Fréttablaðið - 10.04.2004, Blaðsíða 6
6 10. apríl 2004 LAUGARDAGUR
■ Bandaríkin
Veistusvarið?
1Hver er nýráðinn skólastjóri grunn-skóla Seltjarnarness?
2Hvað heitir nýja olíufélagið sem ætlarað hefja olíusölu til fiskiskipa í Norð-
fjarðarhöfn?
3Hver er forseti Bandalags íslenskralistamanna?
Svörin eru á bls. 46
ATVINNUMÁL „Þarna er uppi
ágreiningur vegna ákveðins hóps
erlendra manna sem vinna störf
sem Íslendingar telja sig eiga
rétt á,“ segir Guðmundur Þ. Jóns-
son, varaformaður stéttarfélags-
ins Eflingar. Hópur rússneskra
áhafnarmeðlima starfaði við
lestun flutningaskips á vegum
Samskipa í Sundahöfn í vikunni.
Telja íslenskir verkamenn þetta
brjóta í bága við lög og reglur
enda séu erlendu verkamennirn-
ir að störfum fyrir mun lægri
laun en tíðkast hér á landi.
„Þetta hefur viðgengist lengi
en nú finnst mönnum nóg komið
af svo góðu og vilja gera eitthvað
í málunum. Þetta er tiltölulega
nýkomið upp en til stendur að
funda um þetta strax eftir páska
og reyna að fá botn í málið.“
Svavar Ásmundsson, einn eig-
enda Löndunar ehf., segir þetta
ekki nýtt af nálinni. „Efling er að
gera úlfalda úr mýflugu enda
hefur þetta verið gert með þess-
um hætti í fleiri áratugi alls stað-
ar í heiminum. „Það eru alltaf
einhverjir sem kvarta vegna
þessa en staðreyndin er sú að um
leið og við förum að sjá um að
lesta í skipunum sjálfir er ábyrgð
okkar orðin svo mikil að við erum
þess fegnastir að sleppa við
þetta.“ ■
STJÓRNMÁL „Ég hef fullan rétt og
ríka ástæðu til að andmæla nefnd-
inni, þegar hún telur sig hafa laga-
heimild til þess að segja ákvörðun
mína um skipan hæstaréttardóm-
ara byggða á kynferðislegri mis-
munun og lítur þannig á, að dóm-
greind hennar um hæfi umsækj-
enda eigi að vega
þyngra en mín sem
d ó m s m á l a r á ð -
herra.“ Þetta segir
Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra
á heimasíðu sinni í
gær en þetta er það
eina sem hann hef-
ur viljað láta hafa
eftir sér opinber-
lega eftir að hafa látið ummæli
falla um að jafnréttislögin séu
barn síns tíma.
Í pistli sínum gagnrýnir Björn
jafnframt framsetningu fjölmiðla
á málinu. Hann deilir á Frétta-
blaðið fyrir að hafa ekki getið
þess í frétt sinni að Eiríkur Tóm-
asson, forseti lagadeildar Háskóla
Íslands og prófessor í réttarfari,
hafi verið einn umsækjenda um
umrædda stöðu hæstaréttardóm-
ara.
Í fréttinni var Eiríkur þó ekki
spurður álits á ráðningunni sem
slíkri, heldur var einungis leitað
til hans sem sérfræðings í lögum
til að fá álit á ummælum Björns
um jafnréttislögin.
Björn Bjarnason segir jafn-
framt að á heimasíðu sinni eigi
hann „þess kost á að skýra afstöðu
[sína] og bregða ljósi á það, hvern-
ig staðið er að framsetningu mála
í fjölmiðlum, án þess að viðleitni
gæti þar til að sýna alla myndina“.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu var margoft reynt
að ná í Björn Bjarnason vegna
ummæla hans. Reynt var að koma
til hans skilaboðum í dómsmála-
ráðuneytinu, hringt var heim til
hans og honum sendur tölvupóst-
ur. Björn kaus að svara ekki og
hafði þá að engu tækifæri sitt til
að koma fram sjónarmiði sínu í
fjölmiðlum.
Hann bætir því við í pistli sín-
um að hann hafi sett sér þá innan-
hússreglu að svara aðeins skrif-
lega spurningum frá DV og
Fréttablaðinu. Þá ákvörðun ítrek-
aði Björn í skriflegu svari til
Fréttablaðsins síðdegis í gær.
Í pistli sínum segist Björn
standa við „þá ígrunduðu og mál-
efnalegu ákvörðun“ sem hann tók
við skipan hæstaréttardómarans.
Einnig hafi hann „rétt á að hafa
skoðun á vinnubrögðum kæru-
nefndar jafnréttismála og nauð-
syn þess að setja henni nýjan
lagaramma, ef hún er knúin til
þess af honum að komast hvað eft-
ir annað að rangri niðurstöðu.“
sda@frettabladid.is
FARÞEGALEST FÓR ÚT AF SPOR-
INU Að minnsta kosti einn maður
lést og 65 slösuðust þegar far-
þegalest sem var á leið frá New
Orleans til Chicago fór út af
sporinu og valt á hliðina í Miss-
issippi. Nokkrir hinna slösuðu
eru í lífshættu. Talið er að um
slys hafi verið að ræða en Banda-
ríska alríkislögreglan, FBI, hefur
sent menn á svæðið til að rann-
saka málið.
MURDOCH SPÁIR BUSH SIGRI
Fjölmiðlarisinn Rupert Murdoch
spáir því að
George W.
Bush Banda-
ríkjaforseti
muni vinna ör-
uggan sigur á
demókratan-
um John
Kerry í for-
setakosning-
unum í nóv-
ember, þökk sé sterku efnahags-
lífi og almennum stuðningi við
Íraksstríðið. „Hann mun fara létt
með þetta,“ sagði Murdoch í sam-
tali við ástralska útvarpsstöð.
KÓKAÍNHRINGUR UPPRÆTTUR
Bandaríska alríkislögreglan, FBI,
hefur handtekið þrettán meinta
meðlimi eiturlyfjahrings sem
smyglaði kókaíni frá Guyana til
New York í gegnum John F.
Kennedy-flugvöll. Talið er að
hringurinn hafi flutt inn um sjö-
tíu kíló af kókaíni frá júní 2002 til
júní 2003. Efninu var smyglað í
sérhönnuðum ferðatöskum.
icelandair.is/vildarklubbur
Tvöfaldir
Vildarpunktar
til 1. maí
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
24
12
5
0
4/
20
04
Til viðbótar koma veltutengdir Vildarpunktar kortsins
Urgur í nokkrum félagsmönnum Eflingar:
Útlendingar lesta
skip sín sjálfir
UPPSKIPUN OG LESTUN
Venjan er að erlendar áhafnir lesti sín skip sjálfar en það er í trássi við íslensk lög og reglur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Björn segist hafa rétt á
að mótmæla kærunefnd
Dómsmálaráðherra segir fjölmiðla ekki hafa gætt viðleitni til að sýna „alla myndina“. Kaus þó að
ræða ekki við fjölmiðla eftir að hafa sagt jafnréttislögin barn síns tíma. Telur þörf á nýjum laga-
ramma fyrir kærunefnd jafnréttismála svo hún „komist ekki hvað eftir annað að rangri niðurstöðu“.
■
Segist Björn
standa við „þá
ígrunduðu og
málefnalegu
ákvörðun“ sem
hann tók við
skipan hæsta-
réttardómar-
ans.
BJÖRN BJARNASON
Dómsmálaráðherra segist hafa fullan rétt á að andmæla kærunefnd jafnréttismála.