Fréttablaðið - 08.10.2004, Blaðsíða 61
46 8. október 2004 FÖSTUDAGUR
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
HRÓSIÐ
Fókus fylgir DV
í
dag
01 7.10.2004
13:37 Page 3
Igore
Bubbasonur
Maríus
Lífið
eftir
vinnu
og miklu
meira til
-
-
-
...fær Viggó Sigurðsson fyrir að
taka íslenska landsliðið að sér.
Vonandi nær hann að rífa það
upp fyrir næsta stórmót.
Blindsker er ný heimildarmynd
um tónlistarmanninn Bubba
Morthens sem frumsýnd verður í
kvöld. Um er að ræða stærstu
opnun á heimildarmynd á Íslandi
en hún er sýnd í Smárabíói, Regn-
boganum og Borgarbíói Akureyri.
Kvikmyndafélagið Poppoli fram-
leiðir þetta umfangsmikla verk-
efni sem rekur sögu Bubba frá
æskuárum til dagsins í dag.
Leikstjóri myndarinnar er
Ólafur Jóhannesson, Ólafur Páll
Gunnarsson hafði umsjón með
handritsgerð, Ragnar Santos sá
um kvikmyndatöku og Benedikt
Jóhannesson um klippingu.
„Okkur langaði að gera mynd
um þetta risafyrirbæri sem
Bubbi er og skapa sterkt og
fallegt verk fyrir íslensku þjóð-
ina, sem hann hefur svo oft vakið
upp af værum svefni,“ segir
Ólafur Jóhannesson. Okkur hefur
líka fundist þörf á að kynna Utan-
garðsmenn, Egó og Das Kapital
betur fyrir yngri kynslóðinni
sem virðist þekkja þá lítið sem
ekkert.“ Myndin hefur tekið þrjú
ár í framleiðslu og endaði sem
100 mínútna löng heimildar-
mynd. Í myndinni segir Bubbi
sjálfur frá lífshlaupi sínu og var
sonur hans, Brynjar Úlfar
Morthens, fenginn til að leika
hann í myndskeiðum sem sýna
frá æsku hans.
„Á þessum langa framleiðslu-
tíma tókst okkur að grafa upp
mjög mikið af efni úr öllum átt-
um. Við fengum til dæmis efni
frá Grænlandsferð hans frá ár-
inu 1990 sem ekki hefur sést
áður. Einnig var Bárður Örn
Bárðarson okkur ómetanleg stoð
og stytta varðandi vinnslu safna-
efnis.Í myndinni er hvergi dauð
stund og upphaflegt markmið var
að hún væri skemmtun út í
gegn,“ segir Ólafur. „Óli Palli var
leiðsögumaður okkar um skerja-
garð Bubba. Hann sá til þess að
næmni mín, Ragnars og Bene-
dikts væri með hæsta móti þegar
kom að útfærslunni, enda veit Óli
Palli allt um Bubba. Hann andar,
sefur og mígur sem goðið sjálft,“
segir Ólafur.
Ólafur og Ragnar eru svo að
fara til Taílands að klára að vinna
mynd um buddhamunk. Sú mynd
hefur tekið um átta ár í fram-
leiðslu, fjallar um mann sem
kastaði kuflinum eftir 16 ár sem
munkur, giftist svo og var venju-
legur maður í 4 ár en hefur nú
gerst munkur aftur.
hilda@frettabladid.is
Ari Þór Arnbjörnsson, nemandi í
Iðnskólanum í Reykjavík, fram-
kvæmdi heldur óvenjulegan
hrekk á dögunum. Gerði hann sér
lítið fyrir og límdi 5.000 gula
post-it minnismiða vítt og breitt
um íbúð vinar síns, Stefáns. Verk-
ið tók þrjú kvöld, tvær til tvær og
hálfa klukkustund í senn.
„Ég var að hefna mín,“ segir
Ari um hrekkinn sinn. „Hann
sendi strákunum í útvarpsþætt-
inum Ding Dong bréf fyrir einu
og hálfu ári síðan. Þeir hringdu í
mig og gerðu at í mér. Þeir spil-
uðu það fjórum sinnum og settu
mig síðan í auglýsingu segjandi
einhverja heimska setningu.“
Að sögn Ara rann stund hefnd-
arinnar upp þegar vinur hans lán-
aði honum lyklana að íbúðinni
sinni og bað hann um að gera sér
greiða. „Ég sá gullið tækifæri og
gerði afrit af lyklunum. Síðan fór
hann í frí til Bolungarvíkur og þá
datt mér í hug að post-it-a íbúð-
ina.“
Ari telur að svona hrekkur
hafi aldrei áður verið gerður á
Íslandi en hefur hins vegar
heyrt af honum í Bandaríkjun-
um. Sá hann meðal annars eitt-
hvað þessu líkt í Jim Carrey-
myndinni Bruce Almighty.
