Fréttablaðið - 08.10.2004, Page 26

Fréttablaðið - 08.10.2004, Page 26
Nú þegar haustar og kólnar í veðri er tímabært að hækka á ofnunum. Ef það dugar ekki á köldum haustkvöldum er ekki vitlaust að blanda sér einn Irish Coffee. Fá viskí henta betur í írska kaffið en hið 12 ára gamla írska viskí Tulla- more Dew. Það virkar sérstaklega vel í kaffi þar sem það er flauelsmjúkt með keim af vanillu. Finna má mjúkan malt- ilm með angan af kryddi, byggi, sítrónu og brenndum viði tunnanna. Var valið besta blandaða írska viskíið í keppninni „San Francisco World Spirit Competition“. Verð í Vínbúðum 3.190 kr. Tullamore Dew: Flauelsmjúkt viskí Írskt með kaffinu Vín frá þýska framleiðandanum Moselland hafa fengist í Vínbúðum hérlendis um tveggja ára skeið og notið hratt vaxandi vinsælda. Eru þau nú meðal sölu- hæstu vína og hafa átt stóran þátt í aukinni hvítvínsneyslu hjá landanum. Mosel- land er samvinnuvíngerð bænda í Móseldalnum og eru vínin dæmigerð þýsk hvítvín, fersk, auðdrukkin og fremur sæt. Flöskurnar frá Moselland hafa vakið mikla athygli fyrir hönnun. Vinsælustu vínin frá Mosel- land hérlendis hafa verið Ars Vitis (vínið í „gluggaflösk- unni“) og Avantgarde (vínið í bláu flöskunni). Nú fæst Moselland einnig í 3 lítra köss- um á 2.490 kr. Er vínið það ódýrasta í Vínbúð- um og umreiknað í flöskuverð, jafngild- ir verðið á kassa- víninu því að hver flaska kosti 622 krónur. Verð í Vínbúðum 2.490 kr. í 3L kössum. Moselland: Ódýrasta léttvínið í Vínbúðum Vín vikunnar 3FÖSTUDAGUR 8. október 2004 Í tilefni af komu víngerðardrottningarinnar Maríu Martinez hingað til lands á dögunum, hefur meistari Siggi Hall á Óðinsvéum staðið fyrir spænskum sælkeradögum á veitinga- staðnum. Hefur spænska veislan verið feikilega vinsæl og vegna mikilla vinsælda verður henni fram haldið um helgina. Þar er boðið upp á vínin hennar Maríu með matnum. Auk Montecillo-vína er boðið upp á Osborne-sérrí og portvín en Montecillo er í eigu Osborne-vínfyrirtækisins sem flestir þekk- ja á nautinu sem er einkennistákn þess. Montecillo Reserva, sem er það vín sem einna mesta athygli hefur vakið undan- farið, liggur mitt á milli Crianza og Gran Reserva og er á hag- stæðu verði. Montecillo Reserva er geymt á frönskum eikar- tunnum í 14-15 mánuði. Fellur vel að flestu grilluðu kjötmeti. Einnig á það vel við með saltfiskréttum. Verð í Vínbúðum 1.390 kr. Montecillo: Spænskir dagar framlengdir Spænskir dagar Ný pökkunarvél: Heldur kaffinu fersku Nýr vélbúnaður til kaffipökkunar hefur verið settur upp í fram- leiðsludeild Te og kaffis. Hann er þeim eiginleikum gæddur að varðveita algerlega ferskleika kaffisins sem fer í pokana. Undan- farin ár hefur fyrirtækið aðallega selt kaffi innan fyrirtækisins og á önnur kaffihús en nú verður hringurinn stækkaður og herjað á verslanir. Eitthvað fyrir unnendur góðs kaffis að hlakka til. ■ Eftirréttur Ólympíufaranna: Bæði þéttur og frískandi Kokkalandsliðið er á leið til Þýskalands að taka þátt í Ólymp- íuleikum í matreiðslu. Þessi dýrðlegi desert verður hluti af framlagi þess. Uppskriftin er miðuð við 10 manns. Súkkulaðisouffle með fram- andi ávöxtum og engifer bor- ið fram með mangó ískrapi Súkkulaðisouffle 300 g dökkt súkkulaði (helst 72% kakóinnihald) 50 g eggjarauður 300 ml mjólk 20 g maísmjöl (maizena) 200 g eggjahvíta 80 g sykur Súkkulaðið er brætt og tekið af hitan- um. Mjólk og maísmjöl er soðið saman í potti, bætt í brætt súkkulaðið og hrært vel í. Næst eru eggjarauðurnar hrærðar og settar saman við. Í lokin er stífþeytt- um eggjahvítum með sykrinum bætt varlega í. Kremið er sett í smjörsmurðar skálar sem er búið að strá sykri innan í. Bakað við 200˚C í 10 mín og borið fram heitt með ávöxtum og ískrapi. Framandi ávextir 100 g mangó 50 g papaya safi úr tveimur ástríðuávöxtum söxuð mynta 2 matarlímsblöð 50 g sykur Ávextirnir eru saxaðir. Matarlímið er leyst upp í safanum sem hellt er í form. Ávöxtunum raðað ofan á. Engiferkrem 50 g Tanariva mjólkursúkkulaði 100 ml rjómi 100 ml mjólk 2 eggjarauður 20 g sykur 1 lítill hnúður engifer 3 matarlímsblöð Soðið er upp mjólk, sykri og engifer. Tekið af hitanum og hrærðum eggjar- auðunum bætt í og hrært vel í á með- an. Matarlímið sett í og látið leysast upp. Súkkulaðið saxað og mjólkur- blandið hrært út í. Loks er þeyttum rjóma bætt í. Sett í form og kælt. Mjólkursúkkulaðikrem 100 g Jiavra mjólkursúkkulaði 100 ml mjólk 30 g sykur 50 ml mjólk 2 matarlímsblöð Rjóminn, sykurinn og matarlímið er leyst upp yfir hita, bætt yfir saxað súkkulaðið og svo er bætt í þeyttum rjóma, kælt í formi og borið fram undir engiferkremi. Mangó ískrap 500 ml vatn 500 ml mangó mauk (ferskur mangó maukaður í matvinnsluvél) 200 g sykur 50 g glúkósi Allt unnið saman í matvinnsluvél. Fryst í ísvél eða í stálskál (þá þarf að hræra reglulega í vökvanum með þeytara.)

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.