Fréttablaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 1 maí 2004 35 Guðjón Davíð Karlsson á eitt ár eftir af leiklistarnámi sínu en hefur komið víða við í leiklistinni. Hann er sonur biskupsins og segir leiklistina vera hliðargrein við prestsstarfið. istar- an er tuleg skrifaður leikari. „Við fengum til liðs við okkur leiklistarnema og settum upp tvær sýningar: Að- farir að lífi hennar, sem leikhóp- urinn þýddi sjálfur, og Pentagon, þar sem sett voru saman fimm styttri leikrit. Við vildum búa til pólitísk leikhús og það gekk svona líka rosalega vel. Ég hafði rosalega gaman af því en það er svo þunn lína milli hláturs og gráturs,“ segir Gói og bætir við: „Ég lít ekki á mig sem sprellara þannig séð en ég verð að passa mig. Ég held að það sé hættulegt að verða stimplaður. Grease var hins vegar miklu meira í sviðs- ljósinu en hin leikritin og oft fá þannig sýningar meiri kynningu og grínhlutverkin meiri fókus. En ég vona að ég fái að glíma við stórbrotin hlutverk í framtíð- inni.“ Kollegi presta Gói kemur úr mikilli presta- fjölskyldu en faðir hans er Karl Sigurbjörnsson biskup og afi Sigurbjörn Einarsson biskup. Gói segist ekki hafa fundið fyrir neinni pressu frá þeim um að hann ætti að feta í fótspor þeirra. „Ég hugsa að þeir hefðu samt orðið ánægðir með það ef ég hefði orðið prestur,“ segir Gói og hlær. „Málið er hins veg- ar að þetta er nánast sami bransi. Prestar eru miklir per- formerar og verða að setja sig í hlutverk til að halda geðheilsu. Ég valdi svona hliðargrein við prestsstarfið og losna til dæmis við að skrifa leikritið mitt sjálf- ur eins og þeir þurfa stundum að gera. Ég er mjög sáttur við það. En ég held að við séum svona hálfkollegar.“ Gói er sem fyrr segir á þriðja ári af fjórum í leiklist við Lista- háskólann. Hann er að klára bóklegu fögin en á næsta ári tekur Nemendaleikhúsið við. Í sumar fer Gói með hlutverk Voffa í Hárinu. „Ég er ofboðs- lega spenntur fyrir því og um leið og ég fer í frí frá skólanum hefjast æfingar. Það er æðisleg- ur hópur sem kemur þar saman og mér líst ótrúlega vel á þetta. Það er valinn maður í hverju rúmi og þetta verður ábyggilega rosaleg sýning. Ég er ekki í nokkrum vafa um það,“ segir Gói leiklistarnemi að lokum. kristjan@frettabladid.is Bruce Willis er búinn að finnasér nýtt starf. Hann er orð- inn baráttumaður fyrir breytt- um starfsreglum í ættleiðingar- málum í Bandaríkjunum. Á Bandaríkjaþingi er verið að deila hart um örlög tveggja milljóna fósturbarna eftir að upp komst um morð, kynferðis- lega misnotkun og ofbeldi á börnum. Á þremur mánuðum hafa 22 börn verið myrt af fólki sem tók þau í tímabundið fóstur. Á síðasta ári kom Bruce Will- is fram í sjónvarpsauglýsingum ásamt Lauru Bush forsetafrú og hvatti fólk til að ættleiða börn. Þeir sem svöruðu kallinu komust hins vegar að því að ætt- leiðingarkerfið í Bandaríkjun- um er þungt í vöfum og seinlegt og mun auðveldara er að taka börn í tímabundið fóstur en að ættleiða þau. Þetta hafa barna- níðingar nýtt sér enda er opin- bert eftirlit með börnunum lítið. Willis segir að vernda verði börnin með öllum ráðum og finna þeim ástrík heimili. Leik- arinn hefur sett á laggirnar sér- staka stofnun í þessum tilgangi. Enginn efast um áhuga Willis á málinu en sumir telja að þetta nýja ástríðumál hans sé byrjun á pólitískum ferli hans. ■ BRUCE WILLIS Hefur snúið sér að barna- vernd. Sumir segja að þetta sé byrjun á pólitískum ferli. Hetja með hugsjónir: Willis snýr sér að barnavernd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.