Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.12.2004, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 11.12.2004, Qupperneq 10
10 11. desember 2004 LAUGARDAGUR DOMINÓ SPILAÐ Í BRÓÐERNI Karl Bretaprins spilaði dominó við bændur í Muker, Englandi á barnum Farmers Arms þegar hann heimsótti þorpið í gær. Framsóknarflokkur: Frumlegar hugmyndir til að leysa vandann BYGGÐAMÁL Það er frumleg nálgun hjá sveitastjórum í sjávarbyggð- um að leggja til að veiðigjald á kvóta renni til byggðanna og að skuldir þeirra í félagslega íbúða- kerfinu verði afskrifaðar. Þetta segir Hjálmar Árnason, formaður þingflokks framsóknarmanna, eftir fund með sveitastjórunum. Þingflokkur framsóknarmanna hefur rætt hugmyndirnar og þær verða skoðaðar nánar á næstunni. „Þarna er um háar fjárhæðir að ræða,“ segir Hjálmar, „en sveita- stjórarnir undirbjuggu þetta vel og færðu fín rök fyrir máli sínu. Tekjur þessara sveitarfélaga hafa vissulega minnkað vegna hagræð- ingar sem fylgdi upptöku kvóta- kerfisins. Það eru ákveðin rök.“ Hjálmar segir að ákvörðun um þetta verði ekki tekin á næstunni en að þetta sé ný nálgun á lausn fjárhagsvanda sjávarbyggða og því sé það þess virði að skoða hana vandlega. Talið er að byggðirnar myndu fá hátt í tíu milljarða króna ef skuldir þeirra vegna félagslega íbúðakerfisins verða lagðar niður og árlegar tekjur af veiðigjaldi yrðu um 700 milljónir. - ghg Stríð og fátækt hrjá rúman milljarð barna Stjórnvöld hafa svikið loforð sín við æskuna, sagði framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóð- anna um þær raunir sem rúmur milljarður barna um heim allan mega þola. BRETLAND, AFP Annað hvert barn í heiminum þjáist af fátækt, stríðs- átökum eða alnæmisfaraldrinum að því er fram kemur í ársskýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóð- anna. Þetta þýðir að meira en millj- arður barna á um sárt að binda. „Þegar helmingur barna heimsins vex úr grasi vannærður og heilsutæpur, þegar skólar verða skotmörk og heilu þorpin tæmast af völdum alnæmis höfum við svikist um að efna loforðið við æskuna,“ sagði Carol Bellamy, framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Bellamy gagnrýndi ríki heims fyrir að uppfylla ekki þau réttindi barna sem kveðið er á um í barna- sáttmála Sameinuðu þjóðanna frá 1989. Hún sagði að þetta væri að hluta til vegna þess að stjórnvöld hefðu brugðist í efnahagsum- bótum og því að bæta stöðu mann- réttindamála en fleira kæmi þó til. „Of margar stjórnir taka með- vitað ákvarðanir sem skaða börn,“ sagði hún og vísaði þar meðal ann- ars til stríðsreksturs. Helmingur þeirra 3,6 milljóna einstaklinga sem hafa fallið í stríðsátökum hafa verið á barns- aldri. Að auki hafa sex milljónir barna orðið fyrir varanlegum lík- amlegum skaða. Það er ekki aðeins í vanþróuð- um löndum og þróunarlöndum sem börn stríða við erfiðleika. Fá- tækt fer vaxandi í ellefu af þeim fimmtán iðnvæddu ríkjum sem greinarhöfundar höfðu upplýsing- ar um. Þar hefur hlutfall barna sem elst upp í fátækt farið hækk- andi. 22 prósent bandarískra barna búa við fátækt og 16,6 pró- sent í Póllandi. Ríki heims settu sér það mark- mið með samþykkt þúsaldaráætl- unar