Fréttablaðið - 08.10.2004, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
LEIKIÐ Í HANDBOLTANUM
Fjórir leikir verða í Íslandsmótinu í hand-
bolta karla í kvöld. Klukkan 19.15 tekur
ÍR á móti Víkingi og Grótta KR sækir ÍBV
heim. Klukkan 20 leika HK og Afturelding
og Selfoss tekur á móti Stjörnunni.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
8. október 2004 – 275. tölublað – 4. árgangur
FORSETAEMBÆTTIÐ LAGT NIÐUR
Pétur H. Blöndal, alþingismaður Sjálfstæð-
isflokksins, hefur lagt fram frumvarp á Al-
þingi um að embætti forseta Íslands verði
lagt niður. Sjá síðu 2
BOTNVÖRPUVEIÐAR BANNAÐAR
Hópur líffræðinga og umhverfisverndar-
sinna vill að Sameinuðu þjóðirnar banni
veiðar með botnvörpu. Landssamband ís-
lenska útvegsmanna vill að stjórnvöld
bregðist við. Sjá síðu 2
BREYTT ÚTGERÐARMYNSTUR
Stjórnarformaður LÍÚ segist ekki telja að
útgerðir hlaupi til og stofni sérstök eignar-
haldsfélög um skip með sérsamningum við
áhöfn. Sjá síðu 6
RANGT HJÁ DAVÍÐ Barist er í nær öll-
um landshlutum Íraks þveröfugt við það
sem Davíð Oddsson utanríkisráðherra hef-
ur haldið fram. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
BORGARMÁL Borgaryfirvöld hafa
ákveðið að hefja viðræður við
Knattspyrnusamband Íslands og
ríkið um stækkun Laugardalsvall-
ar. Stefnt er að því að hefja fram-
kvæmdir strax á næsta ári.
Þórólfur Árnason segir að gert
sé ráð fyrir því að stækka þjóðar-
leikvanginn um þrjú þúsund sæti,
en hann tekur um sjö þúsund
manns í sæti í dag. Áætlaður
kostnaður við framkvæmdina og
ýmsar endurbætur á vellinum er
um 750 milljónir króna.
Ríkið hefur þegar samþykkt að
veita 200 milljónum króna í verk-
ið og segist Þórólfur fagna því.
Hann segir að borgin leggi til aðr-
ar 200 milljónir en Knattspyrnu-
sambandið fjármagni afganginn
með fé frá Knattspyrnusambandi
Evrópu og Alþjóðaknattspyrnu-
sambandinu.
Samkvæmt þeim hugmyndum
sem nú liggja á borðinu verður
völlurinn stækkaður út frá gömlu
stúkunni vestan megin við völlinn.
„Þar með er haldið opnum
möguleikum á tveimur stefnum í
framtíðaruppbyggingu vallarins,“
segir Þórólfur. „Annars vegar að
loka vellinum og nýta hann ein-
göngu fyrir knattspyrnu eða þá að
hafa stúkuna hringlaga og nýta
völlinn áfram bæði fyrir frjálsar
íþróttir og knattspyrnu.“ ■
Hugmyndir eru um að Laugardalsvöllurinn verði eingöngu notaður fyrir knattspyrnu:
Byrjað að stækka völlinn á næsta ári
● matur ● tilboð
Óð í sushi
Guðmundur og Þórdís:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
STJÓRNMÁL Gert er ráð fyrir að
rekstur NATO-flugvallarins í
Kabúl í Afganistan kosti íslensku
friðargæsluna 110 milljónum
meira á næsta ári en í ár og 130
milljónum meira en sagt var frá í
upphafi. Þetta þýðir 65% hækkun
frá því að flugvöllurinn var af-
hentur íslensku friðargæslunni í
byrjun júní. Upphaflega var sagt
að kostnaðurinn yrði 200 milljónir
en rekstraráætlun fyrir 2004 mið-
ast við að reksturinn kosti nokkru
meira eða 220 milljónir. Hann
hækki síðan í 330 milljónir á
næsta ári. Gunnar Snorri Gunn-
arsson, ráðuneytisstjóri utanríkis-
ráðuneytisins, segir að til greina
komi að framlengja rekstur Ís-
lendinga á flugvellinum.
