Fréttablaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 40
25FÖSTUDAGUR 8. október 2004
Óskar Magnússon hefur verið ráð-
inn forstjóri Tryggingamiðstöðvar-
innar. Hann tekur við starfinu 15.
nóvember af Gunnari Felixsyni,
sem gegnt hefur starfinu frá 1991.
„Það er ánægjulegt að fá þetta
tækifæri. Þetta er afar traust og
gott fyrirtæki sem hefur verið í
góðum höndum og þess vegna er
það töluvert mikil áskorun að halda
áfram því góða starfi sem þar
hefur verið unnið,“ segir Óskar
Magnússon.
Hann segir þennan vettvang
vera af öðrum toga en hann hafi
áður fengist við. Óskar lét af störf-
um sem forstjóri Og Vodafone nú
um mánaðamótin en hann hafði
stýrt uppbygginu þess eftir sam-
einingu Tals og Íslandssíma. „Öll
viðskipti eru frekar lík þegar upp
er staðið,“ segir hann.
Á það hefur verið bent að þetta
sé í þriðja sinn sem Óskar skiptir
um starfsvettvang eftir að Jón Ás-
geir Jóhannesson og fyrirtæki hon-
um tengd hafi komið að eignarhaldi
á félögum þar sem Óskar hefur
starfað. Óskar segir þetta vera
spaugilega tilviljun en samskipti
þeirra Jóns Ásgeirs hafi verið með
miklum ágætum. „Þessi fyrirtæki
eru öll keypt fyrir metfé þannig að
ég hlýt að vera ánægður með það,“
segir Óskar. ■
Valdamest í
viðskiptum
Meg Whitman, forstjóri upp-
boðsvefsins eBay, er nú talin
valdamesta konan í bandarísku
viðskiptalífi samkvæmt tímarit-
inu Fortune. Whitman veltir úr
sessi forstjóra tölvuframleið-
andans HP.
Fyrirtækið hefur vaxið hratt
á undanförnum árum og skilaði
tvöfalt meiri hagnaði á síðasta
ársfjórðungi en sérfræðingar á
markaði höfðu gert ráð fyrir.
Í sjötta sæti á listanum var
sjónvarpsstjarnan Oprah Win-
frey en hún rekur viðamikið
fyrirtæki í kringum sjónvarps-
þættina sína vinsælu.
Whitman varð forstjóri eBay
árið 1998 eftir að hafa meðal
annars starfað við markaðssetn-
ingu hjá leikfangaframleið-
andanum Hasbro og hjá Walt
Disney.
Whitman er 47 ára gömul og
situr einnig í stjórn stórfyrir-
tækisins Procter & Gamble. ■
VALDAMESTA KONAN Meg Whitman er
að áliti tímaritsins Forbes valdamesta kon-
an í bandarísku viðskiptalífi. Hún hefur
stýrt uppboðsfyrirtækinu eBay frá árinu
1998 með miklum árangri.
ÓSKAR MAGNÚSSON Tekur við sem forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar 15. nóvember.
Tekur við sem forstjóri TM
SAMSTILLTUR HÓPUR Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, lagði sitt af mörk-
um við að koma fyrsta pakkanum í nýjar höfuðstöðvar Samskipa.
Starfsmenn Samskipa mynduðu
keðju frá Vöruhúsi A við Holta-
bakka að nýbyggingu félagsins
við Barkarvog og selfluttu þang-
að pakka – til að sýna á táknræn-
an hátt að flutningar séu nú
formlega hafnir á allri starfsemi
Samskipa í nýja húsið.
Hratt og örugglega gekk
pakkinn frá Pálmari Óla Magn-
ússyni framkvæmdastjóra við
Vöruhús A, um hendur starfs-
mannanna í röðinni, þar á meðal
stjórnarformannsins Ólafs
Ólafssonar, og endaði svo í hönd-
um Knúts G. Haukssonar for-
stjóra. Þar var pakkinn skannað-
ur inn í nýja vörustýringarkerf-
ið, sem heldur utan um alla starf-
semi Vörumiðstöðvar Samskipa,
og því næst fluttur með lyftara á
sinn rétta stað í húsinu. Svo
mannfrek flutningaleið verður
vart notuð í bráð, en með ný-
byggingunni eykst hagræðið í
flutningum félagsins. ■
Samskip í nýtt hús