Fréttablaðið - 10.04.2004, Síða 48

Fréttablaðið - 10.04.2004, Síða 48
Ördansahátíð verður haldin íhúsakynnum Klink og Bank í kvöld. Þar kennir ýmissa grasa, og meðal annars verða þær Ólöf Ingólfsdóttir dansari og Steinunn Knútsdóttir leikari saman með dúett. Rúnar Guðbrandson leikstjóri verður með eitt atriði og þau Lovísa Gunnarsdóttir dansari og Sigurður Halldórsson sellóleikari verða einnig með sameiginlegt at- riði. Þá ætlar Ilmur Stefánsdóttir myndlistarkona að láta hluti dansa, og svo verður einn síma- dans. „Dansararnir sem ætluðu að framkvæma það atriði eru staddir á Akureyri, svo þau ætla að hringja dansinn til okkar,“ segir Ólöf Ingólfsdóttir, einn af að- standendum hátíðarinnar. Ólöf segir Ördansahátíðina einnig opna fyrir óvæntum uppá- komum af ýmsu tagi. „Þetta hefur verið mjög óform- legt og við viljum gjarnan halda því að hafa eins lítið skipulag og hægt er. Ef ördansi lýstur niður í fólk á staðnum þá er alveg mögu- leiki á að leyfa honum að spretta fram.“ Að Ördansahátíðinni standa leikhópurinn Lab Loki, sem þau Steinunn Knútsdóttir og Rúnar Guðbrandsson standa fyrir, og Ólöf danskompaní, sem er á veg- um Ólafar Ingólfsdóttur. Ólöf segir hægt að taka þátt í ördansahátíð á mjög marga mis- munandi vegu, og nefnir þar fjöl- breytileika síðustu hátíðar. „Í fyrra voru bæði mjög stuttir dansar en svo var líka eitt par sem notaði bara andlitið þannig að allar hreyfingarnar voru mjög litlar. Eitt tangópar dansaði á ein- um fermetra í örlitlu rými, og svo var einn lítill dansari, tíu ára gam- all. Ördansari.“ Ólöf segir að Stefán Jónsson leikari og leikstjóri hafi brillerað í fyrra með því að segja frá því hvernig hann fékk hin ýmsu ör á líkamann. „Hann fékk örin við ákveðnar hreyfingar, og kannski er lýsing á hreyfingu ein leið til að koma hreyfingu til skila. Við höfum sem sagt ekkert viljað skilgreina þetta of mikið. Ef fólk segir að eitthvað sé ördans þá er það ördans.“ ■ ■ ■ KVIKMYNDIR  16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir Óþelló eftir Franco Zeffirelli, eftir sam- nefndri óperu Verdis, með Placido Dom- ingo, Katia Ricciarelli og Justino Diaz í aðalhlutverkum. ■ ■ TÓNLEIKAR  23.00 Karin Park frá Svíþjóð spilar á Grand Rokk.  23.30 Kvartett söngkonunnar Guð- laugar Drafnar Ólafsdóttur kemur fram í jazztónleikaröðinni á Kaffi List. Með Guðlaugu leika Vignir Þór Stefánsson á píanó, Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og Erik Qvick á trommur.  23.59 360˚ kynna risaraftónleika á Kapital. Fram koma Biogen, Ruxpin, Adrone, Worm is Green og Dj Exos.  Siggi Björns, Keith Hopcroft og Tam Lawrence spila lög af disknum Patches á Aldrei fór ég suður, Ísafirði.  Hljómsveitin 3-Some spilar á Celtic Café. ■ ■ LEIKLIST  20.00 Eldað með Elvis í Sam- komuhúsinu á Akureyri.  20.00 Leikfélag Akureyrar sýnir Draumalandið eftir Ingibjörgu Hjartar- dóttur. 40 10. apríl 2004 LAUGARDAGUR hvað?hvar?hvenær? 7 8 9 10 11 12 13 APRÍL Laugardagur ■ DANSHÁTÍÐ Aukasýningar Föstudaginn 16.apríl Laugardaginn 24.apríl  20.00 Stúdentaleikhúsið sýnir 101 Reykjavík í Grýtuhúsinu, Keilugranda 1. ■ ■ SKEMMTANIR  Von spilar á Players, Kópavogi  Hermann Ingi jr spilar og syngur á Búálfinum, Hólagarði.  Atli skemmtanalögga á Hverfisbarn- um.  Kiddi Bigfoot á Felix.  Hljómsveitinn Buff ætlar að halda uppi stemmaranum með gríni og glensi á Gauknum.  Paparnir skemmta í Sjallanum á Ak- ureyri.  Skítamórall skemmtir í Hvíta húsinu á Selfossi.  Milljónamæringarnir skemmta ásamt Bogomil Font, Bjarna Ara og Ragga Bjarna á Klúbbnum við Gullinbrú.  Eyjólfur Kristjánsson og hljómsveit- in Íslands eina von skemmta á Græna hattinum, Akureyri. ■ ■ SAMKOMUR  18.30 Hin árlega Songkran hátíð Taílensk-íslenska félagsins verður haldin á Broadway, Hótel Íslandi, til að fagna hinum fornu áramótum í Taílandi. Taí- lenskur dans og söngur. Einnig skemmt- ir Kalli Bjarni Idolstjarna og loks mun taílensk hljómsveit frá Noregi leika fyrir dansi. ■ ■ DANSLIST  20.00 Lab Loki og Ólöf dans- kompaní standa fyrir Ördansahátíð í Klink og Bank. Hátíðin er haldin í Tókíó, sviðslistarými Klink og Bank, gengið er inn Stakkholtsmegin. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð- ar en sólarhring fyrir birtingu. ÖRDANS Í GULUM KJÓL Árni Pétur Guðjóns- son leikari brilleraði á Ördansahátíðinni í fyrra. Í kvöld verður hátíðin haldin öðru sinni í Tókíó, sem er sviðslistarými Klink og Bank á horni Brautarholts og Þver- holts. Hátíðin hefst klukkan 20. Gengið er inn Stakkholts- megin. Ördansar af öllu tagi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.