Fréttablaðið - 30.04.2004, Page 19
19FÖSTUDAGUR 30. apríl
HEIMSÓTTI HIRÐINGJA
Vladimir Pútín, forseti Rússlands, heimsótti
á dögunum hirðingja í Gornoknyazevsk
nærri Salekhard í Síberíu, tæpa 2.400
kílómetra norðaustur af Moskvu.
ABC-BARNAHJÁLP „Menntun er
meginforsenda framfara. Það þekkj-
um við Íslendingar af eigin raun úr
okkar sögu. Stuðningur við uppbygg-
ingu skóla og menntun í þróunar-
löndum er einhver öflugasta þróun-
arhjálp er við getum veitt,“ segir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra í hvatningar-
orðum sínum á upplýsingaspjöldum
sem dreift verður í tengslum við ár-
legt kynningar- og söfnunarátak
ABC-barnahjálpar. Átakið ber yfir-
skriftina „Börn hjálpa börnum“ og
tók menntamálaráðherra við fyrsta
spjaldinu í gær og ýtti þar með
átakinu úr vör.
Menningarmálastofnun Sam-
einuðu þjóðanna, UNESCO, hefur
ákveðið að tileinka næsta áratug
baráttunni gegn ólæsi. Um 862
milljónir manna, 15 ára og eldri,
eru taldar ólæsar í heiminum í
dag og um 113 milljónir barna
hafa ekki tækifæri til að ganga í
skóla.
Kynningin í ár er með breyttu
sniði og taka flestir grunnskólar
á landinu þátt í henni. Grunn-
skólabörn fá að sjá fræðslumynd-
band um starf ABC-barnahjálpar
og kjör fátækra barna á Indlandi.
Síðan fá börnin upplýsingaspjald
um ABC sem þau fara með heim
til foreldra eða forráðamanna.
Í dag fá um 4000 börn, aðal-
lega á Indlandi, í Úganda og á Fil-
ippseyjum hjálp fyrir tilstilli
starfsins og velvild íslenskra
stuðningsforeldra. Fyrir tilstilli
ABC-barnahjálpar er nú verið að
byggja grunnskóla í Kittetika í
Suður-Úganda og er ætlunin að
söfnunarféð renni til byggingar-
innar. Þá stendur líka til bygging
grunnskóla í El Shaddai á Ind-
landi. Þeir sem vilja styrkja
byggingu skólanna geta lagt
framlög inn á reikning 0515 - 14 -
110000. ■
Árlegt kynningar- og söfnunarátak ABC-barnahjálpar hafið:
Barist gegn ólæsi
ÞINGVELLIR
Samkvæmt könnun Umhverfisstofnunar er
minnihluti fylgjandi því að greiða aðgangs-
eyri að Þingvöllum eða öðrum
þjóðgörðum landsins.
Þjóðgarðar:
Engan
aðgangseyri
UMHVERFISMÁL Yfirgnæfandi
meirihluti er mótfallinn því að
greiða aðgangseyri að íslenskum
þjóðgörðum ef til þess kemur.
Þetta kemur fram í könnun sem
Umhverfisstofnun stendur fyrir á
heimasíðu sinni og yfir þúsund
manns hafa tekið þátt í. Alls eru
tæplega 750 manns á móti því að
greiða fyrir aðgang að þjóðgörð-
um, en rúmlega 250 er fylgjandi
þeirri stefnu. ■
að stofna sérstakan úrvinnslusjóð
fyrir tveimur árum og með honum
er vonast til að ná markmiðum fyrr
en ella.
Í úrvinnslusjóðnum er úr-
vinnslugjald lagt á ýmsar vörur til
að greiða fyrir endurnýtingu eða
förgun úrgangs. Þetta eru vörur
sem verða að spilliefnum, s.s. dekk,
bílar, mjólkurfernur og heyrúllu-
plast. Fleiri vörur munu væntan-
lega bætast við í framtíðinni, m.a.
veiðarfæri, raftæki og umbúðir.
Sjóðurinn veltir á þessu ári um 700
milljónum króna en á næsta ári er
reiknað með að veltan nái einum
milljarði. Sjóðurinn virkar þannig
að fyrirtæki þurfa að greiða ákveð-
inn toll af þeim umbúðum sem
fylgja vörum þeirra. Er hann
þannig hvatning til þeirra til að
vera eins umhverfisvæn og mögu-
legt er. Eins getur sjóðurinn leitt til
betra verðs fyrir neytendur.
Samkvæmt landsáætluninni
eru framtíðarmarkmið fyrir 1.
janúar 2011 skýr. Urðun lífræns
úrgangs skal verða 25% minni en
1995, engin dekk fara í urðun,
85% af bílhræjum fara í endur-
nýtingu, 4 kg á íbúa á ári af raf-
tækjum fara í endurvinnslu og
endurnýting umbúða verður 60%.
Það er því ljóst okkar Íslendinga
bíður krefjandi en jafnframt
spennandi verkefni í því mark-
miði að bæta umhverfi okkar.
freyr@frettabladid.is
SORPHAUGAR
Umhverfisráðherra segir átaks þörf í urðun
heimilisúrgangs.
ÁTAKINU ÝTT ÚR VÖR
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra ýtti kynningar- og söfnunarátaki
ABC- barnahjálpar úr vör í gær. Átakið ber yf-
irskriftina „Börn hjálpa börnum“ en það er
tileinkað byggingu skóla og söfnun stuðn-
ingsforeldra, sem styrkja fátæk og munaðar-
laus börn til náms.