Fréttablaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 2
2 8. október 2004 FÖSTUDAGUR
Pétur Blöndal leggur hefur lagt fram frumvarp:
Forsetaembættið verði lagt niður
STJÓRNMÁL Pétur H. Blöndal, al-
þingismaður Sjálfstæðisflokks-
ins hefur lagt fram frumvarp á
Alþingi þar sem lagt er til að
embætti forseta Íslands verði
lagt niður.
Í frumvarpinu felst breyting
á stjórnarskrá Íslands og þarf
því að samþykkja það á tveimur
þingum til að það öðlist sam-
þykki. „Tímasetningin er hárná-
kvæm,“ segir Pétur. „Það er lagt
fram nú til kynningar og um-
ræðu en síðan aftur í lok þessa
kjörtímabils og þá til samþykk-
is. Verði það gert verður það síð-
an aftur lagt fram að loknum
næstu kosningum.“
Með þessu móti yrði forseta-
embættið lagt niður 2008 þegar
kjörtímabili Ólafs Ragnars
Grímssonar lyki. „Nei, þetta er
ekki hefnd fyrir fjölmiðlafrum-
varpið, ég hef lengi verið þess-
arar skoðunar,“ segir Pétur.
Gert er ráð fyrir í frumvarpinu
að í stað synjunarvalds forseta
komi ákvæði þar sem 25% at-
kvæðisbærra manna geti krafist
þjóðaratkvæðagreiðslu. ■
SJÁVARÚTVEGUR Barist er fyrir því
á alþjóðavettvangi að fiskveiðar
með botnvörpu verði bannaðar.
Hópur sjávarlíffræðinga og for-
svarsmanna umhverfisverndar-
samtaka, sem kom saman til
fundar í Lundúnum í gær, full-
yrðir að veiðar með botnvörpu
valdi óbætanlegum skaða á
hafsbotninum og vistkerfi sjáv-
ardýra. Hópurinn vill að alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna
banni veiðarnar.
Um þessar mundir fjalla
Sameinuðu þjóðirnar um fisk-
veiðistjórnun og vonast hópur-
inn til þess að í nóvember, þegar
allsherjarþingið kemur saman,
banni samtökin botnvörpuveið-
ar í öllum heimshöfunum. Fyrr á
þessu ári undirrituðu 1.100 sjáv-
arlíffræðingar yfirlýsingu þar
sem hvatt var til þess að veiðun-
um yrði hætt vegna áhrifa þeir-
ra á umhverfið.
Botnvarpa er veiðarfæri sem
er dregið eftir hafsbotninum.
Aðallega notað af togurum en
einnig af smærri skipum. Fram
kom á fundinum í Lundúnum í
gær að við veiðar geti botn-
varpa brotið niður um eitt tonn
af kóralrifum á klukkustund.
Slík rif verða til á þúsundum ára
og eru talin griðlönd fiska og
hrigningastöðvar. Á fundinum
var áhrifum af veiðunum líkt
við að farið væri yfir hafsbotn-
inn á jarðýtu.
Í aflahefti liðins fiskveiðiárs,
sem Fiskistofa gaf út, segir að
botnvarpan sé mikilvægasta
veiðarfæri íslenskra skipa og í
hana hafi verið veidd rúm fjöru-
tíu prósent alls aflaverðmætis
sem dregin voru á land á fisk-
veiðirárinu.
Árni Matthiesen sjávarút-
vegsráðherra segir að illa
ígrundaðar upphrópanir, eins og
þær sem komu fram á fundinum
í Lundúnum, séu hættulegar al-
hæfingar. Hér á landi sé vitað af
viðkvæmum svæðum og þau séu
vernduð með veiðibanni. Hann
segir að með hafréttarsáttmála
Sameinuðu þjóðanna sé hverri
þjóð falin stjórnun á eigin fisk-
veiðisvæði og því geti samtökin
ekki sett allsherjarbann á veið-
arnar.
Hrafnkell Eiríksson, fiski-
fræðingur á Hafrannsókna-
stofnuninni, segir að stofnunin
hafi á undanförnum árum rann-
sakað áhrif botnvörpu á hafs-
botninn og að á þessu ári sé ver-
ið að kanna svæði með tilliti til
þess hvort botndýralíf hafi
breyst vegna veiðanna. Niður-
stöður rannsóknanna liggja ekki
fyrir.
ghg@frettabladid.is
Síbrotamaður:
Falsaði
lyfseðil
DÓMSMÁL Rúmlega þrítugur mað-
ur með langan sakaferil að baki
var dæmdur, í Héraðsdómi
Reykjavíkur, í fjögurra mánaða
fangelsi fyrir líkamsárás og
skjalafals.
Maðurinn var dæmdur fyrir
að veita manni nokkur hnefahögg
í andlitið þannig að hann nef-
brotnaði, marðist og bólgnaði í
andliti og tognaði á hálsi. Þá fals-
aði hann lyfseðil, í tölvu, á eitt
hundrað contalgin-töflur og
framvísaði í apóteki. Maðurinn
hefur hlotið tuttugu refsidóma og
nær sakaferill hans aftur til árs-
ins 1990. ■
„Ég ætla að vona að fólk brosi og
skemmti sér svolítið.“
Örn Árnason syngur í fyrsta sinn
með Íslensku óperunni í dag.
SPURNING DAGSINS
Örn, fara ekki bara allir að hlæja?
Geir H. Haarde:
Handvömm
og mistök
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra viðurkenndi í um-
ræðum um fjáraukalög á Alþingi í
gær að í nokkrum tilfellum hefðu
orðið „mistök“ og í öðrum tilfell-
um „handvömm“ af hans hálfu og
ráðuneytisins í undirbúningi fjár-
aukalaga.
