Fréttablaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 51
36 8. október 2004 FÖSTUDAGUR Mr. Pink: Where's the commode in this dungeon? I gotta take a squirt. Í Reservoir Dogs (1992) hafa krimmarnir nóg að tala um og komast haganlega að orði, jafnvel þegar klósettferðir ber á góma. Wimbledon Internet Movie Database - 6,4 /10 Rottentomatoes.com - 62% = Fersk Metacritic.com - 57 /100 Cellular Internet Movie Database - 6,5 /10 Rottentomatoes.com - 55% = Rotin Metacritic.com - 57 /100 FRUMSÝNDAR UM HELGINA (DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM) Egill Helgason hefur nú fengið eigið vefsvæði inni á nýjum Skoðanasíðum Vísis. Bjóðum Egil velkominn á visir.is • Hægt er að horfa á nýjasta þátt Egils, Silfur Egils á visir.is, skömmu eftir að útsendingu þáttarins lýkur á sunnudögum. Auk þess verður hægt að skoða eldri þætti hans frá þessum vetri. • Daglegir pistlar Egils verða á vefsvæðinu • Blaðagreinar sem Egill skrifar • Bréf til Egils og svör hans við þeim. Auk þess er hægt að senda Agli bréf beint af vefnum. • Umfjöllun um menningu, hverju nafni sem hún nefnist kallar Egill Brotasilfur. Þar má finna umfjöllun um bækur, kvikmyndir og aðra menningu • Loks má finna Vængjuð orð, fleyg orð eða tilvitnanir, að vali Egils, á vefsvæði hans inni á visir.is NR. 41 - 2004 • Verð kr. 599 FLJÚGANDI ÁST 9 771025 956009 Besta dagskráin þín! ÚR FITU! ÉG VAR AÐ DREPAST Magnús Ólafsson laus við 58 kíló: Bara í Ungfrú Reykjavík í skýjunum: Davíð Oddsson í framkvæmdahug: BYGGIR SUMARHÖLL VIÐ RANGÁ 7.-13.okt. Pör og fjör á lokahófi KSÍ: SJÁIÐ SÆTU BOLTAPÖRIN! FAÐMAÐUROG LAMINN Idol á AkureyriFriðrik Þór: Kirsten Dunst hefur tekið sér smá frí frá loftfimleikum með Köngu- lóarmanninum og er með báða fæturna á jörðinni í Wimbledon sem Sambíóin frumsýna í dag. Þetta er rómanrísk ástarsaga sem segir sögu tveggja einstaklinga sem í fyrstu virðast eiga fátt sam- eiginlegt en laðast hvort að öðru og bæta hvort annað upp. Dunst leikur tennisstjörnuna Lizzie Bradbury sem hefur hug- ann við það eitt að sigra á mótum en fellur óvænt fyrir minnipoka- manninum Peter Cold sem villist inn á stórmót þótt hann sé í 119. sæti á styrkleikalista og eigi yfir- leitt ekki séns. Það er hinn mjög svo sjarmerandi Breti, Paul Bett- any, sem leikur Colt en hann er þekktastur fyrir að hafa sýnt eðal- leik á móti ástralska buffinu Russell Crowe í myndunum A Beautiful Mind og Master and Commander. Það segir meira en mörg orð um anda myndarinnar að hlutverk Bettanys var upphaflega skrifað með Hugh Grant í huga fyrir löngu síðan. Leikstjórinn Richard Loncraine segir það þó hafa verið af og frá að fá Grant í hlutverkið þar sem hann sé einfaldlega orðinn of gamall en Colt er ungur maður sem hefur ýmislegt til brunns að bera en hefur misst sjónar af því hvað maður þarf að gera til að vinna. Ástin og óvænt tækifæri til að sanna sig blæs kappanum þó kapp í kinn og það getur því allt gerst á Wimbledon. ■ KIRSTEN DUNST OG PAUL BETTANY Fella hugi saman á Wimbledon. Bæði eru þau tennisleikarar, hann vonlaus en hún efnileg en ástin setur varla svoleiðis smámuni fyrir sig. Rómantík á tennisvelli