Fréttablaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 22
FÖSTUDAGUR 8. október 2004 Skattar og afkoma Í forsíðufrétt Fréttablaðsins 4. október „Hærri skattar og verri afkoma“ var vitnað í undirritað- an. Í stuttu samtali getur reynst erfitt að tryggja að ummæli séu sett fram í því samhengi sem viðmælandi hefur í huga. Þá er mikilvægt að rétt sé farið með flókin hugtök tengd opinberum fjármálum. Í þessari grein er leitast við að leiðrétta slíkan misskilning. Fjallað var um ummæli mín í erindi 30. september um að Ís- lendingar væru nálægt því að setja heimsmet í samneyslu sem hlutfall af landsframleiðslu, en það hlutfall fór yfir 26% árið 2003. Í fréttinni var ekki gerður greinarmunur á opinberum um- svifum í heild, sem námu um 44%, og samneyslunni. Rétt er að samneysla er stærsti einstaki hluti opinberra útgjalda, en aðr- ir útgjaldaliðir eins og vaxta- gjöld, tekjutilfærslur og fjár- munamyndun skipta einnig máli. Þá má nefna að opinber út- gjöld lækkuðu umtalsvert eftir að söfnunarkerfi lífeyris var tekið upp á Íslandi á sjöunda áratug síðustu aldar. Ef lífeyris- skuldbindingar væru að öllu leyti innan opinbera geirans, eins og enn tíðkast víða erlendis, væri hlutfall opinberra gjalda og tekna þeim mun hærra. Þá þarf að gera greinarmun á áhrif- um vaxandi útgjalda á skatt- byrði til lengri og skemmri tíma. Til skemmri tíma hefur vaxandi samneysla neikvæð áhrif á af- komu ríkissjóðs og hægt að mæta því án þess að auka skatt- byrðina. Undanfarinn áratug var aukinni samneyslu mætt með samdrætti í öðrum útgjöld- um ásamt tekjum af einkavæð- ingu. Á komandi árum má gera ráð fyrir minna svigrúmi til að skera niður önnur útgjöld eða að auka tekjur af einkavæðingu. Í því samhengi má gera ráð fyrir að áframhaldandi vöxtur sam- neyslu leiði til aukinnar skatt- byrði. Ummæli mín voru hins vegar um áhrif opinberra fjár- mála á hagstjórnina til skemmri tíma. Í því samhengi benti ég á að draga þarf úr samneyslu á komandi árum, sérstaklega ef skattar verða lækkaðir, til að op- inber fjármál hafi áhrif til að draga úr innlendri eftirspurn. Ef það er ekki gert er hætt við að vaxandi ójafnvægi í þjóðarbú- skapnum hafi alvarlegar afleið- ingar fyrir efnahagslífið, sér- staklega ef einkaneyslan heldur áfram að aukast langt umfram tekjur heimilanna. Þá var gefið til kynna að ég teldi að aukin skattbyrði hefði áhrif á flutning starfa til útlanda. Það er ekki rétt. Samkeppnisvandinn er al- farið tengdur háu raungengi krónunnar. Ef eitthvað er, hafa skattbreytingar undanfarinna ára verið jákvæðar og haft góð áhrif á starfsskilyrði fyrirtækja. Að lokum má nefna að Samtök iðnaðarins eru þakklát fyrir um- fjöllun fjölmiðla um mikilvægi þess fyrir þjóðarbúið að íslensk- um iðnfyrirtækjum í alþjóðlegri samkeppni verði tryggð viðun- andi rekstrarskilyrði á komandi árum. Höfundur er hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. BRÉF TIL BLAÐSINS FRAMSÓKNARFLOKKURINN Konur og a›rir jafnréttissinnar eru bo›nir velkomnir. Konur til áhrifa! Sau›árkrókur: Framsóknarhúsi› Su›urgötu 3 fimmtudaginn 7. október kl. 20.00 Akureyri: Framsóknarhúsi› Hólabraut 13 föstudaginn 8. október kl. 20.00 Húsavík: Gar›ar Kaupfélagshúsinu laugardaginn 9. október kl. 15.00 Egilssta›ir: Austursalurinn sunnudaginn 10. október kl. 20:00 Hornafjör›ur: Lækjarbrekka Nesjum mánudaginn 11. október kl. 20.00 Landssamband framsóknarkvenna hefur hafi› hringfer› um landi› me› yfirskriftinni Konur til áhrifa! Tilgangurinn er a› efla starf framsóknarkvenna til aukinna áhrifa í stjórnmálum. LANDSSAMBAND FRAMSÓKNARKVENNA Næstu fundir ver›a haldnir á eftirtöldum stö›um: Brotavilji Geirs Haarde Kristján Sig Kristjánsson skrifar: Ákvörðun Geirs Haarde um að endur- senda undirskriftalista nokkurra lög- manna til stuðnings tilteknum umsækj- anda um stöðu hæstaréttardómara er brot á lögum um ráðherraábyrgð nr. 4/1963, á stjórnsýslulögum nr. 37/1993, upplýsingalögum nr. 50/1996, og sennilega hegningarlög- um nr. 19/1940 vegna brotaviljans. Að auki eru þetta stórkostleg og ómæld réttarspjöll. Ástæðan fyrir því er sú að nýskipaður dómari við réttinn er fyrir bragðið orðinn vanhæfur í öllum mál- um, því að ætla má að hann sé einn af fáum sem veit hverjir skrifuðu undir nefndan lista. Því var haldið fram að virðulegur og vammlaus hæstaréttar- dómari, Guðrún Erlendsdóttir, hefði verið vanhæf að dæma í máli þar sem Landsbankinn var stefndi; flestum þótti þetta fjarstæða en Mannréttindadóm- stóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að stefnandi hefði mátt ætla hana van- hæfa vegna viðskipta eiginmanns hennar við bankann. Þar með varð jafn langsótt vanhæfi orðið gildandi réttur á Íslandi. Vanhæfi nýskipaðs dómara blasir við í þessu ljósi. Þetta er enn ein hefndargjöfin til lögmannsins, sam- þykki hans við þessa fáránlegu undir- skriftasöfnun var skot í fótinn og spái ég honum langvarandi ígerð í sárin. ÞORSTEINN ÞORGEIRSSON LEIÐRÉTTIR FRÉTT UM HAGSTJÓRN UMRÆÐAN HAGSTJÓRN Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og leggja orð í belg um efni Fréttablaðsins eða málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Ritstjórn áskilur sér rétt til að stytta aðsent efni. Einnig áskilur ritstjórn sér rétt til að birta aðsent efni að meginhluta á vefsíðu blaðsins, sem er Vísir.is, og vísa þá til þess með úrdrætti í blaðinu sjálfu.Vinsamlega sendið efni í tölvupósti á greinar@frettabladid.is. Þar er einnig svarað fyrirspurnum um lengd greina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.