Fréttablaðið - 08.10.2004, Side 4
4 8. október 2004 FÖSTUDAGUR
Óljóst um formennsku Kristins H. í stjórn Tryggingastofnunar:
Verður af töluverðum launum
STJÓRNMÁL Kristinn H. Gunnars-
son hefur fengið greiddar um 93
þúsund krónur á mánuði fyrir
formennsku í tryggingaráði.
Hann fékk jafnframt rúmar 65
þúsund krónur á mánuði fyrir
formennsku í iðnaðarnefnd Al-
þingis.
Kristinn telur líklegt að hann
verði ekki skipaður í stjórn
Tryggingastofnunar eftir ákvörð-
un þingflokks Framsóknarflokks-
ins að útiloka hann úr öllum
nefndum á vegum þingsins. Ef
raunin verður sú verður Kristinn
því af launum sem nema 158 þús-
und krónum á mánuði.
Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra vill ekki svara til um
það hvort Kristinn verði áfram í
stjórn Tryggingastofnunar. Krist-
inn var formaður tryggingaráðs
sem nú hefur verið breytt í stjórn
Tryggingastofnunar og verður
hlutverkið hið sama og áður.
Lögbundinn frestur til að skipa
fulltrúa í stjórnina rann út 1. júní
síðastliðinn. Spurður hvers vegna
ekki hafi enn verið skipað í
stjórnina segir Jón að það hafi
dregist vegna þeirra breytinga
sem gerðar hafi verið á ráðinu.
Hins vegar verði gengið frá því á
allra næstu dögum að skipa full-
trúa í stjórnina, sem verða jafn-
margir og áður voru í ráðinu. ■
SVEITARSTJÓRNARMÁL Mörg mál hafa
komið inn á borð Húseigendafé-
lagsins vegna gjalþrota verktaka
sem fengu byggingalóðir í Graf-
arholti. Um þriðj-
ungur þeirra hef-
ur orðið gjald-
þrota samkvæmt
upplýsingum Þor-
steins Víglunds-
sonar, forstjóra
BM-Vallár.
S i g u r ð u r
Helgi Guðjóns-
son, formaður
Húseigendafé-
lagsins, segir að
þetta hafi alvar-
legar afleiðingar
fyrir kaupendur íbúða. ,,Við höf-
um séð dæmi um að kaupendur
hafi greitt að fullu en fái afhent
hálfkláruð hús eða gölluð. Þeir
þurfa svo sjálfir að greiða við-
gerðina.“ Hann segir að þetta hafi
verið sérstaklega þungt í Grafar-
holti. ,,Ég álykta að það sé að
miklu leyti vegna þess að verðið á
lóðum í hverfinu var svo hátt. Það
var uppboð á lóðunum og það skil-
aði miklu í borgarsjóð. Hins vegar
dró það dilk á eftir sér fyrir þá
sem keyptu þarna fasteignir.
Menn buðu hátt í lóðirnar sem
leiddi í fyrsta lagi til mikillar
hækkunar á söluverði íbúða og í
öðru lagi til þess að verktakar
pressuðu niður byggingarkostn-
aðinn og slökuðu þess vegna á
kröfum um gæði.“ Þetta hefur, að
sögn Sigurðar, leitt til þess að
mikið hefur borið á byggingar-
göllum í hverfinu. ,,Útboðsaðferð-
in hefur því þessa tvo ókosti; hífir
upp verðið og dregur úr gæðum.“
Sigurður segir að margir verk-
takanna hafi eflaust freistast til
að bjóða hærra verð fyrir lóðirnar
en skynsamlegt sé án þess að vita
hvaða verð þeir gætu fengið fyrir
fasteignirnar. ,,Hinn frjálsi mark-
aður virkar ekki á þessu sviði því
iðnaðarmenn og fyrirtæki verða
að tryggja sér lóðir til að þurfa
ekki að leggja niður vinnu. Svo
fara þeir í bankann sinn og fá lán
fyrir öllu saman vegna þess að
bankarnir virðast vera þeir einu
sem hafa allt sitt á þurru þegar
kemur til gjaldþrota.“
Þeir sem kaupa fasteignir
verða að fara í greiðslumat áður
en þeir fá fasteignalán. Sigurður
telur að setja þurfi verktaka í
svipað greiðslumat áður en þeir fá
að bjóða í lóðir þannig að þeir sýni
fram á að þeir geti staðið við
skuldbindingar sínar.“
ghg@frettabladid.is
Hæstiréttur:
Stálu fyrir
milljónir
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti
eins og hálfs árs fangelsi yfir
tveimur mönnum fyrir ýmis
þjófnaðar- og hylmingarbrot en
mildaði dóm yfir þriðja mannin-
um úr tólf mánuðum í átta
mánuði.
