Fréttablaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 6
6 1. maí 2004 LAUGARDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 73.74 -0.57% Sterlingspund 130.69 0.06% Dönsk króna 11.84 0.48% Evra 88.08 0.49% Gengisvísitala krónu 123,96 0,26% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 443 Velta 4.665 milljónir ICEX-15 2.698 -1,09% Mestu viðskiptin Össur hf. 242.319 Kaupþing Búnaðarbanki hf. 239.386 Landsbanki Íslands hf. 91.555 Mesta hækkun AFL fjárfestingarfélag hf. 1,69% Fjárfestingarfélagið Atorka hf. 1,31% Össur hf. 0,88% Mesta lækkun Og fjarskipti hf. -2,37% Burðarás hf. -1,94% Kaupþing Búnaðarbanki hf. -1,91% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ * 10.290,3 0,2% Nasdaq * 1.936,0 -1,2% FTSE 4.489,7 -0,7% DAX 3.985,2 -0,6% NK50 1.461,3 -0,1% S&P * 1.112,8 -0,1% * Bandarískar vísitölur kl. 17. Veistusvarið? 1Hvaða Evrópuþjóð vann loks sigur íknattspyrnuleik í vikunni eftir 14 ára bið? 2Hverjir af æðstu mönnum Banda-ríkjastjórnar voru leiddir fyrir nefndina sem rannsakar hryðjuverkin 11. september 2001? 3Hvaða íslenski stjórnmálamaðursagði í fyrradag að ástin spyrði ekki um aldur? Svörin eru á bls. 51 Skurðhjúkrunarfræðingar sömdu: Helmingi sparnaðar frestað KJARAMÁL Hjúkrunarfræðingar á skurðsviði Landspítala - háskóla- sjúkrahúss náðu samkomulagi við stjórnendur spítalans í gær. Upp- sagnir þeirra 22 af 25 á skurðsviði, sem taka áttu gildi á miðnætti í gær, koma því ekki til framkvæmda. Að sögn Helgu Kristínar Ein- arsdóttur, sviðstjóra hjúkrunar á svæfinga-, gjörgæslu- og skurð- stofusviði, áttu sparnaðaraðgerð- ir, sem eru í fjórum liðum, að koma til framkvæmda nú um mánaðamótin. Þar var meðal ann- ars um að ræða breytingar á vökt- um og vinnutilhögun, sem leiddu af sér kjaraskerðingar á hjúkrun- arfræðinganna. Stjórnendur féllust á að fresta helmingi að- gerðanna fram yfir sumarleyfi, þannig að þær kæmu til fram- kvæmda fyrir árslok. Á þetta féllust hjúkrunarfræðingarnir. Helga Kristín sagði, að fyrir hefði legið neyðaráætlun á skurðsviði ef uppsagnirnar hefðu komið til framkvæmda. Sam- kvæmt henni hefði einungis verið sinnt bráðaaðgerðum og starf sviðsins fært strax niður á sum- aráætlun, mánuði fyrr en fyrir- hugað hefði verið. En nú væri starfsemin aftur með eðlilegum hætti, þannig að neyðaráætlunin þyrfti ekki að koma til. ■ ALÞINGI Stjórnarandstaðan krafðist þess að Íraksmálin yrðu sérstaklega tekin upp á Alþingi og að tildrög stuðnings við inn- rásina í Írak yrðu rannsökuð. Eng- inn ráðherra og fáir úr stjórnar- liðinu voru við- staddir þegar rætt var um mál- ið á Alþingi í gær. „Við berum mikla ábyrgð á innrásinni í Írak. Aðild okkar olli miklu ósætti á Al- þingi og hörð við- brögð þjóðarinn- ar. Það á fyrst og fremst að biðja íslensku þjóðina af- sökunar á því að okkur hafi verið blandað inn í þennan hörmulega hildarleik. Við berum ábyrgð á inn- rásinni með gjörð ríkisstjórnarinn- ar og eftirleiknum sem hefur verið mjög alvarlegur,“ sagði Rannveig Guðmundsdóttir, Samfylkingunni. Össur Skarphéðinsson sagði að ríkisstjórnin hefði, án þess að spyrja þjóðina og án samráðs við utanríkismálanefnd, gert Ísland að beinum þátttakendum í stríðinu í Írak, með ótvíræðri stuðningsyfir- lýsingu við innrás bandamanna. „Þetta er svo alvarlegt mál að þingið verður að taka það upp. Þátttaka okkar í innrásinni er svartasti bletturinn á utanríkis- stefnu Íslendinga á síðari árum,“ sagði Össur. Stjórnarandstaðan undirstrik- aði að ekkert lát væri á hörmuleg- um fréttum frá Írak og sagði að ut- anríkismálanefnd Alþingis hlyti að koma saman við þessar aðstæður og taka málið fyrir. Uppáskrift Davíðs Oddssonar og Halldórs Ás- grímssonar á Íraksstríðð væru