Fréttablaðið - 08.10.2004, Side 38

Fréttablaðið - 08.10.2004, Side 38
11 ATVINNA/TILKYNNINGAR F í t o n / S Í A REYKJANESVIRKJUN Smiðir eða smíðahópar / Vanir menn á byggingakrana / Verkamenn vanir byggingavinnu Eykt óskar eftir starfsmönnum vegna byggingar Reykjanesvirkjunar. Mikil vinna framundan, möguleiki á gistingu á vinnustað. Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Magnússon staðarstjóri í síma 822-4484, eða með tölvupósti á hm@eykt.is Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar: Starfsmenn við nætur- vörslu á heimili fyrir heimilislausar konur. Starfsmaður ber ábyrgð á móttöku og þjónustu við notendur heimilisins auk almennrar umsjónar. Um er að ræða 75% stöður. Menntun og hæfniskröfur: - Almenn menntun - Reynsla af störfum með fólki sem á við geðræn og/eða félagsleg vandamál að stríða mjög mikilvæg - Umburðarlyndi og hæfni í mannlegum sam skiptum er skilyrði - Stundvísi og skipulagshæfni Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf strax. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Eflingar. Umsóknarfrestur er til 15. október 2004. Upplýsingar veitir Brynhildur Barðadóttir verkefnisstjóri í síma 545 0404 Umsóknir sendist til: Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands b.t. Brynhildar Barðadóttur Laugavegi 120, 4. hæð, 104 Reykjavík eða netfang brynhildurb@redcross.is Hvað eru lotugræðgi og lystarstol, hver eru einkennin, hver er orsökin, hvað er til ráða ? Opinn dagur - Opið hús Allir velkomnir Laugardaginn 9. október frá kl. 14-16 verður Spegillinn með opið hús í Hressó (Hressingaskálanum) Austurstræti. Dagskrá - Varaformaður Spegilsins, Kolbrún Marels dóttir kynnir samtökin og starfsemi þeirra og heldur stutta tölu um þróun samtakanna. Fyrirlestrar 1. Fulltrúi frá Barna- og unglingageðdeild - BUGL - kynnir meðferðarúrræði sem í boði eru fyrir sjúklinga undir 18 ára aldri. 2. Fulltrúi frá Teyminu á geðdeild Landspítala Háskóla sjúkrahúss kynnir meðferðarúrræði sem í boði eru fyrir sjúklinga eldri en 18 ára. 3. Aðalheiður Elva Jónsdóttir, Listmeðferðafræðingur ræðir um ný úrræði í meðferð sjúkdómsins. 4. Þórhildur Sveinsdóttir, Iðjuþjálfi segir frá uppsetningu nýrrar deildar og kynnir meðferðaúrræði sem gefið hafa góða reynslu í Noregi. Hver fyrirlesari mun tala í 10-15 mínútur, eftir það munu þeir ásamt stjórnarmanni frá Speglinum sitja fyrir svörum. - Skráning nýrra félagsmanna - Skráning sjálfboðaliða í nefndarstörf - Kosning nýrrar stjórnar - Opnar umræður Stjórn Spegilsins hvetur alla til að skrá sig í félagið og starfa með samtökunum að aukinni fræðslu og forvörn- um, sem og bættri þjónustu við átröskunarsjúklinga og aðstandendur þeirra. http://www.spegillinn.is spegillinn@talnet.is BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219 Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Auglýsing um breytingar á deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyt- ingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að breytingum á deiliskipulags- áætlunum í Reykjavík. Skútuvogur 2. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar að Skútuvogi 2. Tillagan gerir ráð fyrir að byggður verði bíla- stæðapallur og rampur og skal bygging vera innan byggingareits sem sýndur er á upp- drætti. Að öðru leyti gildir sama deiliskipulag og samþykkt var í borgarráði 1. febrúar árið 2000 ásamt breytingu á lóðarstærð sem samþykkt var í borgarráði 21. maí 2002. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Bíldshöfði 6. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar að Bíldshöfða 6. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að lóð stækki til suðurs frá núverandi lóðarmörkum um 907,5 m2, byggt verður í framhaldi af núverandi byggingu innan marka nýs byggingarreits, bygging verður ein hæð og gengur inn landið til suðurs eins og núverandi bygging og gert er ráð fyrir bílastæðum á þaki nýbyggingar. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Elliðaárdalur, settjarnir. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Sævar- höfða. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að gerðar verði settjarnir neðan við Sævarhöfða til móts við Sævarhöfða 2, bílasölu. Með framkvæmdinni mun útrásum fækka því útrásir II, III og IV verða aflagðar og ekki mun verða hróflað við göngustígum. Til að hreinsa botnset verður akfær leið frá Sævarhöfða á milli stóru tjarnanna og þeirrar minni. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Naustavogur 15, Snarfari. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi á félags- svæði Snarfara við Naustavog. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að byggingareitur fyrir viðgerðarskemmu er stækkaður úr 300m2 í 1600m2 og að hæsti punktur á þaki við- gerðarskemmu verði ekki hærri en 7m yfir aðalgólfi. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 08:20 – 16.15, frá 8. október til og með 19. nóvember 2004. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hags- muna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 19. nóvember 2004. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan til- skilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 8. október 2004 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.