Fréttablaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 15
8. október 2004 FÖSTUDAGUR Landlæknisembættið vill ekki „orkufólkið“: Tengiliður kallaður á teppið HEILBRIGÐISMÁL Landlæknir hefur kallað Gitte Lassen, tengilið „orku- fólksins“, á teppið og rætt við hana. Kane-fólkið sem málið snýst um var með námskeiðahald hér á landi í síðasta mánuði. Námskeið „orkufólksins“ sner- ust meðal annars um að kanna orku fólks og taka við þar sem læknavísindin komu ekki að gagni, til að mynda varðandi vefjagigt og síþreytu. Gerði landlæknisemb- ættið tengiliðnum grein fyrir því að slíkt námskeiðahald væri litið alvarlegum augum hér og undir- strikaði að óskað væri eftir því að það endurtæki sig ekki. „Það sem konan sjálf er að bjóða upp á sem einstaklingur er á svipuðum nótum og ýmsir aðrir í hliðstæðum geira eru að fást við,“ sagði Sigurður Guðmundsson land- læknir. „Það er okkur í sjálfu sér alveg að meinalausu. Hins vegar gekk samtal okkar út á aðferðir þeirra Kane-hjóna. Við vorum sam- mála um að aðferðir þeirra og það sem þau buðu upp á stæðist ekki kröfur sem við vildum gera til starfsemi af þessu tagi.“ ■ Eldflaugakapp- hlaupið magnast Íranar lýstu því yfir á dögunum að það væri aðeins tímaspursmál hvernær þeir gætu skotið eldflaugum milli heimsálfa. Fimm af hættulegustu ríkjum Asíu og Mið-Austurlanda ráða yfir langdrægum eldflaugum. ELDFLAUGAR Þegar Hashemi Raf- sanjani, fyrrum forseti Írans, lýsti því yfir á dögunum að Íranar hefðu komist yfir þröskuldinn í þróun langdrægra eldflauga sem skjóta má milli heimsálfa varð það ekki til að draga úr áhyggjum manna yfir vopnauppbygg- ingu og einkum kjarnorkuupp- byggingu ríkja sem eiga í harð- vítugum deilum við nágranna sína. Ísraelar eru logandi hræddir við kjarnorku- áætlanir Írana enda er best hægt að lýsa sam- skiptum ríkjanna sem svo að þau einkennist af gagnkvæmri andúð. Allt Ísrael er innan skotfæris ír- anskra eldflauga og Ísraelar geta skotið eldflaugum að sumum fjöl- mennustu borgum Írans, þar á meðal höfuðborginni Teheran. Bæði ríki vinna að þróun eld- flauga sem draga enn lengra, um sex þúsund kílómetra, sem þýðir að stór hluti heimsins, til dæmis mestöll Evrópa, yrði í skotfæri þeirra. Ísraelar ráða yfir kjarnorku- vopnum, þó þeir hafi aldrei viður- kennt það berum orðum, og Íranar eru sagðir vinna að því að koma sér upp kjarnorkuvopnum, þó þeir neiti því sjálfir. Tvö kjarnorkuveldi, Indland og Pakistan, sem oft hafa lent í stríði eða verið á barmi átaka, ráða yfir langdrægum eldflaugum. Það þýð- ir að allt Pakistan er í skotfæri Indverja en aðeins norðvestur- hluti Indlands í skotfæri Pakistana. „Við þolum sprengju eða tvær, jafnvel fleiri. En þegar við svör- um verður Pakistan ekki lengur til,“ sagði George Fernandes, þá- verandi varnarmálaráðherra Ind- lands, í ársbyrjun 2003. Norður-Kóreumenn hafa valdið mestum áhyggjum að undanförnu. Talið er að þeir hafi komið sér upp nokkrum kjarnorkusprengjum og stefni að því að fjölga þeim. Þeir ráða líka yfir eldflaugum sem gera þeim kleift að skjóta þeim á bæði Suður-Kóreu og Japan. Að auki eru þeir sagðir vinna að þró- un langdrægari eldflauga sem skjóta megi að borgum á vestur- strönd Bandaríkjanna. Til að varna því byggja Bandaríkjamenn nú upp eldflaugavarnakerfi sem á að gera þeim kleift að skjóta eld- flaugar niður. Embættismenn segja að fyrstu hlutar þess verði teknir í notkun fyrir árslok og það byggt upp í framhaldinu. Gagn- rýnendur hafa hins vegar lýst efa- semdum um ágæti þess og sagt til- raunir skila döprum árangri. brynjolfur@frettabladid.is ,, Við þolum sprengju eða tvær, jafnvel fleiri. En þegar við svörum verð- ur Pakistan ekki lengur til. TENGILIÐURINN Gitte Lassen var kölluð á teppið hjá landlækni. ELDFLAUGAR STÓRU KJARNORKUVELDANNA Land Tegund Drægni Bandaríkin Minuteman II 9.650 kílómetrar Bretland Trident III 13.000 kílómetrar Frakkland M45 6.000 kílómetrar Kína DF-5 13.000 kílómetrar Rússland SS-18 11.000 kílómetrar Heimild: Missilethreat.com Ísrael Pakistan Indland 1.500 km 2.000 km 2.000 km 2.000 km 1.300 km 2.000 km 5.500 km 1.300 km Norður- Kórea Íran Í SKOTFÆRI ÓRÓLEGU RÍKJANNA Fimm ríki sem talin eru búa yfir kjarnorkuvopnum ráða yfir langdrægum eldflaugum og sýna hringirnir hversu langt eldflaugar hvers ríkis draga. Pakistanar og Indverjar hafa ítrekað lent í stríði frá því að löndin fengu sjálfstæði frá Bretlandi. Íranar og Ísraelar óttast hvorir aðra og nágrannar Norður-Kóreu óttast eldflaugar landsins. Norður-Kóreustjórn vinnur að gerð enn langdrægari eldflauga sem draga minnst 5.500 kílómetra eins og sjá má á brotalínunni. G R AF ÍK /F RÉ TT AB LA Ð IÐ H EI M IL D : C AR N EG IE E N D O W M EN T FO R IN TE R N AT IO N AL P EA C E HERVÖRÐUR Á KÓRESKU LANDAMÆRUNUM Norður-Kóreustjórn hefur komið sér upp kjarnorkuvopnum og langdrægum eldflaugum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.