Mennirnir voru sakfelldir
fyrir fjölda innbrota, meðal ann-
ars í nokkrar tölvuverslanir, það-
an sem þeir stálu varningi og
peningum fyrir milljónir króna.
Þeir hafa einnig gerst sekir um
innbrot í fjölda bíla. Sakaferill
mannanna, sem er á aldrinum
milli tvítugs og þrítugs, nær aft-
ur nokkur ár. ■
NÆR ÞÚSUND ÚTSKRIFTIR 955
íraskir lögreglumenn voru út-
skrifaðir úr námi í gær að sögn
fjölþjóðaliðsins í Írak sem neitaði
þó að gefa upp hvar þeir hefðu
útskrifast. Vígamenn ráðast mjög
á lögreglu og hafa hundruð lög-
reglumanna og umsækjendur um
störf í lögreglunni látið lífið í
árásum þeirra.
SPRENGJA Á GRÆNA SVÆÐINU
Öryggisviðbúnaður var aukinn á
græna svæðinu í Bagdad í gær
eftir að heimatilbúin sprengja
fannst á veitingastað þar. Græna
svæðið er svæðið þar sem yfir-
stjórn fjölþjóðaliðsins í Írak og
írösk stjórnvöld hafa aðstöðu sína.
ASKJA Í VATNSMÝRINNI
Skemmdir hafa komið fram í klæðningu
náttúrufræðihúss Háskólans. Þær eru í
rannsókn þar sem húsið er nýlegt og end-
ingin þykir stutt.
Náttúrufræðihúsið:
Skemmdir í
rannsókn
NÝBYGGING Rannsókn á skemmd-
um í klæðningu náttúrufræðihúss
Háskóla Íslands er ekki lokið.
Ríkharður Kristjánsson, for-
stjóri Línuhönnunar, segir rann-
sóknina flókna og enn sé unnið að
niðurstöðum hennar. „Við höfum
tekið niður plötur og rannsakað
þær og dregið ýmsa sérfræðinga
að málinu,“ segir Ríkharður.
Eins og greint hefur verið frá
snýr rannsóknin á náttúrufræði-
húsinu Öskju að því að meta
skemmdir á klæðingunni, af hver-
ju þær stafi og hver beri ábyrgð á
þeim. ■
■ ÍRAK
Eiga aðgerðir forystu sjómanna
gegn Brimi rétt á sér?
Spurning dagsins í dag:
Á að taka harðar á heimilisofbeldi en
nú er gert?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
44%
56%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
Borgarráð:
Ósátt við
vinnubrögð
SVEITARSTJÓRNARMÁL Margrét Sverr-
isdóttir, áheyrnarfulltrúi Frjáls-
lynda flokksins í borgarráði, spurð-
ist fyrir um það á fundi ráðsins í
gær hvenær mætti vænta þess að
fyrirhugaðar stjórnkerfisbreyting-
ar yrðu kynntar fyrir borgarfull-
trúum og starfsfólki borgarinnar.
