Fréttablaðið - 08.10.2004, Page 17
MENNTAMÁL Fyrirtæki og stofnanir
leggja um 100 milljónir í rekstur
Háskóla Íslands, ýmist með bein-
um framlögum eða með kostun
einstakra kennslugreina. Prófess-
or við viðskipta- og hagfræðideild
vill að fyrirtæki sem styrkja skóla-
starf fái sérstakar skattaívilnanir.
Nýlega gerðu Bakkavör Group
og viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands með sér sam-
starfssamning þar sem fyrirtækið
styrkir rannsóknir og kennslu í
frumkvöðlafræðum við deildina.
Samningurinn gildir í þrjú ár og á
þeim tíma leggur Bakkavör deild-
inni til 15 milljónir króna. Að sögn
Ágústs Einarssonar, prófessors
við viðskipta- og hagfræðideild,
er um tímamótasamning að ræða
en deildin hefur algerlega frjálsar
hendur um ráðstöfun fjárins.
Til viðbótar beinum fjárfram-
lögum þekkist að fyrirtæki greiði
laun kennara sem kenna fög sem
þau hafa sérstakan áhuga á. Ágúst
hafnar því að slíkir samningar
geti mögulega
skaðað sjálf-
stæði skólans.
„Um slíka styr-
ki eru gerðir
sérstakir samn-
ingar þar sem
er algjörlega
tryggt að fyrir-
tæki hafi engin
áhrif hvað ver-
ið er að gera í
einstökum at-
riðum með
þessa peninga.
Fyrirtækin gera þetta af hug-
sjón,“ segir Ágúst en bætir þó við
að þau geti jafnframt haft af
þessu hag þar sem rannsóknir af
ýmsu tagi geta nýst þeim. Hann
telur á Háaskólinn sé að fá um 100
milljónir króna með þessum hætti
inn í rekstur skólans.
Erlendis er löng hefð fyrir því
að háskólar og atvinnulíf hafi með
sér samstarf en aðeins á síðustu
árum hafa íslenskir háskólar tek-
ið við sér í þessum efnum. Ágúst
telur að stjórnvöld eigi að huga að
því að veita fyrirtækjum og stofn-
unum sem leggja fé til háskóla
einhver konar skattaívilnanir en
slíkt hefur víða gefið góða raun.
sveinng@frettabladid.is
Alþjóða
geðheilbrigðisdagurinn
haldinn laugardaginn 9. október
Þema dagsins er:
Samhliða raskanir - Tengslin milli líkamlegrar og andlegrar heilsu.
Dagskráratriði í Tjarnarsal
Ráðhússins.
Kynnir: Egill Helgason
1. Opnunarávarp; Frú Vigdís Finnbogadóttir
verndari dagsins.
2. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra flytur ávarp.
3. Viðar H. Eiríksson flytur erindi um tilurð og
tilgang Qi gong æfinga.
4. Daði Kjartansson trúbador.
5. Hulda Jeppesen sjúkraþjálfari: ,,Heilbrigð sál í
hraustum líkama”.
6. Kór Fjölmenntar.
7. Lýðheilsustöð "Geðrækt": Hreyfingin eflir an-
dann- gefðu þér tíma. Ingibjörg B. Jóhannesdóttir
formaður Kvennahlaupsnefndar ÍSÍ afhendir
formlega bækling sem gefin er út í krafti sam-
starfs ÍSÍ og Lýðheilsustöðvar.
8. Hljómsveitin 101 Reykjavík.
9. “Daganna kvæðakver”. Guðmundur Haraldsson
les ljóð úr nýútkominni ljóðabók Leifs Jóelssonar
skálds.
10. Hjörleifur Valsson fiðluleikari og félagar.
11. Hljómsveitin Sinus.
12. Steindór Andersen kvæðamaður.
Dagskrá í Reykjavík:
10.00-13:00: Þunglyndi: Sálfræðilegt sjónar-
horn. Fræðsluerindi sérfræð-
inga í klínískri sálfræði í sal 3 í
Háskólabíói, aðgangseyrir kr.
1000.-
13.00: Geðhlaup í Nauthólsvík.
14.30: Upphitun göngu við Hlemm.
15.00: Gengið af stað niður Laugaveg.
Gengið verður með áletraðar
blöðrur ,,sleppum grímunni”.
15.45: Blöðrunum sleppt við
Ráðhúsið
16.00-18.00: Dagskrá í Tjarnasal Ráðhús-
sins.
Styrktaraðilar dagsins eru:
Til frekari upplýsinga um alþjóða geðheilbrigðisdag-
inn bendum við á eftirfarandi vefslóðir:
www.wmhday.net eða www.wfmh.org.
