Fréttablaðið - 11.12.2004, Side 65
LAUGARDAGUR 11. desember 2004 53
BESTA SPILIÐ
FYRIR ÞÁ SEM NENNA AÐ HUGSA
Carcassonne hefur broti› bla› í sögu bor›spila. Í sta› fless a›
spilinu sé ra›a› upp í byrjun, er a›eins lag›ur ni›ur einn lítill
reitur(ferningur). fiátttakendur ra›a sí›an sjálfir upp spilinu me›
flví a› draga ferninga, sem byggja upp spilabor›i› og spila jafn-
framt út sínum förunautum á bor›i›. Reglurnar eru einfaldar og
fljótlær›ar mi›a› vi› d‡pt spilsins. Í hverju spili er uppi n‡ sta›a
og möguleikarnir eru síst færri en í skák.
Ómissandi vi›bót fyrir alla a›dáendur
Carcassonne, me› fjölmargar spennandi
og áhættusamar n‡jungar. Kóngar, krár
og kirkjur er vi›auki vi› grunnspili›.
• Margver›launa› spil
• Eitt mest selda spili›
• Spil ársins í Evrópu
• Einfaldar reglur
Sigurvegari Íslandsmótsins
í Carcassonne 2004,
Georg Haraldsson (í mi›ju),
fór á heimsmeistaramóti› í
fi‡skalandi í október s.l. www.spil.is
Kóngar, krár og kirkjur
Iris Murdoch var
greind með
alzheimer 76 ára
gömul. Árið áður
hafði hún sent frá
sér skáldsöguna
Jackson's Dilemna
sem varð síðasta bók
hennar. Nú hefur
breskur taugasér-
fræðingur gert sam-
anburðarrannsókn á
þessari síðustu
skáldsögu Murdochs
og fyrri verkum
hennar og notað til þess tölvu.
Niðurstaðan er sú að Murdoch
hafi verið þjáð af alzheimer þeg-
ar hún skrifaði Jackson's
Dilemna. Sérfræðingurinn segir
að orðaforðinn í þess-
ari síðustu skáldsögu
sé fátæklegri en í þeim
fyrri og textinn mun
einfaldari. Skýringa sé
að leita í sjúkdómnum
sem hafi haft áhrif á
skrif skáldkonunnar
nokkru áður en læknar
greindu hann. Ekkill
skáldkonunnar, John
Bailey, segir niðurstöð-
una ekki koma sér á
óvart, hann hefði ætíð
haft á tilfinningunni að
skáldsagan væri öðruvísi en aðr-
ar bækur konu sinnar. Skáldsag-
an kom út árið 1995 og fékk óblíð-
ar viðtökur hjá mörgum gagn-
rýnendum.
Dylan Thomas, ljóðsnillingurinn
frá Wales, lést árið 1953 fertug-
ur að aldri. Fram að þessu hefur
verið talið að drykkjusýki hafi
orðið honum að aldurtila en í
nýrri ævisögu skáldsins er því
haldið fram að Dylan hafi látist
úr lungnabólgu. Dylan var
staddur í New York þegar hann
fór á fyllirí, en það var eftirlæt-
isiðja hans. Hann sagðist hafa
drukkið 18 viskísjússa það kvöld
og gantaðist með að hafa slegið
eigið met. Stuttu seinna veiktist
hann og var fluttur á sjúkrahús.
Læknir taldi hann þjást af
delirium tremens og gaf honum
morfín. Eftir þriðja morfín-
skammtin féll Dylan í dá og lést
fjórum sólarhringum síðar.
Hin nýja ævisaga Dylan
Thomas er skrifuð af ævisagna-
ritaranum David Thomas og
lækninum Simon Barton. Þeir
hafa rannsakað sjúkraskýrslur
og komist að því að Dylan
Thomas lést úr lungnabólgu sem
hann fékk enga meðferð við.
Áður en hann veiktist hafði
hann drukkið átta viskísjússa,
ekki átján eins og hann stærði
sig af.
ARNALDUR INDRIÐASON
„Ég er líka helst á því að hann vinni þetta
– mönnum finnst vera kominn „tími til“...“
segir Egill Helgason.
Spáir Kleifar-
vatni sigri
Egill Helgason gerir tilnefningar
til Íslensku bókmenntaverðlaun-
anna að umtalsefni á heimasíðu
sinni. Um tilnefndar fræðibækur
segir hann: „Þarna er sittlítið af
hverju – náttúrulífsbók eins og
venjulega, ljósmyndabók, svo hef-
ur vantað eitthvað eftir konu og
þá er valin bókin um Ólöfu eski-
móa. Hún rís
á engan hátt
undir tilnefn-
ingunni, en
það skiptir
svosem ekki
máli – það er
löngu vitað að
bókin hans
Halldórs Guð-
mundssonar
um Laxness
vinnur.“
Og um tilnefnd skáldverk segir
Egill: „Mest kemur á óvart að
Bítlaávarpið eftir Einar Má skuli
vera valið – bókin hefur fengið
hroðalega dóma. Hún er örugg-
lega með lökustu verkum höfund-
arins. Og allt í einu er farið að
snobba voða mikið fyrir spennu-
sögum – spaugilegt að sjá hvað
allir voru sammála að fagna því
að Arnaldur skyldi fá tilnefningu.
Ég er líka helst á því að hann vinni
þetta - mönnum finnst vera kom-
inn „tími til“...“
Mary Poppins eftir P.L. Travers.Mary Poppins er eftirlæti allra
sem kynnast henni og því er mikið
fagnaðarefni að bókin um hana hef-
ur verið endurútgefin. Bók sem öll
börn verða að lesa. Allt í senn, fynd-
in, frumleg og hjartnæm. Vonandi
verða framhaldsbækurnar um þessa
dásamlegu fóstru einnig endurút-
gefnar.
NÝJAR BÆKUR
Veikindi og skriftir
IRIS MURDOCH Greina má
merki alzheimer í texta síð-
ustu skáldsögu hennar.
Drykkjan drap ekki
Dylan Thomas
DYLAN THOMAS Áfengið varð honum
ekki að bana heldur lungnabólga.
EGILL HELGASON
64-65 (52-53) bækur 10.12.2004 19:34 Page 3