Fréttablaðið - 21.03.2004, Page 18

Fréttablaðið - 21.03.2004, Page 18
18 21. mars 2004 SUNNUDAGUR ■ Ný ljóðabók ■ Andlát ■ Afmæli Jimmy Carter, þáverandi forsetiBandaríkjanna, hitti um það bil 150 bandaríska íþróttamenn og þjálfara þeirra og greindi þeim frá þeirri ákvörðun stjórnvalda að sniðganga Ólympíuleikana í Moskvu vegna innrásar Sovét- manna í Afganistan. Það var í desember árið 1979 sem Sovétmenn réðust inn í Afganistan til að tryggja valta leppstjórn í sessi. Bandaríkja- menn brugðust harkalega við; hættu afvopnunarviðræðum við Rússa, fordæmdu innrásina hjá Sameinuðu þjóðunum og hótuðu að sniðganga Ólympíuleikana í Moskvu árið 1980. Rússar bökkuðu hvergi og Carter forseti ákvað því að standa við stóru orðin og senda ekki íþróttafólk til keppni í Moskvu og greindi, sem fyrr segir, íþrótta- fólkinu frá ákvörðun sinni þann 21. mars árið 1980. „Ég skil hvern- ig ykkur líður,“ sagði Carter við íþróttafólkið og sýndi vonbrigð- um þess skilning. Hann varði svo ákvörðun sína og sagði: „Við erum með þessu að slá skjaldborg um þau gildi sem Ólympíuleikarnir standa fyrir, ekki að grafa undan þeim.“ Íþróttafólkið sýndi ákvörðun- inni mátulega mikinn skilning og einn þeirra lét þau orð falla að sem borgari væri það ekki erfitt að standa með forsetanum „en fyrir íþróttafólk er ákvörðunin erfiðari“. Carter var einnig gagnrýndur fyrir að gera Ólympíuleikana að pólitísku bitbeini en þetta er eina skiptið, fyrr og síðar, sem Banda- ríkjamenn mæta ekki til leiks. ■ Elí Rósinkar Jóhannesson húsasmíða- meistari, Álfhólsvegi 151, Kópavogi, lést fimmtudaginn 18. mars. Holgeir P. Gíslason rafvirkjameistari, lést þriðjudaginn 16. mars. Magnús Gunnarsson, Frakkastíg 14, Reykjavík. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Solveig Búadóttir lést sunnudaginn 14. mars. Jarðarförin hefur farið fram í kyrr- þey. Þráinn Sigurðsson frá Siglufirði, lést fimmtudaginn 18. mars. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari er 59 ára. Dalla Þórðardóttir prófastur er 46 ára. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Útlend- ingastofu, er 45 ára. Ég er með börnin mín, GuðnýjuGabríelu og Sverri Anton um helgina og kaupi örugglega franska súkkulaðiköku og leyfi þeim að skreyta hana,“ segir Ari Magg ljósmyndari sem er 27 ára í dag. „Svo býð ég þeim nánustu í beyglur og köku.“ Í kvöld fær hann sér örugglega eitthvað gott að borða og það er aldrei að vita nema eitthvað óvænt gerist. Eftirminnilegasta afmælið var þegar hann varð 25 ára og var tvisvar komið á óvart sama daginn. „Ég var búinn að gleyma afmælinu mínu og var boðaður á mikilvægan óvæntan fund með starfsfélögunum. Ég var eitthvað hálfpirraður yfir þessu en þegar ég mætti þá beið mín veisla með kampavíni og til- heyrandi. Um kvöldið hélt ég að ég væri að fara eitthvað rólegt út að borða en þá voru allir vin- irnir þar saman komnir og þetta varð allt saman mjög skemmti- legt.“ Ari hefur verið ljósmyndari í rúm sjö ár eða frá því hann var 19 ára. „Þetta er oft meira en lífsstíll og mjög skemmtilegt. Þetta getur verið ofboðslega mikið álag því ég vinn rosalega mikið, sem er bæði kostur og galli.“ Flestir hafa líklega séð mynd- irnar hans einhvern tímann án þess að vita af því þar sem hann vinnur fyrir marga og hefur tekið fjölda mynda bæði hérlendis og erlendis. Í augnablikinu er hann kannski þekktastur fyrir auglýs- ingar Símans en hann hefur tekið þátt í að endurskapa ímynd fyrir- tækisins. „Þeir sem eru í bransan- um og fylgjast með þessu þekkja oft myndirnar mínar, þó þær séu ómerktar.“ Það er margt á stefnuskránni hjá Ara. Hann er alltaf með nokk- ur verkefni í bígerð eins og að vera með ljósmyndasýningar en hann segist því miður ekki hafa nægan tíma til að sinna því upp á síðkastið. „Ég er líka að láta hanna fyrir mig vefsíðuna arimagg.com sem mun vekja nokkra athygli og er liður í því að reyna að markaðssetja mig erlendis. Markaðurinn á megin- landi Evrópu og í Bandaríkjunum er auðvitað mun stærri en hérna heima.