Sameinuðu þjóðanna að draga úr dauðsföllum barna undir fimm ára aldri um tvo þriðju frá 1990 til 2015. Í nýju skýrslu Barnahjálparinnar er komist að þeirri niðurstöðu að ríkin sunnan Sahara í Afríku og lýðveldi fyrr- um Sovétríkjanna nái þessu mark- miði ekki. Í dag látast 29 þúsund börn daglega, flest af völdum við- ráðanlegra sjúkdóma. ■ Guðlaugi Þór svarað: Birting einnar skýrslu leyfð STJÓRNMÁL Guðmundur Þóroddsson, formaður Orkuveitu Reykjavíkur, fullyrðir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær að Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarmaður í Orkuveitunni, hafi farið með rangt mál í frétt í Fréttablað- inu á fimmtudag. Í fréttinni sagði Guðlaugur Þór að Og Vodafone hefði ekki lagst gegn því að endurskoð- unarskýrslur vegna Linu.nets væru afhentar stjórnar- mönnum í Orku- veitunni. „Óskar Magnússon...taldi eðlilegt að láta í hendur síðustu endurskoðunar- skýrslu þar sem þar kæmi fram það sem máli gæti skipti.“ Óskar Magnússon vill ekki tjá sig um málið en vísar í tölvupóst sinn til Guðlaugs Þórs: „Ég taldi bara síðasta bréfið skipta máli og hafði ekkert á móti því að það væri afhent.“ Alfreð Þorsteinsson, stjórnarfor- maður Orkuveitunnar, segir að hann líti svo á að Guðlaugur Þór sé í alvarlegri tilvistarkreppu eftir að Lína.Net var seld frá Orkuveitunni. „Hann veit ekki sitt rjúkandi ráð þegar þetta eina viðfangsefni hans í pólitíkinni hverfur af vettvangi Orkuveitunnar.“ - ás jólagjöf Hugmynd að fyrir hann Smáralind Sími 545 1550 Glæsibæ Sími 545 1500 Kringlunni Sími 575 5100 www.utilif.is Liðatreyjur Jólatilboð,5 gerðir. Verð áður 7.990 kr. Verð 4.990 kr. HJÁLMAR ÁRNASON Formaður þingflokks Framsóknar- flokks segir að hugmyndir sveitar- stjóra um lausn á fjárhagsvanda sjáv- arplássa frumlegar og vel rökstuddar. ALFREÐ ÞOR- STEINSSON Segir Guðlaug Þór vera í alvar- legri tilvistar- kreppu. BÖRN INNAN UM HERMENN Í KONGÓ Stríðið í Kongó kostaði þrjár milljónir manna lífið þau fimm ár sem það stóð yfir. Íbúar gjalda þess enn þar sem heilbrigðisþjónusta er í molum og vígasveitir og hersveitir láta enn til sín taka.NOKKUR HELSTU VANDAMÁL · 640 milljónir barna skortir öruggt skjól. · 400 milljónir barna hafa ekki aðgang að öruggu drykkjarvatni. · 270 milljónir barna njóta engrar heil- brigðisþjónustu. · 140 milljónir barna hafa ekki fengið neina menntun. STJÓRNMÁL Teikningar Sigmunds Jóhannssonar endurspegla stöðu kvenna í samfélaginu og viðhorfi til þeirra í gegnum árin að mati Katrínar Önnu Guðmundsdóttur, talskonu Femínistafélags Íslands. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að kaupa teikningar Sigmunds í tilefni sextíu ára afmælis lýð- veldisins er nokkuð umdeild og sitt sýnist hverjum. Katrín segist hafa alist upp við að skoða mynd- irnar í Morgunblaðinu og því líst henni vel á kaupin. „Mér finnst hann skemmtilegur og hlutverk hans er að birta þjóðfélagslega ádeilu. Teikningarnar eru einmitt það.“ - ghg TEIKNING SIGMUNDS Nýleg teikning hans af Eyrúnu Magnúsdóttur, eins umsjónarmanna Kastljóssins í Sjónvarpinu. Sigmund: Endurspeglar stöðu kvenna 10-11 10.12.2004 19:52 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.