Hún sagði að í síðustu viku hefði
birst á forsíðum dagblaða fréttir
um að fyrirhugaðar væru stórfelld-
ar breytingar á stjórnkerfinu, þar á
meðal sameining íþrótta- og tóm-
stundaráðs og menningarmála-
nefndar. Margrét gagnrýnir það að
þessi áform hefðu ekki verið kynnt
með eðlilegum hætti. ■
LESTARSLYS Þrír starfsmenn ítalska
verktakafyrirtækisins Impregilo
meiddust þegar tvær lestir rákust
saman í aðgöngum þrjú við Kára-
hnjúkavirkjun í Hrafnkelsdal.
Slysið varð um klukkan tvö að-
faranótt fimmtudags og hlutu
mennirnir nokkra skurði og
skrámur af. Þeir voru fluttir á
sjúkrahús á Egilsstöðum til skoð-
unar.
Slysið vildi til vegna bilunar í
umferðarljósum í göngunum, að
sögn Ómars R. Valdimarssonar,
upplýsingafulltrúa Impregilo, en
vegna hennar fór lest inn í göngin
á meðan önnur var á útleið. Lest-
irnar fara hins vegar ekki hraðar
en 25 kílómetra á klukkustund
þegar mest er. „Það varð nánast
engin röskun á starfseminni
vegna þessa. Vögnunum sem fóru
út af sporinu var skipt út fyrir
nýja og tíminn sem
það tók er mældur í
mínútum frekar en
klukkustundum.“
Fróðir menn
telja að þarna í
göngunum hafi átt
sér stað fyrsta eig-
inlega lestarslys Ís-
landssögunnar þar
sem tvær lestir
rekast saman, en
samkvæmt upplýs-
ingum frá Árbæjar-
safni slasaðist ung
stúlka snemma árs
1913 þegar hún
klemmdist milli
vagna þegar lest
sem nota átti við
hafnargerð í Reykjavík var kynnt
almenningi. Á sama ári fóru líka
nokkrir vagnar lestaðir grjóti út
af sporinu og verkamenn meidd-
ust þegar þeir hröktust undan
grjótinu niður í fjöru. ■
Íslandspóstur:
Skordýr á
frímerkjum
FRÍMERKI Íslandspóstur hefur gefið
út nokkur ný frímerki. Í fyrsta skipt-
ið verður nú gefin út frímerkjaröð
með skordýrum og verður meðal
annars hægt að kaupa frímerki með
myndum af húshumlu annars vegar
og járnsmið hins vegar.
Skordýrafána landsins er frem-
ur fábrotin. Aðeins 1.300 skordýra-
tegundir hafa verið greindar á Ís-
landi samanborið við 18 til 25 þús-
und víða annars staðar í Evrópu. ■
HÚSHUMLA
Húshumla er ein af þremur hunangs-
flugnategundum sem eru hér á landi og
fannst fyrst árið 1979 í Reykjavík.
Í AÐGÖNGUM ÞRJÚ
Lestirnar af sporinu, þrír menn meiddust lítillega. Á innfelldu
myndinni má sjá hvernig lestirnar skruppu upp af teinunum.
Kárahnjúkavirkjun:
Bilun í ljósum olli lestarslysi
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
KRISTINN H. GUNNARSSON Á ÞING-
FLOKKSFUNDI
Ef Kristinn verður ekki skipaður formaður
stjórnar Tryggingastofnunar verður hann af
launum sem nemur 158 þúsund krónum á
mánuði vegna ákvörðunar þingflokks
Framsóknarflokksins að útiloka hann úr
öllum nefndum.
Útboð hækkaði verð
og dró úr gæðum
Formaður Húseigendafélagsins segir erfitt ástand í Grafarholti vegna
gjaldþrotahrinu verktaka. Telur útboðsaðferð borgarinnar hafa leitt til
þess. Vill að verktakar fari í greiðslumat áður en þeir bjóða í lóðir.
SIGURÐUR
HELGI
GUÐJÓNSSON
Vill fækka gjald-
þrotamálum með
því að senda verk-
taka í greiðslumat.
GRAFARHOLT
Um þriðjungur verktaka sem fékk úthlut-
að lóðum í hverfinu varð gjaldþrota.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA