Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.12.2004, Qupperneq 60

Fréttablaðið - 11.12.2004, Qupperneq 60
Vinir okkar urðu eitt spurn-ingarmerki er við sögð-umst ætla að fara í ferða- lag til Afríku, nánar tiltekið til Madagaskar sem er eyja í Ind- landshafi um 400 kílómetra und- an ströndum Mósambík. Ástæða ferðalagsins er þrjátíu ára hjú- skaparafmæli okkar hjóna og sameiginlegur ævintýraþorsti. Ferðin sem við völdum skiptist í skoðunar- og gönguferðir um þjóðgarða og svæði sem annað hvort vernda dýr eða skóga, að skoða villta náttúru svæðanna og vinsæla staði með tilliti til lands- lags og sérkenna sem þeir höfðu upp á að bjóða. Þrettán tíma flug Sprautur og lyf fengum við hér heima, sem er nauðsynlegt áður en lagt er í ferðalag til svo fjar- lægra staða. Nauðsynlega vega- bréfsáritun keyptum við á flug- vellinum við komuna til landsins. Ferðin hófst í London og þar sem við vorum stödd í brottfarar- sal á Heathrow-flugvelli kom glaðhlakkaleg kona út úr hópi farþega og spurði um farþega á leið til Madagaskar. Þarna safn- aðist sextán manna hópur saman; tveir Íslendingar, tveir Norsarar, einn Ástrali og ellefu Bretar – fimm karlar og ellefu konur. Flogið var frá Heathrow, milli- lent í Paris og síðan flogið með Air Madagaskar í þrettán klukku- stundir til höfuðborgarinnar Ant- ananarivo. Þar með var hópurinn kominn í umsjá fararstjóra sem hélt styrkri hendi um ferðalang- ana allan tímann með aðstoð inn- fæddra fararstjóra sem lögðu sig fram um að gera okkur ferðina eftirminnilega og ánægjulega. Allur farangurinn okkar var í þeirra umsjá og þar sem ferðin gekk út á að ferðast á milli svæða bæði með flugi og rútum var ómetanlegt að þurfa aldrei að hafa áhyggjur af þessum hlutum og töskurnar bornar til okkar á herbergin hverju sinni. Einstök eyja Madagaskar er einstök eyja, um það bil þrisvar sinnum stærri en Ísland. Eyjan er nokkurs konar björgunarfleki út frá meginlandi Afríku, sem birtist bæði í plöntu- og dýralífi hennar. Þar er til að mynda engin af stóru rándýrum meginlandsins, að krókódílum undanskildum. Stórir snákar sem eru eiturnöðrur annars staðar eru hættulausir því bit þeirra er ekki eitrað, svo dæmi sé tekið. Það er margt forvitnilegt sem fyrir augu ber, bæði í gróðurfari og dýralífi, en á þessum árstíma, í lok október, er vor á suðurhveli jarðar og gróður í öllum regnbog- ans litum. Af ruslahaugum í þorp Það sem situr hvað fastast í minningunni eftir svona ferð er hvernig fólkið í einu fátækasta landi í heiminum lifir sínu dag- lega lífi. Þrátt fyrir mikla fátækt gátum við ekki merkt vannær- ingu á fólki en lífsbaráttan er svo sannarlega hörð, það má engu skeika svo uppskeran misfarist ekki. Hrísgrjón eru aðaluppi- staðan í fæðu fólksins og hvar- vetna var fólk að undirbúa jarð- veginn fyrir næstu sáningu en það fást tvær uppskerur á ári, sem bæði karlar og konur undir- búa. Ökrunum er skipt upp í reiti sem voru mismunandi langt komnir í undirbúningi til plönt- unar. Konurnar sáu um reitina og þær sukku næstum upp í klof við það í rennandi votri og hlýrri moldinni. Menningarheimurinn sem mætir Vesturlandabúum þarna er gerólíkur öllu sem við þekkj- um og mikill munur virðist vera á aðstæðum fólks í borgum og úti á landsbyggðinni. Fátæktin er greinilega mikil í sveitunum en lífið í borgunum virtist nú eng- inn leikur heldur. Við komum í „þorp“ sem er skipulagt af argentínskum presti í Tana, sem er stytting á nafni höfuðborgar- innar. Presturinn hefur hjálpað fólki sem lifði áður á ruslahaug- um borgarinnar, því það fékk ekki vinnu en var í mörgum til- fellum búið að selja landið sitt í sveitinni og átti því ekki aftur- kvæmt þangað. Íbúarnir verða að vera tilbúnir að fylgja þeim reglum sem gilda í þorpinu en fá í staðinn tækifæri til að lifa við mannsæmandi aðstæður. Alls hafa um 250.000 manns byrjað nýtt líf með hjálp þessa sam- félags. Elskulegt fas Heimsóknin í þetta „þorp“ var eiginlega hápunktur ferðarinnar og sýndi manni hvað hægt er að gera mikið með góðu skipulagi og skilningi á aðstæðum fólks. Hvar sem við komum voru götur fullar af fólki sem var að selja eitthvað, ýmist á mörkuðum úr búðar- krubbu eða bara á höndum, hand- unnar vörur og muni eða matvöru. Fyrst í stað var ágangur á okkur mikill og litarhaft okkar vakti alls staðar athygli. Fas og framkoma heimamanna er alveg sérlega elskulegt. Fólkið er bæði brosmilt og fallegt og hefur alveg sérstaka nærveru sem er eiginlega ekki hægt að lýsa með orðum. Eftir þessa ferð finnst mér eins og við Vesturlandabúar höfum tapað löngun til að kynnast því sem við þekkjum ekki, löngun sem mér fannst aftur á móti svo almenn meðal þessa fólks. Það er mikil lífsreynsla að heimsækja svona fátækt og framandi land, maður meðtók bæði með líkama og sál og var oft örþreyttur að kvöldi. Þak úr pálmablöðum Við fórum víðs vegar um landið, bæði á austur- og vesturströndina auk þess að vera í höfuðborginni, og ferðuðumst ýmist með rútum eða flugvélum. Fyrsti áfangastað- ur okkar eftir einnar nætur dvöl í höfuðborginni var á suðaustur- horni landsins. Fallegt og gróið landsvæði. Þar sáum við fyrst að- stæður hins venjulega fátæka dreifbýlismanns. Húsakosturinn er að gólffleti um 15 fermetrar, 48 11. desember 2004 LAUGARDAGUR Linsunni beint að þriðja heiminum Madagaskar er um 400 kílómetra frá meginlandi Afríku. Þar er einstakt dýra- og náttúrulíf og íbúarnir eru afar elskulegir eins og Gunnar V. Andrésson ljósmyndari fékk að kynnast á ferðalagi sínu um eyjuna stóru. ALLIR SAMAN Mannlífið í sveitinni á Madagaskar virðist vera í góðu jafnvægi þar sem börn og fullorðnir eru saman við leik og störf. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA 60-61 (48-49) Ferðagrein 10.12.2004 14:34 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.