FSKS
Félag sálfræðinga
í klínískri sálfræði
18 8. október 2004 FÖSTUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Case Van Kleef, al-
þjóðaforseti Kiwanishreyfingar-
innar, afhenti Jóni Kristjánssyni
heilbrigðisráðherra K-lykilinn,
barmmerki Landssöfnunar hreyf-
ingarinnar, í Alþingishúsinu í gær.
Afhendingin markaði upphaf
fjögurra daga fjársöfnunar undir
kjörorðunum Lykill að lífi. Ágóð-
inn rennur annars vegar til Geð-
hjálpar og hins vegar til Barna- og
unglingageðdeildar Landspítalans
(BUGL). K-lykillinn verður seldur
um allt land dagana 7.-10. október.
Markmiðið með söfnuninni er
annars vegar að rjúfa einangrun
geðsjúkra á landsbyggðinni og
hins vegar að styðja við uppbygg-
ingu göngudeildar BUGL. Tíðni
geðraskana hefur hækkað á liðn-
um árum og eru geðraskanir nú
algengasta orsök örorku hér á
landi.
BUGL hefur búið við húsnæð-
isskort undanfarin ár. Er að-
kallandi að bæta úr þeim vanda og
kemur fé sem safnast í góðar
þarfir þar. Með sínum skerf söfn-
unarfjárins hyggst Geðhjálp rjúfa
einangrun geðsjúkra á lands-
byggðinni, meðal annars með
fræðslu- og tengslaneti. ■
Landlæknir:
Gallað bólu-
efni ekki hér
HEILBRIGÐISMÁL Bóluefnið Fluvirin
er ekki notað hér á landi, að sögn
starfsmanna Landlæknis.
Umrætt bóluefni hefur verið
innkallað af markaði vegna ófull-
nægjandi framleiðslu. Lyfjastofn-
un upplýsir að það verði ekki á
markaði hér fyrir árið 2004. Eng-
in ástæða sé því til að hafa
áhyggjur af þeim bóluefnum sem
séu í notkun á Íslandi í haust. ■
BLAIR Í EÞÍÓPÍU
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, er í
Eþíópíu til að kanna aðstæður þar. Hann
hefur beitt sér fyrir því að ríki heims beini
sjónum sínum í auknum mæli að Afríku
og hjálpi til við uppbyggingu þar.
K-LYKILLINN
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra tók við K-lyklinum úr hendi Case Van Kleef, alþjóða-
forseta Kiwanishreyfingarinnar.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Sækir í vaxandi mæli í sjóði fyrirtækja og stofnana.
Landssöfnun Kiwanishreyfingarinnar hafin:
Stækkun húsnæðis
fyrir geðsjúk börn
ÁGÚST
EINARSSON
“Fyrirtækin gera
þetta af hugsjón.”
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
DÆMI UM STYRKVEITINGAR
Þjóðkirkjan: greiðir hluta af söng-
námi guðfræðinema
Rauði kross Íslands: greiðir laun
kennara í sjálfboðastarfsfræðum inn-
an félagsráðgjafar
Ítalska ríkið: greiðir laun kennara í
ítölsku
Þjóðskjalasafnið: greiðir laun kenn-
ara í skjalafræðum
Happdrætti Háskóla Íslands: greiðir
laun kennara í sálfræði
Veðurstofa Íslands: greiðir laun
kennara í veðurfræði
Umhverfisráðuneytið: greiðir laun
kennara í dýrafræði
Hugbúnaðarfyrirtækið EMR: greiddi
til ársins 2003 laun kennara í upp-
lýsingatækni á heilbrigðissviði
Orkuveita Reykjavíkur: greiddi til
skamms tíma laun kennara í varma-
fræðum
Landsvirkjun: greiddi til ársins 2003
laun kennara í umhverfisverkfræði
Hugsjónin færir Háskóla
Íslands um 100 milljónir
Fyrirtæki og stofnanir styrkja starfsemi Háskóla Íslands í æ ríkari mæli, bæði með launagreiðsl-
um kennara og beinum fjárframlögum til deilda. Ljóst er að um talsverða fjármuni er að ræða
þótt heildarupphæðin sé ekki ljós.
BÓLUEFNI
Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af inflú-
ensubóluefnunum hér á landi í haust.
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti
dóm Héraðsdóms Vesturlands
yfir pilti sem dæmdur var í sex
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir tvö kynferðisbrot gegn
þrettán ára stúlku. Pilturinn var
sjálfur rúmum þremur árum eldri
en stúlkan þegar brotin áttu sér
stað.
Þótti dómnum nægjanlega sann-
að að pilturinn hefði gerst brotleg-
ur gegn stúlkunni þar sem honum
átti að hafa verið ljóst að stúlkan
væri aðeins þrettán ára gömul.
Bótakröfu var vísað frá í héraði
þar sem kröfunni hefði átt að beina
að lögráðamanni piltsins þar sem
hann var sjálfur ólögráða. ■
Hæstiréttur:
Skilorð fyrir kynferðisbrot