Fréttablaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 43
Þann 16. október verða liðin 120 ár frá stofnun Listasafns Íslands. Í tilefni tímamótanna stendur nú yfir í safninu sýning á forvörslu listaverka, Forvarsla, og á laug- ardaginn verður haldið málþing um varðveislu myndlistararfs- ins, þar sem fjallað verður um hvernig staðið er að innkaupum listaverka, söfnun og varðveislu íslenskrar myndlistar í dag. „Þetta eru tvö mál sem við ætlum að ræða; annars vegar söfnun og innkaup á íslenskri myndlist og svo hvernig við varðveitum menningararfinn,“ segir Ólafur Kvaran, safnstjóri Listasafns Íslands, og bætir því við að það sé tilvalið að ræða þessi mál á tímamótum í sögu safnsins. Ólafur segir að varðveislu- hlutverk Listasafnsins hafi ekki komið til sögunnar fyrr en nokkru eftir stofnun þess. „Safn- ið var stofnað í kringum gjöf frá Bjarna Benediktssyni sýslu- manni og var upphaflega safn norrænna listaverka. Safnið varð svo nátengt Þjóðminjasafninu í nokkra áratugi en árið 1928 er menntamálaráð stofnað og þá fær safnið sérstakar fjárveiting- ar til listaverkakaupa.“ Ólafur segir að þegar hugað sé að því hvernig myndlistarsag- an er varðveitt í stofnunum og söfnum fari fólk um leið að ræða pólitískar ákvarðanir eins og fjárveitingar til innkaupa. „Við höfum rúmlega 11 milljónir á ári til innkaupa og sú tala hefur ver- ið óbreytt í áratug.“ Ólafur segir að þessi upphæð dugi safninu ekki til að sinna hlutverki sínu eðlilega og það megi túlka skort- inn á fjárveitingum á þann veg að nokkurs skilningsleysis gæti hjá fjárveitingavaldinu. Peningarnir dugi engan veginn til að sinna varðveislu íslenskrar myndlist- arsögu. „Það má ekki gleyma mikilvægi þess að myndlistararf- urinn sé aðgengilegur þjóðinni og það má ganga svo langt að segja að það sé lýðræðisleg krafa þjóð- ar að hún hafi greiðan aðgang að listaarfi sínum.“ Ólafur segir að það sé mjög eðlilegt að vekja athygli á verð- veisluhlutverki safnsins á þess- um tímamótum og vekja athygli á því hversu mikilvægt það er að söfn hafi aðstöðu til þess að varð- veita menningararfinn. „Safnið á núna um 10.000 listaverk. Söfn- unin er stórt og mikilvægt verk- efni og það þarf að búa vel að þessum þætti í rekstri safnanna. Þetta er eitt af mörgum ósýnileg- um verkefnum í söfnunum en ég hef til dæmis verið spurður að því hvað við gerum eiginlega þegar við erum búin að setja upp sýningar.“ Málþingið fer fram í sal 3 í Listasafninu á morgun á milli klukkan 11 og 13 en frummælendur eru Eiríkur Þorláksson forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur, Níels Hafstein forstöðumaður Safna- safnsins, Svalbarðsströnd, Dr. Ólafur Kvaran safnstjóri Listasafns Íslands og Viktor Smári Sæmundsson forvörður Listasafns Íslands. 28 8. október 2004 FÖSTUDAGUR CHEVY CHASE Gamanleikarinn sem er eiginlega alveg hættur að vera fyndinn á afmæli í dag og er 61 árs. Ósýnilegu verkin eru miklvæg LISTASAFN ÍSLANDS: VERÐUR 120 ÁRA Í OKTÓBER „Ég er Chevy Chase og þú ert það ekki.“ - Minnimáttarkenndin er ekkert að flækjast fyrir afmælisbarni dagsins sem er mjög hress með að vera sá sem hann er. timamot@frettabladid.is AFMÆLI Guðrún Greipsdóttir, Klapparstíg 11, Njarð- vík, er 60 ára í dag. Hún og sambýlismað- ur hennar Sigurður Lárusson taka á móti ættingjum og vinum laugardaginn 9. októ- ber klukkan 15.30 í Sjálfstæðishúsinu Hólagötu 15, Njarðvík. Bryndís Hlöðversdóttir, alþingismaður, er 44 ára. ANDLÁT Sveinn Birgir Sigurgeirsson, Háaleitis- braut 18, Reykjavík, lést 1. október. Helgi Guðbjörnsson, Kárastöðum, Þing- vallasveit, lést 4. október. JARÐARFARIR 13.00 Hjálmar Sveinsson, fyrrum bóndi á Syðra-Vatni, Efribyggð, Skaga- firði, síðast til heimilis á Norður- götu 60, Akureyri, verður jarð- sunginn frá Mælifellskirkju. 13.30 Ari Árnason, frá Setbergi, Horna- firði, verður jarðsunginn frá Hafn- arkirkju. 13.30 Sighvatur Kristjánsson, Hjarðar- slóð 4c, Dalvík, verður jarðsung- inn frá Dalvíkurkirkju. 13.30 Valdimar Hildibrandsson, Dun- haga 17, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. 13.30 Minningarathöfn um Jóhann F. Sigurðsson, fyrrum svæðisstjóra Flugleiða í Bretlandi, verður hald- in í Dómkirkjunni. 15.00 Benjamín Magnús Sigurðsson, frá Eyjum, Strandasýslu, Engihjalla 11, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. ÓLAFUR KVARAN „Okkur er líka algerlega fyrirmunað að safna inn erlendri myndlist, sem er eðlilega mjög mikilvægt fyrir safn af þessu tagi. Það vantar því skilning á því hvernig menningararfurinn verður til og mikilvægi þess að stofnanir og söfn hafi aðstöðu og getu til að eignast þau verk sem talið er æskilegt að séu í vörslu þeirra.