Ráðherrann lét þessi orð falla
þegar Einar Már Sigurðarson,
þingmaður Samfylkingarinnar,
gerði athugasemdir við fjárauka-
lög. Undraðist hann að kostnaður
við Laxness-stofu á Gljúfrasteini
hefði hækkað um 800% úr 2,5
milljónum í 20. Einnig gerði hann
athugasemd við að í skýringum á
fjárveitingu til Snorrastofu segði
að menn hefðu hafið verkið í
trausti þess að þess yrði getið í
fjárlagafrumvarpi. Spurði Einar
Már hvort „menn“ gætu skammt-
að sér fé með þessum hætti. Sagði
fjármálaráðherra orðalagið „mis-
tök“ og mjög óheppilegt, en þarna
væri um eðlilega leiðréttingu að
ræða. ■
STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður vinstri grænna
gerði harða hríð að félagsmála-
ráðherra í umræðum utan dag-
skrár á Alþingi í gær um fjárhags-
stöðu sveitarfélaga. Sagði hann að
fjórðungur sveitarfélaga væru nú
undir smásjá eftirlitsmanna
vegna bágrar fjárhagsstöðu.
Sagði hann tómt mál að tala um
sameiningu sveitarfélaga við nú-
verandi aðstæður og niðurskurð-
ur til vegamála gerði það enn erf-
iðara en ella. „Nákvæmlega ekk-
ert“ væri í nýlegri yfirlýsing ríkis
og sveitarfélaga um tekjustofna-
nefnd. “Sveitarfélögin draga sí-
fellt stutta stráið.“
Árni Magnússon, félagsmála-
ráðherra mótmælti því að sveitar-
félög væru almennt á vonarvöl og
benti á að fjölmörg þeirra nýttu til
fullnustu tekjustofna sína. Átak
hefði verið gert til að efla sveitar-
stjórnarstigið og vilji væri til að
flytja 30 miljarða málefni fatlaðra,
aldraðra og hluta heilsugæslu til
sveitarfélaga ásamt tekjustofnun.
„Sveitarfélögin verða þá með 30-
40% samneyslunnar.“ ■
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Formaður Vinstri grænna segir tómt mál að tala um sameiningu sveitarfélaga miðað við
bága fjárhagsstöðu þeirra núna.
Hart deilt um sveitarfélög í utandagskrárumræðu á Alþingi:
Sveitarfélögin draga sífellt stutta stráið
Útvegsmenn:
Göngum vel
um náttúruna
SJÁVARÚTVEGUR Friðrik J. Arngríms-
son, framkvæmdastjóri Landsam-
bands íslenskra út-
vegsmanna, segir
veiðar með botn-
vörpu óskaðlegar
því búið sé að
banna þær þar
sem sjávarbotninn
sé viðkvæmur.
Rannsóknir hafi
verið gerðar á
hafsbotninum í
kringum landið
sem þurfi að auka
enn frekar.
Friðrik segir að botnvörpu-
veiðar séu nauðsynlegar því án
þeirra væri ekki hægt að nýta
marga fiskistofna. Því gangi ekki
að þessi veiðiaðferð verði bönnuð.
„Íslensk stjórnvöld, sjávarút-
vegsráðuneyti og utanríkisráðu-
neyti, verða að bregðast við
þessu á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna. Þetta er bara útópía
hjá erlendum umhverfisverndar-
samtökum. Fólk sem leggur
svona lagað til lifir greinilega á
öðru en fiskveiðum.“ ■
Kennaraverkfall:
Funda
áfram í dag
VERKFALL Sáttafundi kennara og
launanefndar sveitarfélaga lauk
laust fyrir klukkan tíu í gærkvöld
eftir að fundarhöld höfðu staðið frá
því snemma morguns. Deilendur
ráðgera að hittast um klukkan níu í
dag.
Birgir Björn Sigurjónsson, hjá
launanefnd sveitarfélaganna, vildi
ekki tjá sig um einstök efnisatriði
en sagði mikla vinnu vera að baki.
Þó væri niðurstaða ekki enn í sjón-
máli. „Við gerum ráð fyrir stífum
fundarhöldum. Þetta verkfall er
komið vel á þriðju viku og menn
þurfa að reyna að klára þetta ef
þess er nokkur kostur,“ sagði Birg-
ir að loknum fundi í gær. ■
UM BORÐ Í TOGARA
Barist er fyrir því á alþjóðavettvangi að Sameinuðu þjóðirnar banni mikilvægustu veiðar-
færi íslenskra skipa.
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
Framkvæmda-
stjóri LÍÚ vill að
íslensk stjórnvöld
bregðist við.
Vilja banna veiðar
með botnvörpu
Hópur líffræðinga og umhverfisverndarsinna vill að Sameinuðu þjóð-
irnar banni veiðar með botnvörpu. Tæplega helmingur þess aflaverð-
mætis sem íslensk skip landa er veiddur með botnvörpu.
PÉTUR BLÖNDAL
Verði frumvarpið sem Pétur hefur
lagt fram samþykkt verður forseta-
embættið lagt niður árið 2008.
Akureyri:
Eldur í
Brekkuskóla
LÖGREGLA Eldur kviknaði í kjallara
gamla gagnfræðaskólans á Akur-
eyri þar sem Brekkuskóli er nú til
húsa.
Vegfarandi tilkynnti lögreglu
um eldinn laust fyrir klukkan níu í
gærkvöld. Að sögn lögreglu tók
það slökkviliðið tiltölulega skamm-
an tíma að slökkva eldinn en nán-
ast allt húsið var fullt af reyk.
Verið er að gera húsið upp og
var það mannlaust þegar eldurinn
kviknaði. Ekki er vitað um elds-
upptök. ■