Fréttablaðið - 27.05.2004, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 27.05.2004, Blaðsíða 28
Ef ferðast er til borgarinnar Haag í Hollandi er hægt að heim- sækja skemmtigarðinn Madurodam. Madurodam er einn vinsælasti ferðamannastaður Hollands og er þar hægt að líta frægustu bygg- ingar Hollands, nema miklu minni en þær í raun eru. Madurodam er líkt og Legoland í Danmörku og vert að gera sér ferð þangað. - SPENNANDI VALKOSTUR Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000 www.terranova.is Akureyri, sími 461 1099 Súpersól til Salou 3. júní frá kr. 39.995 Salou er einn fallegasti strandbærinn í Suður-Katalóníu héraði á Spán einungis um 100 km frá Barcelona. Frábær dvalarstaður fyrir fjölskyldur fólk á öllum aldri. Í Salou er Port Aventura, glæsilegasti skemmtigarðu Spánar, gott úrval veitingastaða, fjölbreytt næturlíf og rúmlega kílómeterslöng aðgrunn, gullin strönd. Bókaðu núna og festu þér Súpersólartilboð. Þremur dögum fyrir brottför færðu svo að vita hvar þ gistir í fríinu þínu í Salou. Val um viku eða tveggja vikna dvöl. Verð kr.39.995á mann M.v. 2 fullorðna og 2 börn í vikuferð. Innifalið flug, gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá flugvelli kr. 2.000 á mann. Verð kr.49.890á mann M.v. 2 fullorðna í vikuferð. Innifalið flug, gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá flugvelli kr. 2.000 á mann. Brekkugötu 27a sími: 461 2500 • gsm: 895 0625 • fax: 461 2502 600 Akureyri • akurinn@hotmail.com MAÍ TILBOÐ Gistiheimilið Akur Inn 3 nætur á 15.000 2 manna herbergi fjórða nóttin frí Hugrún Hannesdóttir, sölustjóri utanlandsdeildar Ferðaþjónustu bænda, var einmitt að koma úr eftir- minnilegustu ferð lífs síns þegar Fréttablaðið hafði samband við hana. „Þetta var hálfsmánaðarferð til Kína í apríl, alveg stórkostleg,“ segir Hugrún. „Kína er náttúrlega jafnstórt og Evrópa svo maður sér ekki nema hluta af landinu, en það var samt ótrúlegt hvað við komumst yfir. Það var líka svo æðislegt að upplifa hvað fólkið þarna var glatt og skemmtilegt og tók okkur vel hvar sem við vorum.“ Hugrún segir að þó að Ferðaþjónustan sé kennd við bændur séu allir velkomnir í ferðir ferðaskrif- stofunnar. „Hópurinn var mjög fjölbreyttur og fannst okkur ekki síst gaman að sjá landbúnaðarhéruðin í Kína. Sumum í hópnum fannst að þá sæjum við í fyrsta skipti hið eiginlega Kína, því borgirnar eru orðnar mjög nýtískulegar. Það var líka sérstök upp- lifun að sjá bændur úti á ökrunum með verkfæri og vinnutæki sem voru notuð hér á landi fyrir einni öld.“ Hópurinn fór til Xi’an, hinnar fornu höfuðborgar Kína, þar sem hann skoðaði Terrakotta-herinn. „Það var alveg ólýsanleg upplifun. Ég hafði hlakkað mikið til að sjá það sem sumir hafa nefnt áttunda undur veraldar og varð ekki fyrir vonbrigðum. Mér fannst líka sigling upp Yangtze-fljótið einn af hápunktum ferðarinnar og dagarnir í Peking voru ævintýri lík- astir þar sem við skoðuðum Himnamusterið, Torg hins himneska friðar, Keisarahöllina og Kínamúr- inn.“ Hugrún segir að utanlandsdeild Ferðaþjónustu bænda muni efna til fleiri Kínaferða í ár að ógleymd- um alls kyns spennandi ferðum sem má lesa um á vef samtakanna, sveit.is. edda@frettabladid.is Eftirminnileg ferð: Töfrar Kína engu líkir Hugrún Hannesdóttir fór í eftirminnilega ferð til Kína í apríl. Hún segir ferðina hafa verið eitt samfellt ævintýr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.