Fréttablaðið - 11.12.2004, Síða 63
ER HÆTTULEGT AÐ BÚA
NÁLÆGT HÁSPENNULÍNUM?
SVAR: Við hönnun og lagningu á ís-
lenskum háspennulínum er þess
gætt að þær liggi ekki of nálægt
öðrum mannvirkjum. Almennt
gildir að fjarlægð á milli íbúðar-
húss og háspennulínu skuli vera að
minnsta kosti 10 metrar og meiri
ef línan stendur hærra en mann-
virkið. Upplýsingar um leyfilega
fjarlægð má meðal annars finna á
vefsíðu Löggildingarstofu. Ákvæði
um lágmarksfjarlægð á milli
mannvirkja og háspennulína eru
sett í íslenska reglugerð nr.
264/1971 með áorðnum breyting-
um vegna hættu sem getur stafað
af því að háspennulínur sláist utan
í mannvirki, til dæmis ef staurar
brotna í illviðrum. Víða erlendis
gilda ekki slíkar reglur.
Mörk ICNIRP um segul-
og rafsvið
Alþjóðaráðið um varnir gegn
ójónandi geislun (ICNIRP) hefur
sett mörk um hversu mikið segul-
svið og rafsvið megi vera í um-
hverfi almennings. Það fer eftir
ýmsu, meðal annars spennu og
hæð staura, hversu mikið segul-
svið og rafsvið er í kringum há-
spennulínur. Gera má ráð fyrir að
í kringum íslenskar háspennulín-
ur sé styrkur sviðanna vel undir
mörkum ICNIRP, jafnvel alveg
undir línum.
Mörk ICNIRP miðast við líf-
fræðileg áhrif sem eru almennt
þekkt og viðurkennd (til dæmis
vegna upphitunar). Sumir hafa
áhyggjur af því að segulsvið frá
háspennulínum geti valdið
krabbameini. Óvissa ríkir um það
en athygli manna hefur helst
beinst að barnahvítblæði að þessu
leyti.
Erfitt að kanna hvort segulsvið
orsaki barnahvítblæði
Alþjóðlega krabbameinsrann-
sóknastofnunin (IARC) hefur
metið þau gögn sem liggja fyrir
um hugsanlega skaðsemi segul-
sviða og flokkað segulsvið frá há-
spennulínum sem hugsanlegan
krabbameinsvald fyrir barnahvít-
blæði. Ekki hefur tekist að fram-
kalla áhrif í tilraunastofum eða á
dýrum en þessi flokkun IARC er
byggð á gögnum um tíðni barna-
hvítblæðis hjá þeim sem búa við
meira segulsvið en 0,3-0,4 µT
(Míkrótesla, sem er einn milljón-
asti úr tesla. Mælieiningin tesla er
notuð til að mæla segulsvið eða
þéttleika segulflæðis). Mjög erfitt
er að skera úr um hvort segulsvið-
ið sé í raun orsakavaldur þar sem
barnahvítblæði er sjaldgæfur
sjúkdómur og ekki er hægt að úti-
loka aðrar orsakir.
Hugsanleg tíðni krabbameins
vegna háspennulína afar lítil
Samkvæmt upplýsingum sænsku
Geislavarnanna fær um það bil eitt
sænskt barn af hverjum 25.000
barnahvítblæði á ári, samtals um
80 börn. Um það bil 25.000 börn í
Svíþjóð búa nálægt háspennulín-
um. Ef líkurnar á þessum sjúk-
dómi tvöfölduðust hjá þeim mundi
það þýða að tala sem ella væri 80
börn á ári mundi breytast í 81.
Þessar tölur eru meðal annars at-
hyglisverðar vegna þess að lagt
hefur verið til á Alþingi hvað eftir
annað að hefja rannsóknir hér á
landi á áhrifum háspennulína á
krabbamein. Hugsanleg tíðni
krabbameins af þessum völdum er
hins vegar svo lítil að við gætum
aðeins gert ráð fyrir að finna hér á
landi eitt dæmi um þetta á hverj-
um 20-50 árum. Það yrði því býsna
seinlegt að byggja marktækar
rannsóknir á slíkum tölum.
Þeir sem enga áhættu vilja
taka varðandi segulsvið frá há-
spennulínum þyrftu að búa svo
langt frá þeim að segulsviðið væri
orðið minna en 0,3-0,4 µT. Það fer
eftir gerð háspennulínunnar
hversu mikil fjarlægðin þarf að
vera til þess en 75-100 metrar
ættu að vera nóg fyrir flestar lín-
ur eins og sjá má á skýringamynd-
inni með dæmigerðum gildum frá
sænsku Geislavörnunum.
Segulsvið í heimahúsum
Þess ber að lokum að geta að seg-
ulsvið af sömu tíðni (50Hz) með
þetta litlum styrkleika er víða í
umhverfi manna af öðrum ástæð-
um en frá háspennulínum eins og
til dæmis má sjá á vefsíðu hjá
Landsvirkjun (http://
w w w . l v . i s / a r t i c l e . a s p ?
catID=182&ArtId=513).
Á Vísindavefnum verður heim-
ildaskrá birt með svarinu.
Þorgeir Sigurðsson fagstjóri
ójónandi geislunar hjá Geisla-
vörnum ríkisins.
LAUGARDAGUR 11. desember 2004 51
jólagjöf
Hugmynd að
fyrir alla
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
20% afsláttur
af brettapökkum
Betti, bindingar og skór.
Úrval af Sessions brettafatnaði.
Vertu viss
...veldu Rossignol snjóbretti
um gæðin...
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
66
32
12
/2
00
4
Segulsvið frá
háspennulínum
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau nefnast. Meðal
spurninga sem þar hefur verið glímt við undanfarið eru til dæmis: Hvað merkir holið í
Hollandi, hvenær var síðasta aftakan á Íslandi, hvað eru yrðlingar stórir við fæðingu og
hvernig verkar drullusokkur? Hægt er að lesa svörin við þessum spurningum og fjölmörg-
um öðrum með því að setja efnisorð í leitarvél vefsins á slóðinni www.visindavefur.hi.is.
HÁSPENNULÍNUR Segulsvið frá mis-
munandi gerðum háspennulína í 0-150 m
fjarlægð frá línunum.
62-63 (50-51) Helgarefni 10.12.2004 14:30 Page 3