Fréttablaðið - 27.05.2004, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 27.05.2004, Blaðsíða 54
42 27. maí 2004 FIMMTUDAGUR Þeir sem fara til London í júlí getaátt von á að Trafalgar torgið, þar sem Nelson trónir hátt yfir jörðu, verði ekki eins og þeir eiga von á. Enska þjóðaróperan (ENO) ætlar að breyta torginu í stóran garð fyrir óp- erutónleika sem halda á 7. júlí. Tilraunin beinist að því að fjölga áhorfendum óperunnar með því að færa hana nær fólkinu, og þá sér- staklega unga fólkinu. Því mun hún sýna La Boheme undir berum himni og á grasinu munu tónlistarunnendur geta legið með nestið sitt og notið tónanna. Reynt verður að fanga and- rúmsloftið á Glyndebourne óperu- tímabilinu, þegar nestiskörfur, teppi og gras var óaðskiljanlegur hluti þeirrar lífsreynslu að hlusta á óperu. ENO mun einnig koma fram á Glastonbury tónlistarhátíðinni, sem er þekktari fyrir rokk, ról og rign- ingu. Talsmenn óperunnar sögðu að þetta væri tilraun til að ná til nýs hlustendahóps með því framkalla töfra. Sem grein af sama meiði hefur ENO fengið tónlistarmanninn Talvin Singh, sem hefur meðal annars unnið til Mercury tónlistarverðlaunanna til að semja nýtt verk fyrir sig, þar sem útkoman verður blanda af röddum og hljóðgerflum. Verkið heitir Voxygen og í því munu birtast tónlistaráhrif frá Indlandi, Mið-Austurlöndum og Evrópu. Svo er bara að sjá hvernig dúfunum og flotaforingjanum Nelson muni lítast á herlegheitin. ■ Óperan reynir að ná til fólksins ■ TÓNLIST Sláttuorfin fyrir garðinn og sumarbústaðinn REYKJAVÍK - AKUREYRI Verð frá 11.500 Homelite   Hestur með öfuga hófa og ódrepandi köttur Menn hafa verið að sjá tröllog skrímsli á Íslandi frá aldaöðli og fram á okkar daga,“ segir Jón R. Hjálmarsson, en Al- menna bókafélagið hefur nýver- ið gefið út bók hans Skessur, skrímsli og furðudýr við þjóð- veginn. „Yngsta sagan í bókinni er frá árinu 1984 en þá voru tveir menn við rjúpnaveiðar við Kleifarvatn. Það var sagt frá upplifun þeirra í DV á sínum tíma en þeir sáu tvö furðudýr ganga á land og leika sér í fjalls- hlíðinni. Furðudýrin syntu svo aftur yfir vatnið og hurfu þeim sjónum vestan vatnsins yfir Sveifluhálsinn.“ Nykurinn í Reykjavíkurtjörn er ein af þeim sögum sem Jóni finnst heillandi. „Nykur er hest- ur sem lifir í vatni. Það er ör- uggast að ganga alltaf úr skugga um hvernig hófarnir snúa á hestum áður en farið er á bak því nykurinn þekkist á því að hófarnir á honum snúa öfugt,“ segir Jón. „Það er aldrei að vita nema nykurinn búi enn í tjörn- inni. Hann gengur víst stundum á land en ekki er óhætt að setj- ast á bak því þá stekkur hann samstundis út í vatnið og tekur knapann með sér.“ Í bók Jóns er líka að finna furðulegar sögur af venjulegum dýrum. „Það var til dæmis sér- stakur köttur á Víkingavatni í gamla daga. Það átti að farga honum með því að henda honum í Klettagjá en það gekk ekki bet- ur en svo að tveim eða þrem árum síðar kom hann upp um gólfið á Reykjahlíð við Mývatn. Þá hafði hann ferðast neðanjarð- ar í hraungöngunum og var orð- in stór og feitur af silungaáti.“ Bókin er sett upp sem hring- ferð um Ísland og í henni er að finna 60 sögur af nátttröllum, sjóskrímslum, sæhestum, ókind- um og öðrum íslenskum furðu- dýrum. ■ LEIKURINN STENDUR SEM HÆST Vinningslíkur 1:15 Yfir 4200 vinningarSendu inn SMS skilaboðin sem finna má aftan á miðanum á SS pylsupakkanum og þú veist strax hvort þú hefur unnið. Vinningaskrá á www.pylsupar.is www. i t ferd i r. i s Fjöldi stórra og smárra vinninga eftir. JÓN R. HJÁLMARSSON Í bók hans má finna sögur af Lagarfljótsorminum, sæhestum, nátttröllum og fleiri íslenskum furðudýrum. BÆKUR ■ Tröll, skrímsli og önnur furðudýr. Það er ýmislegt hægt að sjá við hringveginn. NELSON OG DÚFURNAR Trafalgartorgið í London mun taka miklum umbreytingum í byrjun júlí þegar það verður grasi lagt fyrir óperutónleika. ZANDRA RHODES Zandra opnaði sýningu sína, Gamla borðstofan í Belsay Hall í Northumberland, Bretlandi. Verk margra þekktustu avant-garde tískuhönnuða eru þar til sýnis, svo sem verk Stellu McCartney, Paul Smith og Alexander McQueen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.