„Hann tók þessu mjög vel. Hann
sagði að ég ætti mér voðalega
lítið líf,“ segir Ari hlæjandi um
viðbrögð vinar síns. „Nú er bolt-
inn hjá honum.“ ■
Lárétt: 1 truntu, 5 óhreinka, 6 skóli, 7 tónn,
8 for, 9 listi, 10 á fæti, 12 rétt - s, 13 ný-
sprottið gras, 15 bardagi, 16 litlaus, 18 ná-
komin.
Lóðrétt: 1 jafnoki, 2 svif, 3 tónn, 4 stríðið, 6
fiskur, 8 keyra, 11 kassi, 14 hamingja, 17 slá.
Lausn.
Lárétt: 1jálk,5ata,6ma,7fa,8aur, 9skrá,
10il,12att,13nál,15at,16grár, 18náin.
Lóðrétt:1jafningi, 2áta,3la,4baráttan,6
murta, 8aka,11 lár, 14lán,17rá.
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
88. sæti.
Tæplega 70 milljarðar króna.
Vínveitingamálinu í Egilshöll.
Fimm þúsund miða hrekkur
MENNIRNIR Á BAK VIÐ MYNDINA Óli Palli, Ragnar Santos, Benedikt Jóhannesson og
Ólafur Jóhannesson unnu hörðum höndum við að koma myndinni á tjaldið.
BUBBI MORTHENS Gríðarmikið af efni er til um þennan mikla tónlistarmann og höfðu þeir hjá Poppoli því úr nógu að moða.
Risafyrirbærið Bubbi Morthens
Aftur uppselt
Miðasala á aukatónleika Lisu Ek-
dahl sem verða 29. október hófust í
gær. Það tók aðeins lengri tíma í
þetta skiptið að
selja alla miðana
en eftir þrjá
klukkutíma var
orðið uppselt. Mið-
ar á fyrstu sýning-
una urðu uppseld-
ir á korteri og
komast því færri
að en vilja. Ef ekki stæði á söng-
konunni sjálfri ættu þriðju tónleik-
arnir einnig að standa undir sér
miðað við þessar viðtökur. ■
Björk Jakobsdóttir:
Ja, það eru til margar
græjurnar sem hjálpa
en samt stendur hand-
iðnin alltaf fyrir sínu.
Uppþvottavél er stór-
kostleg uppfinning en
maður þvær betur upp
í höndunum. Matvinnsluvélin er ágæt
en það er unaðslegt að slíta upp sitt
eigið heimagerða krydd og rífa niður
með höndunum og kreista svo dass af
sítrónu yfir ....Handprjónuð flík er ein-
stök gæðavara...og þannig mætti lengi
telja þannig að ég myndi segja..sjálf er
höndin hollasta hjálpartækið ef vanda
á til verka.
Guðrún
Ásmundsdóttir:
Ögrandi undurfagur
náttkjóll.
Unnur Ösp
Stefánsdóttir:
Án karlmanna værum
við afar snauðar. Vel gefinn og góð-
hjartaður karlmaður er
langnauðsynlegasta
hjálpartækið okkar.
Eins get ég nefnt góðar
bækur, kvikmyndir og
fallega tónlist... hár-
blásara, maskara og
gloss (getur bjargað
manni á ögurstundu!) Eins er mikil
hjálp í góðu trúnói og hvítvínsdrykkju
með vinkonunum.
Edda Björgvinsdóttir:
Besta hjálpartæki
kvenna er auðvitað
uppþvottavélin! Mat-
vinnsluvélin er náttúr-
lega dásamleg – en
kannski ekki eins nauð-
synleg og önnur tæki. Rifjárnið er svo
sem þarfaþing – ef maður er mikið fyr-
ir salat – en ég myndi segja að rjóma-
sprautan slagaði hátt upp í kaffivélina,
sem er auðvitað alveg ómissandi þegar
ég fer að hugsa um það.
Guðlaug Elísabet
Ólafsdóttir:
Það er ekki spurning
að vel innréttaður og
fallega hannaður karl-
maður er besta hjálp-
artæki sem nokkur
kona getur komist yfir.
Vandinn er hins vegar sá að græjusjúk-
lingar eiga til að vilja alltaf skipta um
tæki og fá sér það nýjasta á markaðn-
um. Ef vel er farið með getur sami karl-
maður enst einni konu allt lífið og veitt
ómælda hjálp og jafnvel hamingju á
góðum dögum.
| 5STELPUR SPURÐAR |
Hvað er besta hjálpartæki kvenna?
FYRIR Svona leit íbúðin út áður en Ari
ákvað að hefna sín á vini sínum.
EFTIR Gulir límmiðar út um alla íbúð.
Hvergi sést í auðan blett.