Fréttablaðið - 21.03.2004, Síða 15
15SUNNUDAGUR 21. mars 2004
Frjálshyggjan og markaðs-ræðið, sem átti að leysa flest
efnahagsvandræði þjóðarinnar,
stefnir nú í algjört stjórnleysi
vegna ofurtrúar fjárfesta á
markaðslausnum. Núverandi
stjórnvöld hafa heft athafna-
frelsi þjóðarinnar í undirstöðu
atvinnugreinunum. Það mun
leiða til stöðnunar, atvinnuleysis
og fátæktar. Einkarekstur heil-
brigðiskerfisins þenur út alla
möskva og enginn ræður þar
lengur för.
Svonefnd ofurlaun forstjóra,
stjórnarmanna stórfyrirtækja
og undirdáta þeirra sem nema
um og yfir hundrað milljónum í
árslaun eru ekki lengur í neinu
samræmi við önnur laun í þjóð-
félaginu. Allt blaður um að
ábyrgð þessa ofurlaunamanna
aukist með hækkun launa, sýnir
ákveðna tegund veruleika-
firringar.
Fíknin er óseðjandi
Fæstir kunna að höndla skjót-
fenginn gróða. Hinar himinháu
upphæðir leiða oft til þess að
ofurlaunamenn missa tengslin
við umhverfi sitt og lifa í ein-
hverjum gerviheimi gróðafíkn-
innar, sem valda oft geðrænum
áhrifum eins og aðrir fíklar búa
við. Græðgin og fíknin eiga það
sameiginlegt að vera óseðjandi.
Meðferðarúrræði við gróðafíkn-
inni eru hliðstæð þeim sem beitt
er við spilafíkla þó efnahagsleg-
ur aðstöðumunur þessara aðila
sé mikill.
Þegar auðhyggjan brýtur nið-
ur siðferðisstyrk manna þá er
hætt við að viðskiptareglur séu
virtar að vettugi. Hinir nýríku
fjárfestar geta við slíkar að-
stæður hæglega orðið að loft-
bólum sem hvellspringa, bak-
landið er oftar en ekki spilaborg
eins og dæmin sanna í Banda-
ríkjunum og víðar. Fyrirtæki
sem marfalda árlega eignar-
stöðu sína grundvallast oft á
innherja- og „einkavina pappírs-
viðskiptum“ geta hæglega rú-
stað okkar litla hagkerfi. Ísland
býr við fámenni og óheft mark-
aðskerfi, þar sem auðhyggjan,
undir formerkjum arðsemi,
ræður oftast för. Þetta leiðir að
sjálfsögðu til fákeppni, einokun-
ar og eignasamþjöppunar, sem
veldur versnandi lífskjörum.
Slæm framtíðarsýn
Afleiðingar hömlulausrar
framrásar auðhyggju á hagkerf-
ið, þar sem framkvæmda- og
löggjafarvaldið er veikt og und-
irgefið peningafurstunum, er
slæm framtíðarsýn fyrir land og
þjóð.
Ekki verður séð að neinar op-
inberar eftirlitsstofnanir hafi
neina burði til að hafa hemil á
hinu óhefta markaðskerfi og
eignamyndun fjárfesta vegna
skorts á fjármagni. Nokkuð ber
á því að almenningur og fjöl-
miðlar séu að hampa þessum ný-
ríku fjárfestum, án þess að hafa
minnstu hugmynd um hvernig
eignamyndun þeirra er varið.
Þeir stjórnmálamenn ríkis-
stjórnarinnar sem komu á nú-
verandi markaðsræði, standa nú
úrræðalausir frammi fyrir
fákeppni og klíkusamfélagi
flokksbræðra sinna. ■
Umræðan
KRISTJÁN PÉTURSSON
■ fyrrverandi deildarstjóri,
skrifar um gróðafíkn.
Gróðafíkn og óheft auðhyggja
Um
Íshunda
Svar bréf frá stjórn hunda-ræktunarfélagsins Íshunda,
vegna bréfs Aðalheiðar Karls-
dóttur, þann 11. mars 2004.
Íshundar meðlimir í UCI
Í september 2003 fékk
Alþjóðlegahundaræktunar-
sambandið UCI e.V.Bad Oyen-
hausen, Þýskalandi, bréf frá
Aðalheiði Karlsdóttur þar sem
hún fer fram á upplýsingar um
hvort Íshundar séu meðlimir í
UCI Þýskalandi. Í lok árs 2003
fékk Aðalheiður senda staðfest-
ingu þess að lútandi að hunda-
ræktunarfélagið Íshundar séu
fullgildir meðlimir í UCI.
Þannig að ekki er nú rétt hjá
Aðalheiði að hún hafi ekki náð
sambandi við UCI Þýskalandi.
Finnst okkur Aðalheiður taka
full stórt upp í sig að segja að
UCI Þýskalandi sé skúffufyri-
tæki, með þeim orðum er hún að
segja að DHL í Danmörku sé
skúffufyrirtæki, þar sem þeir
eru einnig aðilar í UCI Þýska-
landi. Varaformaður UCI Þýska-
landi er Bent Wimmer sem
einnig er formaður DHL í Dan-
mörku. Hann er jafnframt okk-
ar tengiliður við UCI Þýska-
landi. Íshundar vinna eftir regl-
um UCI Þýskalandi við útgáfu á
ættbókum, ræktun og sýning-
um.
Látum af niðurrifsstarfsemi
Það hefur alltaf verið stefna
Íshunda að reka félagið eftir
lögum UCI Þýskalandi og láta
ekki draga nafn félagsins inn í
neikvæðar umræður. Það er
keppikefli félagsins að vinna vel
fyrir félagsmenn sína, því allir
ættu jú að hafa gaman af því
sem verið er að gera og láta af
allri niðurrifsstarfsemi. ■
Andsvar
ÁSGEIR GUÐMUNDSSON
■ skrifar um hundaræktunarfélagið
Íshundar..
HUNDUR
„Íshundar vinna eftir reglum UCI Þýska-
landi við útgáfu á ættbókum, ræktun og
sýningum,“ segir meðal annars í greininni.