Fréttablaðið - 10.04.2004, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 10. apríl 2004
Frá 26.995 kr.
Vikulegt flug í sumar
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
www.heimsferdir.is
Portúgal
Heimsfer›ir bjó›a í sumar beint vikulegt flug til Portúgal og er
áfangasta›urinn Algarve sem n‡tur gífurlegra vinsælda. fiar bjó›um
vi› topp gistista›i me› frábærri fljónustu á hagstæ›ara ver›i en
nokkru sinni fyrr. Helstu einkenni Portúgal eru fegur› og fjöl-
breytni. Má flar nefna heillandi menningu, náttúruna, sólina og
sjóinn, auk fless sem gott ver›lag og elskulegt fólk ásamt vaxandi
og gó›ri fer›afljónustu hafa gert Portúgal a› einu eftirsóknar-
ver›asta fer›amannalandi Evrópu í dag.
Tryggðu þér
lægsta verðið á
Íslandi
26.995 kr.
Flugsæti með sköttum, m.v.
hjón með 2 börn, 2-11 ára.
Netverð.
33.395 kr.
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
26. maí, Alta Ouro. Netverð
með 10 þús. kr. afslætti.
44.990 kr.
M.v. 2 í íbúð, 26. maí,
Alta Ouro. Netverð,
með 10 þús. kr. afslætti.
Topp gististaðir
Heimsferðir bjóða afbragðs gististaði í Algarve með
góðri staðsetningu og frábærum aðbúnaði, hvort
sem þú ert á höttunum eftir glæsilegum 4 stjörnu
gististað eða ódýru, þægilegu íbúðarhóteli.
Algarve
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
N
M
1
1
4
5
5
/
si
a.
is
Þökkum
ótrúlegar
undirtektir
Alta Ouro
Lífrænt ræktaðar vörur
Þar sem þú getur treyst á gæðin
YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082
Af sýningum framhaldsskól-anna í ár er sýning Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja líklega
hvað áhugaverðust. Hún heitir
Bláu augun þín og er söngleikur
eftir Þorstein Eggertsson um
Hljóma. Sýningum er formlega
lokið og hafa um 1.000 manns sótt
hana. Vegna gífurlegrar eftir-
spurnar ætlar hópurinn að setja
upp tvær aukasýningar í Stapan-
um 16. og 17. apríl næstkomandi.
Ólafur Freyr Hervinsson er 16
ára leikari sem þykir standa sig
með prýði. Hann leikur Svavar
Gestsson, Einar Júlíusson og
Ámunda Ámundason, fyrrum um-
boðsmann Hljóma. Ólafur viður-
kennir að hafa ekki vitað mikið
um þessa merkustu rokksveit Ís-
landssögunnar áður en hann tók
hlutverkin að sér.
„Ég veit að mamma og pabbi
hafa hlustað á þessa hljómsveit
lengi,“ segir Ólafur. „Ég vissi al-
veg af þessum Ámunda og Einari
en hafði aldrei heyrt um Svavar
Gests. Ámundi var einu sinni
vinnuveitandi systur minnar.
Hann er algjör töffari í leikritinu
og lítur stórt á sig. Mér fannst
þetta ekkert líkt þeim manni sem
ég hitti. Ég veit náttúrlega ekkert
hvernig hann var þegar hann var
ungur, fyrir mörgum, mörgum
árum.“
Ámundi hefur frétt af söng-
leiknum en á eftir að fara og sjá.
Hann var nú ekki mikið eldri en
leikarinn, þegar hann var sjálfur í
hlutverki umboðsmanns Hljóma í
raunveruleikanum. „Það er nú
gott að heyra að maður hafi ein-
hvern tímann verið töffari,“ segir
Ámundi háðskur. „Á þessum tíma
var það ekkert smámál að vera
með vinsælustu hljómsveit Ís-
lands á sínum snærum, 19 ára
gamall. Það var svakalegur hama-
gangur í kringum þá á hverjum
einasta degi. Ég varð að búa til
alls kyns uppákomur í kringum
þetta sem voru skemmtilegar.
