á Gauki á Stöng. Að- gangseyrir 500 krónur. Eiginmaður Britney Spears, Ke-vin Federline, á ekki sjö dag- ana sæla um þessar mundir. Aðdá- endur söngkonunnar þrýsta nú eins og þeir mögulega geta á söngkonuna að skilja við kauða og hafa í þeim til- gangi sett á laggirnar vefsíðuna Di- vorceKevin.com. Á síðunni er bæna- skjal þar sem þeim tilmælum er beint að móð- urinni ungu að hún láti Kevin róa, auk þess sem ýmsar ábend- ingar eru um miður skemmti- lega hegðun eig- inmannsins undanfarið. Erlendar fréttir hafa greint frá því að Britney Spears hafi fyrr í mánuðinum rekið Federline út af heimili þeirra hjóna eftir þrálát rifr- ildi þeirra í millum og í kjölfarið lét hún draga Ferrari-bifreið eig- inmannsins aftur til bílasölunnar. Kunnugir segja að Federline hafi verið harmi lostinn við missinn á bílnum, því hann hafi unnað honum næstum því jafn mikið og hann unni Spears. Meira en 2.000 manns hafa þegar bætt nafni sínu undir bæna- skjalið. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.