“ 8. október 1999 Ráðstefnan Konur og lýðræði við árþúsundamót hófst í Reykjavík en hana sóttu um 300 manns, þar á meðal Hillary Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna. Koma Hillary til Íslands vakti að vonum mikla athygli en hún staldraði við yfir helgi og flutti lokaávarp á ráðstefnunni en notaði tímann einnig til að kynnast landi og þjóð. Hún fór til Þingvalla í fylgd Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og þau gengu saman niður Almannagjá en Hillary sagði að það væri sér sérstök ánægja að heimsækja þennan stað sem væri tákn frelsis og lýðræðis. Á Þingvöllum færðu íslensk börn Hillary tvo íslenska hesta, Reimar og Spaða, sem Davíð Oddsson sagði að væru gjöf íslenskra barna til bandarískra barna. Hillary hafði ætlað að fljúga til Vestmannaeyja og heilsa upp á kvik- myndastjörnuna Keikó en hætt var við ferðina vegna veðurs þannig að forsetafrúin spókaði sig á Laugaveginum í staðinn og gaf sig á tal við vegfarendur. Á Reykjavíkurflakki sínu snæddi hún hádegisverð á Café París, keypti sér skó hjá Steinari Waage í Kringlunni, skoðaði handrit í Árnastofnun og fór um borð í víkingaskipið Íslending sem var þá bundið við festar í Reykjavíkurhöfn. HILLARY CLINTON Kom víða við er hún heimsótti Ísland í tengslum við ráð- stefnuna Konur og lýðræði árið 1999. ÞETTA GERÐIST RÁÐSTEFNAN KONUR OG LÝÐRÆÐI VAR SETT Í REYKJAVÍK Hillary ræðir konur og lýðræði MERKISATBURÐIR 1871 Eldsvoði brýst út í Chicago og eyðileggur 17.450 bygg- ingar. 250 manns láta lífið og 90.000 manns missa heimili sín. 1918 Alvin C. York liðþjálfi fellir 25 þýska hermenn nánast einn síns liðs og handtekur 132 til viðbótar í Argonne- skógi í Frakklandi. 1966 Bandaríkjastjórn lýsir því yfir að LSD sé hættulegt og ólöglegt efni. 1970 Sovéski rithöfundurinn Al- exander Solzhenitsyn hlýt- ur bókmenntaverðlaun Nóbels. 1982 Öll verkalýðsfélög eru bönnuð í Póllandi. 1996 Jóhannes Páll páfi II gengst undir vel heppnaða botn- langaskurðaðgerð. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Tómas Guðmundsson rafvirkjameistari, Hrafnistu Hafnarfirði, síðast til heimilis að Austurvegi 16 Grindavík verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 9. október kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda Ingeburg Guðmundsson. Tilkynningar um andlát og jarðarfarir eru velkomnar á síður Fréttablaðsins. Sími: 550 5000 Athafnamaðurinn Ármann Reynis- son gefur út fjórðu vinjettubókina sína á föstudaginn eftir viku. Vinjettum er sennilega best lýst sem örstuttum frásögnum sem hverfast oftar en ekki um eitt ákveðið höfuðatriði með það að leiðarljósi að sýna myndir af at- burðum. Ármann byggir sögur sín- ar stundum á eigin reynslu og hik- ar ekki við að vera gagnrýninn á sjálfan sig eða samfélagið ef svo ber undir. „Þetta hefur gengið frábærlega hjá mér og undrast það margir að mér takist að gefa út sjálfur og selja um 3.000 bækur á ári. Í ár ákvað ég að gefa út öskju fyrir Vinjettur 1 til 4 þannig að nú verð- ur til fyrsta vinjetturitröðin í ís- lenskum bókmenntum.“ Vinjettur Ármanns hafa vakið athygli út fyrir landsteinana og þannig hefur finnskt forlag ákveð- ið að g e f a ú t bæk- u r n - ar fjórar. Þær verða tvítyngdar en textinn verður bæði á finnsku og ensku. Finnarnir hafa því sama hátt á og Ármann því bækur hans eru bæði á íslensku og ensku en Martin Regal, dósent við Háskóla Íslands, hefur þýtt vinjetturnar. En hvernig rötuðu vinjetturnar inn á borð finnsks bókaútgef- anda? „Ég hef haft það til siðs að senda nokkrum valinkunn- um vinum mínum, bæði austan hafs og vestan, bækurnar til að fá viðbrögð. Einn af þeim er þekktur fjöllistamaður í Finn- landi og hann var svo hrifinn af vinjettunum að þau hjónin fóru að taka upp á því að lesa eina sögu á milli rétta í matarboðum og þau segja að ég hafi bjargað selskapslífinu hjá þeim. Einhvern tíma var finnskur útgefandi á meðal gesta og honum fannst vinjetturnar óvenju sérstakar og öðruvísi en allt annað sem hann hafði heyrt. Hann fékk bækurnar lánað- ar og ákvað að gefa þær út með mínu leyfi eftir að hann las þær. Ég bauð honum að velja úrval af sögum úr bókunum fjór- um til þess að gefa út í einni bók. Forlagið vildi gefa þær allar út og byrj- ar á fyrstu bókinni, sem ætti að vera tilbúin haustið 2005.“ ■ ÁRMANN REYNISSON „Flestir sem lesa bæk- urnar mínar vita ekki hver ég er og fyrir þeim eru þetta sögur. Þeir sem þekkja til mín líta kannski öðruvísi á frásagnirnar en ég tel mig vera að miðla lífsreynslu.“ Ármann hyggur á landvinninga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.