Fréttablaðið - 27.05.2004, Page 62
Þetta er grínmynd með engutali, svolítið í anda Steina og
Olla, þó að myndin sé hvorki
svarthvít né með textaskiltum.“
segir Sævar Sigurðsson en stutt-
mynd hans Peningar, þar sem seg-
ir frá ferðalagi ungs manns, verð-
ur sýnd í Háskólabíói í dag. „Hann
fer frá því að vera góðhjartaður
strákur í að verða eftirlýstur
glæpamaður en þetta gerist allt á
aðeins sex mínútum og á svolítið
óhefðbundinn hátt.“
Leikararnir í myndinni eru úr
ýmsum áttum. „Ég kom auga á að-
alleikarann Snorra Engilbertsson í
Leikfélagi Hafnarfjarðar en hann
hefur leikið þar í að minnsta kosti
tveimur sýningum. Svo leika þær
María Þórðardóttir og Sigrún Ýr
Magnúsdóttir í myndinni en þær
fóru með hlutverk í Grease í vet-
ur.“ Lögreglumaðurinn í myndinni
er svo leikinn af alvöru lögreglu-
manni. „Myndin er tekin uppi í
Borgarnesi og Theodór Kristinn
Þórðarson, lögreglumaðurinn þar
í bæ, leikur lögguna í myndinni en
hann hefur meðal annars leikið í
fjölda mynda eftir Hrafn Gunn-
laugsson.“
Sævar á nokkrar stuttmyndir
að baki en Peningar er fyrsta
„alvöru“ myndin hans. „Ég tók þátt
í stuttmyndakeppni Verslunarskól-
ans nokkur ár í röð og vann þar til
verðlauna. Síðustu tvö árin hef ég
verið fastráðinn hjá kvikmynda-
gerðinni Þeir tveir og vinn þar við
eftirvinnslu,“ en Sævar klippti
meðal annars Karamellumyndina
sem hlaut Edduverðlaunin 2003.
Peningar verður sýnd aðeins
einu sinni í Háskólabíói. „Upp-
runalega hugmyndin var að gera
stuttmynd til að geta sótt um
kvikmyndaskóla. Nú er ég að láta
á það reyna að senda myndina á
erlendar hátíðir. Ef eitthvað kem-
ur út úr því þá hífir það myndina
upp á annað plan og allt svoleiðis
hjálpar við að fá inngöngu í
skóla.“
Sýning á Peningum hefst í sal 2
klukkan 17.30. Það er ókeypis að-
gangur og allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir. ■
50 27. maí 2004 FIMMTUDAGUR
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Bi
llu
nd
Bi
llu
nd
DANMÖRK
Beint leiguflug
me› ICELANDAIR
2.
jú
ní
ti
l 1
. s
ep
te
m
be
r
10
.3
85
Fl
ug
sæ
ti
kr.á mann
Innifalið er flug aðra leið
og flugvallarskattar.
19.995 kr. á mann.
Flug báðar leiðir
og flugvallarskattar.
Takmarkað sætaframboð
10
.3
85
Verð miðast við að bókað sé á Netinu,
ef bókað er í síma eða á skrifstofu
bætast 1.500 kr. þjónustugjöld
á hverja bókun.
Við erum að fara í fyrsta sinn áárlegt klappstýru- og fótbolta-
mót í Belgíu. Þar koma allar DHL-
stöðvar í Evrópu saman og keppa,“
segir Kristín Markúsdóttir, ein af
klappstýrum Íslandsdeildar DHL.
Klappstýrurnar sem halda út
eru átta talsins. „Við förum út með
fótboltaliðinu, sem hefur tekið þátt
frá upphafi. Árangur þess hefur
verið nokkuð misjafn en við erum
þó alltaf verið fyrir ofan miðju,“
segir Kristín.
