Fréttablaðið - 04.12.2003, Page 17
■ Afríka
FIMMTUDAGUR 4. desember 2003
G Æ Ð A F R A M K Ö L L U N U M A L L T L A N D
Johan Rönning hf.
Gengið frá
kaupum
VIÐSKIPTI Gengið hefur verið frá
sölu á Johan Rönning hf. Mánuður
er síðan tilkynnt var um kaup Boga
Þórs Siguroddssonar á tæplega 95%
hlut í fyrirtækinu af Jóni Magnús-
syni og Ástu Sylvíu Rönning. Kaup-
in voru undirrituð með fyrirvara
um áreiðanleikakönnun. Sú könnun
hefur nú farið fram og samningarn-
ir því frágengnir. Bogi tekur nú við
framkvæmdastjórn félagsins.
Johan Rönning hf. var stofnað
árið 1933. Fyrirtækið hefur lengi
verið það stærsta í sölu á rafiðnað-
arvörum á landinu og er umboðsað-
ili fyrir ABB og fleiri stóra birgja á
sviði rafbúnaðar. ■
SEGJA SKÝRSLUNA LYGAR Stjórn-
völd í Nígeríu segja að ásakanir
samtakanna Mannréttindavaktar-
innar um alvarleg mannréttinda-
brot í Nígeríu séu lygar. Julius
Ihonvbere, talsmaður stjórn-
valda, segir að nýbirt 40 blað-
síðna skýrsla samtakanna sé
bæði ónákvæm og óréttlát auk
þess að vera illa unnin og aðeins
ætlað að skapa vandræði.
VARÐSKIPIÐ TÝR
Farmannasambandið vill að fjárveitingar
verði auknar til Landhelgisgæslunanr
þannig að hún geti sinnt öryggi sjófarenda
með viðunandi hætti.
Farmanna- og fiski-
mannasambandið:
Efla ber
Gæsluna
LANDHELGISGÆSLAN Þing Far-
manna- og fiskimannasambands
Íslands leggur þunga áherslu á að
fjárveitingar til Landhelgisgæsl-
unnar verði auknar stórlega og
rekstrargrundvöllur tryggður,
þannig að Landhelgisgæslan geti
sinnt þeim öryggisþætti sem
henni er ætlaður gagnvart sjófar-
endum.
Sambandið telur að með
minnkandi umsvifum varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli muni sí-
fellt meira mæða á Landhelgis-
gæslunni. Það sé því með öllu
óviðunandi fyrir sjómenn að geta
ekki treyst á að öryggisþjónusta
sé eins og best verði á kosið á
hverjum tíma. ■
M
YN
D
/J
Ó
N
F
R
IÐ
G
EI
R
SS
O
N