Dodgeball „Hefst þá hin skemmtilegasta atburðarás sem heldur manni brosandi allan tímann, það vantar ekki. Og spenntum. En maður liggur aldrei afvelta af hlátri, eins og maður bjóst við að maður myndi gera. Ben Stiller er auðvitað fyndinn sem vaxtar- ræktartröllið og orð-óheppni hans í mannlegum samskiptum er einkar spaugileg, en það vantar samt hina ótrúlegu fyndnu og beittu brandara sem maður bjóst við að efniviðurinn og leikarahópur- inn myndi færa manni. Ágætis mynd og skemmti- leg, en undir væntingum.“ GS Næsland „Það er margt vel gert í Næslandi enda enginn skortur á fagmönnum sem koma að framleiðsl- unni. Kvikmyndatakan er flott, sviðsetningin á köfl- um snilld, leikararnir standa sig upp til hópa prýði- lega og tónlistin er fín en samt er eitthvað að klikka þannig að eftir stendur áferðarfalleg mynd sem er ekkert sérstaklega skemmtileg og ristir ekki djúpt.“ ÞÞ Collateral „Í raun er hér um klassíska baráttu góðs og ills að ræða. Að þessu sinni fer hún fram í leigubíl, á milli níhilista sem fer um stórborgina drepandi fólk eins og engill dauðans og er skítsama, og leigubílstjóra sem trúir enn á drauma og hið góða í lífinu. Og spennan er klassísk: hvort aflið verður hinu yfir- sterkara? Collateral er mjög vel leikin, innihaldsrík í söguþræði, uppfull af bitastæðum smáatriðum, vel skrifuð og vel útfærð. Hvað getur maður sagt meira?“ GS Man on Fire „Þrátt fyrir tómahljóðið í söguþræðinum má vel hafa gaman af Man on Fire, sérstaklega ef maður er veikur fyrir hefndardrama og nýtur þess að sjá óþokka þjást en í bestu atriðum myndarinnar níð- ist Creasy heldur ruddalega á óvinum sínum.“ ÞÞ Girl Next Door „En myndin kemur bara nokkuð skemmtilega á óvart á vitsmunalega sviðinu, og það er hennar styrkur. Og hún er líka nokkuð fyndin og tónlistin er góð. Svo eru líka ágætis pælingar í henni, til dæmis um siðferði og pólitík.“ GS Anchorman Ef bíó á að leysa einhverjar lífsgátur þá er þessi mynd auðvitað tímaeyðsla. Það er ekkert merkilegt í henni. En ef fólk vill akkúrat sjá eitthvað þannig – svona sæmilegan fíflaskap með kæruleysislegu yfirbragði – er hægt að mæla með þessari. GS The Terminal „Spielberg kann auðvitað öðrum fremur að spila á tilfinningar áhorfenda og því er nánast óhjákvæmi- legt annað en að gleðjast og þjást með Viktori. Það eykur svo enn á samkenndina með persón- unni að Tom Hanks, sem á það til að vera hund- leiðinlegur, er í toppformi og gerir aðalpersónunni prýðileg skil.“ ÞÞ Dís „Myndin er í raun runa af misfyndnum og skemmtilegum atriðum sem mynda frekar veika heild. Dís skilur því ekki mikið eftir sig en er hins vegar fyrirtaks skemmtun og þar sem Íslendingum er ekkert sérstaklega lagið að gera skemmtilegt bíó er ekki hægt að segja annað en að Dís sé himnasending. Skemmtilegar persónur og skondn- ar uppákomur eru aðall myndarinnar sem fær fólk oft til þess að skella upp úr.“ ÞÞ Þórarinn Þórarinsson Guðmundur Steingrímsson [ SMS ] UM MYNDIRNAR Í BÍÓ DODGEBALL Gagnrýnandi Fréttablaðsins skemmti sér vel á myndinni en tók ekki bakföll af hlátri eins og hann hafði fyrir- fram reiknað með.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.