Konurnar í danshópnum eru frá
tvítugu til fertugs og að sögn Krist-
ínar voru þær ekki miklir dansarar
áður en æfingar hófust. „Við vissum
ekkert út í hvað við vorum að fara
enda ekki mikil klappstýruhefð á Ís-
land. Við erum þess vegna búnar að
vera á netinu að afla okkur upplýs-
inga auk þess sem Yesmin Olsson
hefur aðstoðað okkur.“
Keppnin fer þannig fram að sér-
stök danskeppni er haldin og síðan
skiptir miklu máli að klappstýrurnar
standi sig á hliðarlínunni. „Það er
dæmt hvernig við stöndum okkur í
hvatningu á meðan strákarnir spila
fótbolta og síðan þurfa þeir auðvitað
að styðja okkur í keppninni sjálfri.“ ■
KLAPPSTÝRURNAR
Eru á leið á árlegt Evrópumót DHL í
Belgíu. Æfingarnar hafa verið stífar en þær
hafa notið aðstoðar Yesmin Olsson.
KLAPPSTÝRUKEPPNI
STARFSKONUR DHL
■ Keppa á Evrópumóti í Belgíu.
Klappstýrulið Íslands
Góðmenni gerist glæpamaður
SÆVAR SIGURÐSSON
Leikstjóri myndarinnar Peningar
sem verður sýnd í Háskólabíói í
dag í aðeins þetta eina sinn.
KVIKMYND
SÆVAR SIGURÐSSON
■ Gerir þögla gamanmynd.
Leikið gegn mismunun
Námskeiðið er unnið í sam-starfi við forvarnardeild
Hafnarfjarðar og verður haldið
í Hvaleyrarvatnsskála við
Hafnarfjörð,“ segir Margrét
Ákadóttir, leikkona og leiklistar-
meðferðarfræðingur, en Drama-
smiðjan stendur í sumar fyrir
leiklistarnámskeiðum fyrir börn
á aldrinum 10–12 ára. „Við vinn-
um út frá leiklist, myndlist og
sönglist og fáum til okkar góða
gestakennara en af þeim má
nefna leikkonuna Eddu Björg-
vinsdóttur, jógakennarann Guð-
rúnu Arnalds, Lindu Hilmars-
dóttur frá líkamsræktarstöðinni
Hress og Gauja litla.“
Markmið námskeiðsins er að
sporna gegn mismunun með
vitsmunum. „Við viljum hjálpa
börnum að yfirvinna það að
dæma hvert annað með því að
þjálfa upp vitsmunina gegn eðl-
islægri heilastarfsemi. Það er
hluti af varnarkerfi okkar allra
að vera sífellt að meta hvort
annað og athuga hvort okkur
standi einhver ógn af næsta
manni. Leiklistin er ein leið til
að finna og skilja tilfinningar og
á þessu námskeiði verða börnin
meðal annars æfð í að tjá sig um
lífið í gegnum listina.“
Dramasmiðjan hefur verið
virk í vetur. „Það hafa á annað
hundrað manns sótt námskeið
hjá okkur og það hefur verið nóg
um að vera. Nemendaleikhús
Dramasmiðjunnar áætlar að
frumsýna leikritið Bar Par eftir
Jim Cartwright í Iðnó á næst-
unni en þetta er í fyrsta sinn
sem við höldum námskeið af
þessu tagi og markmiðið er að
bjóða upp á forvarnarstarf af
þessum toga í grunnskólum
Hafnarfjarðar næsta vetur.“
Námskeiðin standa krökkum til
boða í viku í senn frá 7. júní til
30. júlí og skráning er hafin á
dramasmidjan.is. ■
MARGRÉT ÁKADÓTTIR
Leikkonan fær til sín góða gestakennara í sumar á leiklistarnámskeið ætlað börnum.
LEIKLIST
DRAMASMIÐJAN
■ stendur fyrir leiklistarnámskeiðum
fyrir 10–12 ára börn í sumar en
Edda Björgvins og Gaui litli eru
meðal gestakennara.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
SNORRI ENGILBERTSSON
Í hlutverki góðmennis og glæpamanns í stuttmyndinni Peningar.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/D
AVÍÐ
M
ÁR B
JAR
N
ASO
N