“ Hann viðurkennir að samkeppnin þar ytra sé mun harð- ari en hér. „Ég tel mig hafa góða reynslu héðan,“ segir hann að lokum, öruggur. ■ Afmæli ARI MAGNÚSSON ER 27 ÁRA ■ stefnir á að markaðssetja sig erlendis. JOHANN SEBASTIAN BACH Tónskáldið sígilda fæddist á þessum degi árið 1685 fyrir 319 árum síðan. 16. mars ■ Þetta gerðist 1919 Kommúnistar ná völdum í Tékkóslóvakíu. 1921 Pólland verður sjálfstætt ríki. 1929 Ólafur 5. Noregskonungur geng- ur að eiga Mörtu frá Svíþjóð. 1945 Bandamenn hefja fjögurra daga sprengjuárásir á skotmörk í Þýskalandi. 1960 Lögreglan drepur 60 mótmæl- endur í Sharpeville í Suður- Afríku. 1961 Bítlarnir debútera í Cavern klúbbnum í Liverpool. Fram- haldið þekkja allir. 1963 Leikarinn Elliott Gould og söng- og leikkonan Barbra Streisand ganga í hjónaband. 1963 Síðasti fanginn er fluttur frá Alcatraz fangelsinu í San Francisco. 1991 Rafmagnsgítara- og magnara- frumkvöðullinn Leo Fender deyr 81 árs að aldri. 2000 Hæstiréttur Bandaríkjanna úr- skurðar að ekki sé hægt að setja hömlur á dreifingu tóbaks á þeim forsendum að um ávana- bindandi lyf sé að ræða. Bandaríkjamenn hundsa Ólympíuleikana JIMMY CARTER ■ tilkynnir bandarísku íþróttafólki að ekkert verði af þátttöku þess í Ólympíu- leikunum í Moskvu vegna innrásar Sovétmanna í Afganistan. 21. mars 1980 Beyglur og frönsk súkkulaðikaka Stór hluti af vikunni fer í aðskipuleggja UngJazz 2004,“ segir Skapti Örn Ólafsson. „UngJazz er samnorræn tónlistar- hátíð sem er nú haldin í fyrsta skipti á Íslandi. Á henni verður tónlistarfólk frá öllum Norður- löndunum, allt ungir djassgeggar- ar,“ segir hann og hlær. Djass hefur lengi verið áhugamál Skapta. „Ætli það sé ekki komið frá afa mínum, Skapta Ólafssyni söngvara. Ég hef lengi hlustað á djass en lítið spilað.“ Til að sinna þessu áhugamáli hefur Skapti skipulagt djasstón- leika í Vestmannaeyjum, þaðan sem hann er uppruninn og í Reykjavík. „Þetta eru samt langstærstu tónleikarnir sem ég kem að. Á hátíðinni munu sex hljómsveitir koma fram, þar af fjórar norrænar. Þær verða með tónleika á Hótel Borg bæði á föstu- dags- og laugardagskvöld og við vonum að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Á laugardagskvöldið, þegar þetta er yfirstaðið mun ég svo slaka aðeins á.“ Djassinn mun þó ekki eiga hug hans allan í vikunni því hann starfar einnig sem lausamaður í blaðamennsku og er að undirbúa útgáfu á Lífskrafti sem er blað Krafts, félags fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. „Við stefnum á útgáfu í byrjun apríl og því er það Lífskraftur og UngJazz sem standa upp úr í vikunni.“ Þegar tími gefst mun Skapti svo reyna að sinna náminu, en hann er í Háskólanum að nema stjórnmála- fræði og sagnfræði. „Það er nóg að gera í skólanum hvað varðar verk- efnaskil og þess háttar. Þar er allt að klárast fyrir páskafrí.“ ■ Vikan sem verður SKAPTI ÖRN ÓLAFSSON ■ Fyrsta UngJazz-hátíðin verður haldin hér á landi um næstu helgi. SKAPTI ÖRN ÓLAFSSON Er að skipuleggja djasshátíð, gefa út blað og reyna að sinna námi þegar tími gefst til. Upplýsingar um hátíðina má finna á ungjazzreykjavik.net. Lífskraftur og UngJazz FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T R EY N IS SO N SVERRIR ANTON, ARI MAGNÚSSON OG GUÐNÝ GABRÍELA Ætlar að kaupa súkkulaðiköku og leyfa börnunum sínum að skreyta hana með nammi. Út er komin ljóðabókin Grill-veður í október eftir Óttarr m og segir í fréttatilkynningu að þetta sé blóðug og klámfengin bók, hellt full af kómísku myrkri og blönduð í svart-hvítan dauð- ann – úr síðmóðins veruleika hinna eilífu endurtekninga: nauð- gana, stríða og sjónvarps. Auk þess að fást í bókabúðum bregður höfundur á þá nýbreytni að selja hana sjálfur þar sem hann stend- ur, grímuklæddur, á hverju þriðjudagsmiðnætti næsta hálfa árið, við stærðfræðilega miðju Klambratúns. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.