Fréttablaðið - 10.04.2004, Page 26

Fréttablaðið - 10.04.2004, Page 26
Ég er með Toyota Yaris á rekstr- arleigu og finnst það frábært. Bara verst að geta ekki verið með hann á leigu þegar mér hent- ar,“ segir Hlín Agnarsdóttir, leik- stjóri og framkvæmdastjóri Dramasmiðjunnar, sem er með bílinn á rekstrarleigu í tvö ár. „Ég ákvað eftir miklar vanga- veltur að þetta fyrirkomulag hentaði mér best. Það er búið að reikna það út að rekstrarleigan sé um það bil jafn hagkvæm og að kaupa sér notaðan bíl, en þetta var betri lausn fyrir mig.“ Hlín ákvað að fá sér bíl þegar hún stofnaði Dramasmiðjuna, en fram að því hafði hún aðallega verið á hjóli. „Þegar maður er orðinn bisnesskona þýðir ekkert að koma í bankann hjólandi á pinnahælunum, kófsveittur með bókhaldið á bögglaberanum. Það segir sig sjálft,“ segir hún hlæj- andi. Hlín segir Dramasmiðjuna ganga afskaplega vel, hvort sem það hefur nú eitthvað með Yaris- inn að gera eða ekki. „Við höfum verið með námskeið sem heita Persónuleg tjáning og töfrar raddarinnar sem hafa alveg sleg- ið í gegn, og höldum áfram eftir páska. Svo má ekki gleyma Höf- undaleikhúsinu sem heldur áfram í Iðnó í apríl. En þegar kemur að Yarisnum er Hlín ánægðust með hvað hann er sparneytinn og lítill og nettur. „Ég kem honum alls staðar í stæði, sem skiptir ekki litlu máli, því ég nota hann aðallega í alls kyns skutl innanbæjar. Bíllinn er líka fagurrauður, sem er alveg minn litur, ég er sko með rauðan farsíma, rauða tösku, rauða dag- bók og rauðan bolla,“ segir hún og skellihlær. „Allt í svo miklum stíl.“ ■ Spurningin Toyota Af ýmsum stærðum og gerðum, mest seldi bíllinn hér á landi í janúar og febrúar. Alls seldust 386 bílar af tegundinni Toyota fyrstu tvo mánuði ársins, sem er 26,2% af heildarfjölda seldra bíla. Næstmestur var hlutur Volkswagen. Vinnuvélanámskeið Kvöldnámskeið. Námskeiðsstaður, Þarabakki 3. 109 Reykjavík (Mjódd). Verð 39.900.- Upplýsingar og innritun í síma: 894-2737 Flest verkalýðsfélög styrkja nemendur á vinnuvélanámskeið, einnig atvinnuleysistryggingasjóður „Það var Daihatsu, árgerð ‘83, sem ég keypti fyrir fjórtán árum síðan. Hann reyndist mjög vel og var súperbíll.“ Guðmundur Guðmundsson Fyrsti bíllinn? Farsíminn er orðinn órjúfanlegur hluti af útgeisl- un Íslendinga, eins og því miður má glöggt sjá í þungum umferðarám borgarlandlagsins. Þrátt fyrir þá staðreynd að notkun farsíma í akstri fjór- faldi líkur á slysum, og að lögreglan haldi opnu vökulu sektarauga yfir ökumönnum sem enn spjalla í farsíma án handfrjáls búnaðar, er far- símaspjall í akstri á hraðri uppleið. Samkvæmt upplýsingum sem Ríkislögreglu- stjóri tók saman þann 25. febrúar síðastliðinn höfðu 913 ökumenn fengið sekt vegna farsíma- notkunar án handfrjáls búnaðar frá því byrjað var að sekta fyrir slík umferðarlagabrot þann 1. nóvember 2002. Upplýsingar frá sama embætti sýna að aukning sektaboða hefur aukist jafnt og þétt síðustu misseri, en skýring á því kann að liggja í strangara eftirliti lögreglunnar í þessum málaflokki. Sjóvá-Almennar hafa gert könnun á notkun farsíma í akstri og að sögn Einars Guðmundsson- ar, forvarnafulltrúa tryggingafélagsins, hefur orðið mikil aukning á farsímanoktun án hand- frjáls búnaðar í akstri. „Almennt hefur orðið vart við mikla aukningu á því að ökumenn tali í síma þegar þeir keyra, en það er sérstakt áhyggjuefni að atvinnubílstjórar eru langduglegastir í því að spjalla í farsíma undir stýri. Það er sérlega alvar- legt í ljósi þess að þeir eru mikið úti í umferðinni og oftar en ekki á stærri og þyngri bílum, sem svo valda alvarlegri umferðarslysum. Þá hafa tjón sem hægt er að rekja til farsímanotkunar í akstri aukist verulega, og algengt að komi fram í skýrslum að þolandi beri við að gerandi hafi verið í símanum þegar óhappið varð, sem hinn þá vita- skuld þvertekur fyrir.“ Einar bendir á að samhengi hafi sést milli þess að tala í farsíma í akstri og þess að fara yfir á rauðu ljósi og gefa ekki stefnuljós. „Þá er spurn- ingin; eru þeir sem tala í síma meðan þeir keyra almennt kærulausari einstaklingar, eða eru þeir svona utan við sig vegna þess að þeir eru upp- teknir í símanum og brjóta lögin vegna þess? Ég hallast að því að síðari skýringin sé sennilegri, og þetta verður að taka alvarlega. Farsímanotkun minnkaði fyrst eftir að byrjað var að sekta, en hefur nú aukist mjög aftur. Það er nokkuð sem lögregluyfirvöld verða að taka fastar á.“ ■ Á TALI UNDIR STÝRI Bandarísk rannsókn sýndi að helmingur þeirra sem töluðu í síma undir stýri sveigðu yfir á rangan vegahelming. Farsímanotkun í akstri: Símaspjall undir stýri verður algengara Bíllinn minn Fagurrauður og sparneytinn Hlín Agnarsdóttir Er með bíl á rekstrarleigu en það fyrirkomulag hentaði henni best.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.