Þorbjörn Jónsson, sendiráðu-
nautur í utanríkisráðuneytinu, seg-
ir að samkvæmt fjárlögum 2005
fái íslenska friðargæslan 125 millj-
óna hækkun í samræmi við yfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar um hækk-
andi útgjöld til hennar frá 2002.
Í rekstraráætlun árið 2005 eru
auk Kabúl, verkefni á
Balkanskaga og Srí Lanka sem
kosta samtals 70 milljónir króna.
Á yfirstandandi ári kosta þessir
tveir liðir 125 milljónir en fyrsta
ársfjórðung þessa árs tók friðar-
gæslan þátt í stjórn flugvallarins í
Pristina í Kosovo og tók þátt í
ýmsum verkefnum í Kosovo og
Bosníu sem nú hefur verið hætt.
Kosningaeftirlit erlendis eykst
stórlega á næsta ári en verja á 15
milljónum til þess samkvæmt
rekstraráætlun en aðeins tveimur
milljónum á árinu sem er að líða.
Starf friðargæslunnar reyndist
talsvert kostnaðarsamara 2004 en
fjárlög ársins gerðu ráð fyrir. Ís-
lenska friðargæslan fékk 84,4
milljónir króna hækkun á fjárlög-
um 2004 frá árinu áður og heildar-
útgjöldin áttu að vera 330 milljón-
ir. Þetta dugði ekki til og óskað er
eftir 70 milljónum króna aukalega
á fjáraukalögum sem nú eru rædd
á Alþingi eða 21% meira en í fjár-
lögum 2004.
a.snaevarr@frettabladid.is
Kostnaður Íslands í
Kabúl eykst um 65%
Kostnaður við rekstur flugvallarins sem Íslendingar reka fyrir NATO í Kabúl eykst um 130 millj-
ónir á næsta ári. Kostnaðurinn átti að vera 200 milljónir 2004 en verður 330 milljónir á næsta ári.
STOPP Á GRÆNU LJÓSI Mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar hafa verið mikið í umræðunni undanfarið. Sérstaklega
eftir að borgaryfirvöld ákváðu að fresta framkvæmdum við gatnamótin. Á myndinni, sem var tekin í hádeginu í gær, má sjá bíla á leið í
austurátt stopp á grænu ljósi meðan aðrir bílar fara yfir á rauðu.
nr. 40 2004
ALLTAF Í STUÐI
+
Bubbi Morthens
Gömlu barnaplöturnar
Nemendaleikhúsið
CERES 4
KENNARI Á DAGINN
& PÖNKARI Á KVÖLDIN
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
8.
ok
t.
- 1
4.
ok
t.
Tvöfaldur
í roðinu
Ceres 4:
▲
Fylgir Fréttablaðinu dag
● lomo myndir ● tíska
BJARTVIÐRI FYRIR AUSTAN Skýjað
vestan til og hætt við súldardropum.
Hlýnandi veður og hiti 7-13 stig svalast til
landsins norðaustan til. Sjá síðu 6
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Og Vodafone:
Nýr forstjóri
ráðinn
VIÐSKIPTI Eiríkur S. Jóhannsson,
fráfarandi forstjóri Kaldbaks og
fyrrverandi forstjóri KEA, hefur
verið ráðinn nýr forstjóri Og
Vodafone, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins.
Óskar Magnússon hefur verið
ráðinn forstjóri Tryggingamið-
stöðvarinnar en hann lét af störf-
um hjá Og Vodafone í kjölfar
þess að nýir kjölfestufjárfestar
réðu för hjá félaginu. Viðar Þor-
kelsson, framkvæmdastjóri fjár-
mála- og rekstrarsviðs, tók við
starfi Óskars tímabundið á með-
an verið var að ráða nýjan for-
stjóra.
Skarphéðinn Berg Steinars-
son, stjórnarformaður Og Voda-
fone, vildi ekki staðfesta að Ei-
ríkur hefði verið ráðinn.
Skarphéðinn Berg sagði að
starfsmönnum félagsins yrði til-
kynnt um nýjan forstjóra í dag. ■F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R