Eins og að fara með þá að spila
fyrir aldraða, fara með þá á hár-
greiðslustofur og annað.“
Sögurnar hans Áma eru marg-
ar og góðar. Eitt ballið í Ólafsvík
var honum sérstaklega eftir-
minnilegt. „Þar voru allir eldri
borgarar fyrir utan húsið, allir
sem gátu dansað inni í húsinu og
öll smábörn uppi á félagsheimil-
inu.“
Ámi er fyrstur til þess að við-
urkenna að hann hafi stundum
rekist á sitt eigið egó á erfiðum
augnablikum. „Mér sárnaði mest
þegar ég kom í Atlavík þar sem ég
var með allar hljómsveitirnar. Ég
mætti á nýrri Volkswagen bjöllu
og var mikill maður, bara 21 árs.
Gæslumennirnir hlógu bara að
mér og létu mig bíða við hliðið í
klukkutíma. Þeir vissu allir að
„þessi“ Ámundi Ámundason væri
að koma að sunnan með einka-
flugvél en það trúði því enginn að
þetta væri ég, svona ungur,“ segir
Ámi sposkur á svip. ■
Eitthvað merkilegt hefur gerst ílífi Isaac Brock, söngvara og
textahöfundar Modest Mouse.
Sveitin gaf síðast út hina mögnuðu
The Moon & Antarctica fyrir fjór-
um árum síðan, kom hingað og lék á
tónleikum það árið og hvarf svo af
yfirborði jarðar.
Brock hlýtur að teljast til betri
textahöfunda okkar kynslóðar og
hefur aldrei verið eins innihaldsrík-
ur og núna. Sveitin hljómar líka
fyllri en hún hefur verið, fjölbreytt-
ari og bara skemmtilegri.
Modest Mouse nær hér að brjóta
þá gítarsúpuramma sem hún hafði
byggt utan um sig, án þess þó að
missa sérkenni sín. Í rauninni hefur
ramminn bara víkkað og myndin er
orðin að stærðarinnar málverki í
betri stofunni í stað þess að vera
frímerki á bréfi aðdáanda. Hér eru
menn ófeimnir við að kynna til sög-
unnar aukahljóðfæri á borð við fiðl-
ur, brassbönd eða banjó, en bara
eins lengi og það hentar tónlistinni.
Áhrifin á nýju plötunni gætu vel
verið frá Talking Heads, Pixies,
Tom Waits og Bob Dylan.
Gítarleikur Modest Mouse er al-
gjörlega sér á báti og auðþekkjan-
legur. Snýst aldrei um lykkjur, frek-
ar skraut og stef. Sveif og yfirtónar
eru notuð óspart og fyrir vikið fær
gítarinn ný blæbrigði.
Það er greinilega mikil vakning í
bandarísku jaðarrokki og Modest
Mouse á heiður skilinn fyrir að taka
það skrefinu lengra.
Ég reyni oft að halda sönsum
þegar ég er að skrifa þessar um-
sagnir, en fokk it. Þetta er geðveik
plata, ótrúleg, mögnuð, meistara-
stykki! Farið og kaupið hana,
NÚNA!
Birgir Örn Steinarsson
Meistaraverk músarinnar!
Umfjölluntónlist
MODEST MOUSE:
Good News for People who Love Bad News
Söngleikur
BLÁU AUGUN ÞÍN
■ Ólafur Freyr Hervinsson leikur
Ámunda Ámundason, fyrrum umboðs-
mann Hljóma, í söngleiknum Bláu augun
þín og segir hann mikinn töffara. Ámundi
hefur ekki enn séð sýninguna.
ÁMUNDI
Segir starfið hafa gefið mjög vel af sér og
segir það hafa verið erfitt verk að eyða því
sem hann hafði á milli handanna. Vinátta
er á milli hans og Hljóma í dag og segir
Ámi þá nýlega hafa beðið hann um að
koma aftur í bransann.
Umboðsmaður
Íslands, á og af sviði
BLÁU AUGUN ÞÍN
Rúmlega 1.000 manns hafa séð
skólasýninguna Bláu augun þín sem
fjallar um Hljóma, þar á meðal flestir
liðsmenn sveitarinnar.