ein- hver hörmulegustu afglöp ís- lenskra stjórnmála um langt skeið. „Íslendingar verða að afsala sér frekari ábyrgð á þessum ósköpum og þeim hörmungum og lögbrotum sem þarna fara fram. Það varðar sóma Alþingis að þvo okkur af þess- ari óhæfu, eftir því sem kostur er,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, Vinstri grænum. Og félagi hans Ögmundur Jónasson bætti við: „Að- gerðir bandamanna í Írak minna á hefndaraðgerðir nasista í síðari heimsstyrjöldinni síðari,“ sagði hann. Einar K. Guðfinnsson, Sjálf- stæðisflokki, sagði að þingið hefði margsinnis haft fullkomið tækifæri til þess að ræða Íraksmálið, en ekki gæfist tóm til að ræða það efnislega að svo stöddu. bryndis@frettabladid.is John Demjanuk: Tapaði dómsmáli BANDARÍKIN, AP Svo kann að fara að John Demjanuk verði vísað frá Bandaríkjunum. Áfrýjanadómstóll í Bandaríkjunum staðfesti í gær fyrri úrskurð dómstóla um að Demjanuk hefði leynt því að hann hefði verið fangavörður í fangabúð- um nasista á tímum síðari heims- styrjaldar. Hefðu stjórnvöld vitað af því á sínum tíma hefði honum verið neitað um ríkisborgararétt. Ed Nishnic, tengdasonur Demj- anuks, segir aldur og hrakandi heilsu Demjanuks þýða að hann þoli illa að vera vísað úr landi. Málið kann að fara fyrir hæstarétt Banda- ríkjanna. ■ MEÐ OG Á MÓTI Félagar í Likudbandalaginu greiða atkvæði um áætlunina á morgun, sunnudag. Ariel Sharon: Berst fyrir áætlun sinni JERÚSALEM, AP Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels og leiðtogi Likudbandalagsins, hefur farið mikinn undanfarna daga til að tryggja stuðning flokksmanna sinna við áætlun sína um brott- hvarf frá Gaza en styrkingu land- nemabyggða á Vesturbakkanum. „Ég tel að það leiði til nýrra kosninga ef áætlunin er ekki sam- þykkt. Það yrði mjög slæmt fyrir Ísrael í ljósi efnahagsástandsins,“ sagði Sharon í einu margra sjón- varpsviðtala sem hann hefur farið í síðustu daga. Stuðningur við áætlun hans hefur minnkað mjög, farið úr 54 prósentum í 40 prósent á hálfum mánuði. ■ Eddufelli 2, s. 557 1730 Bæjarlind 6, s. 554 7030 Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og lau. kl. 10-16T Í S K U V E R S L U N OPIÐ Í DAG! 1 maí frá kl 10 – 16. Veitum afslátt af öllum vörum í tilefni dagsins T Í S K U V E R S L U N 20% ■ Evrópa FLEIRI FJÖLDAGRAFIR Ráðamenn Bosníu-Serba hafa bent nefnd sem rannsakar fjöldamorðin í Srebrenica í júgóslavnesku borg- arastyrjöldinni á sex fjöldagrafir sem ekki höfðu fundist áður. ■ Evrópa GRAFIR SVÍVIRTAR Hakakrossar og nafn Adolfs Hitler voru máluð á rúmlega hundrað grafir í graf- reit gyðinga í austurhluta Frakk- lands á dögunum. Franska stjórn- in fordæmdi verknaðinn en mikið hefur verið um glæpi gegn gyðingum undanfarin ár. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I SAMKOMULAG Skurðhjúkrunarfræðingar á Landspítalan- um og stjórnendur hans náðu í gær sam- komulagi um framkvæmdatíma sparnaðar- aðgerða á sviðinu. Boðað verkfall kemur ekki til framkvæmda. ÍRAKSMÁL Á ALÞINGI Stjórnarandstaðan krefst þess að Íraksmálin verði tekin upp á þinginu. „Það á fyrst og fremst að biðja íslensku þjóðina afsökunar á því að okkur hafi verið blandað inn í þennan hörmulega hildarleik,“ segir Samfylkingin. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA „Íslendingar verða að afsala sér frekari ábyrgð á þessum ósköpum og þeim hörm- ungum og lögbrotum sem þarna fara fram. Íslenska þjóðin verði beðin afsökunar Þingmenn stjórnarandstöðunnar krefjast rannsóknar á tildrögum þess að íslensk stjórnvöld studdu hernaðinn í Írak. Þátttakan í stríðinu er svartasti bletturinn á utanríkisstefnu Íslendinga, segir Össur Skarphéðinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.