Fréttablaðið - 13.01.2005, Qupperneq 14
14 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
EKKI Í ÞEIRRA NAFNI
Breskir Evrópuþingmenn voru meðal
þeirra sem mótmæltu á Evrópuþinginu í
Strassburg í gær, þegar Evrópuþingið
ákvað með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða að styðja fyrstu stjórnarskrá Evr-
ópusambandins og hvatti ríkisstjórnir ESB
að gera hið sama.
Fljótsdalslínur 3 og 4:
Fjórir buðu í stálvírinn
IÐNAÐUR Fimm tilboð bárust Lands-
virkjun í stálvír fyrir Fljótsdalslín-
ur 3 og 4, en þau voru opnuð á mánu-
dag. Hæsta boð kom frá
Westfälische Drahtindustrie GmbH
upp á 71,4 milljónir króna. Var það
eina tilboðið sem var yfir kostnað-
aráætlun, sem hljóðaði upp á rétt
rúmar 64 milljónir króna. Næst-
hæst bauð BYKO hf., eina íslenska
fyrirtækið sem tók þátt, 62,4 millj-
ónir. Lægst bauð hins vegar sænska
fyrirtækið Swedwire, rúmar 54
milljónir og með frávikstilboð upp á
rúmar 50 milljónir króna.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að Landsnet,
sem annast á flutning á raforku,
semji við verkfræði- og fram-
kvæmdasvið Landsvirkjunar sem
sjái um útboðið. „En þetta var nátt-
úrlega boðið út í okkar tíð,“ sagði
hann og bjóst við að verkefni tengd
Kárahnjúkavirkjun sem byrjað
hefur verið á myndu verða áfram á
forræði verkfræði- og fram-
kvæmdasviðsins.
Friðrik taldi tilboðin flest hafa
verið hagstæð og kvaðst sannfærð-
ur um að línurnar yrðu mun ódýrari
en ráð hafi verið fyrir gert þegar
upp væri staðið. - óká
Loðnuveiðar:
Mokveiða
góða loðnu
AFLI Loðnuveiðar hafa gengið
mjög vel úti af Norðausturlandi
síðustu sólarhringa og er mikið
magn af loðnu á svæðinu. Að sögn
Freysteins Bjarnasonar, fram-
kvæmdastjóra útgerðar Síldar-
vinnslunnar, er gott hljóð í sjó-
mönnum og útgerðarmönnum
eftir að fiskifræðingar gáfu í skyn
að kvótinn yrði aukinn verulega.
„Loðnan er mjög góð og hafa skip-
in verið í mokafla en við frystum
alla þá loðnu sem berst til Nes-
kaupstaðar,“ sagði Freysteinn.
- kk
Fannfergi á Vestfjörðum:
Órólegur snjór
miðað við magn
SNJÓÞYNGSLI Í SÚÐAVÍK
Þeir félagar Elmar Garðarsson, Jón Arnór Þorsteinsson, Sigurgeir Garðarsson og Þórir Gari-
baldi Halldórsson, voru bara hressir með snjókomuna í Súðavík þegar ljósmyndari hitti þá
fyrir á mánudaginn. Þá töldu þeir ekki eftir sér að grípa í skófluna og hjálpa til við mokst-
urinn svo greiðfært væri um bæinn.
SNJÓKOMA Meira hefur verið um
snjóflóð á Vestfjörðum undan-
farið en snjódýptartölur segja
til um, að sögn Trausta Jónsson-
ar veðurfræðings á Veðurstofu
Íslands. „Snjórinn hefur verið
órólegur miðað við magn,“ segir
hann og bætir við að í þessum
efnum skipti máli lagskipting
snjósins og skafrenningur. „Svo
getur nú líka verið að meiri
snjór sé til fjalla en mælingar í
byggð segja til um.“
Trausti segir hins vegar að oft
hafi snjóað meira á Vestfjörðum
en nú. Þar mældist þó í byrjun
vikunnar 60 til 65 sentímetra
djúpur jafnfallinn snjór og taldi
hann að snjór í slíku magni
myndi valda algjöru umferðar-
öngþveiti á höfuðborgarsvæð-
inu. „Tölurnar miða við jafnfall-
inn snjó þannig að búast má við
miklum sköflum. Í þorpum er oft
minni vindur vegna húsa og að-
fenni meira.“ - óká
LOÐNUVEIÐAR
Vel hefur gefið
á miðunum síð-
ustu daga og
meira er af
loðnu en búist
var við.
FLJÓTSDALSLÍNUR 3 OG 4
Hér má sjá legu Fljótsdalslína 3 og 4 um Skriðdal framhjá bænum Eyrarteigi á leiðinni frá
Kárahnjúkavirkjun niður í Reyðarfjörð.
TILBOÐ Í STÁLVÍR
fyrir Fljótsdalslínur 3 og 4 frá Kárahnjúka-
virkjun í álver í Reyðarfirði.
Bjóðandi Upphæð tilboðs
Westfälische Drahtindustrie GmbH
71.427.490 kr.
BYKO hf. 62.435.418 kr.
Bridon Internationa Ltd. 55.958.022 kr.
Swedwire, Svíþjóð 54.211.815 kr.
Swedwire, Svíþjóð (frávikstilb.)
50.522.196 kr.
Kostnaðaráætlun ráðgjafa 64.029.000 kr.
AP
M
YN
D
EVRÓPA Þrír létust þegar stormur
gekk yfir norðanvert Bretland og
Norður-Írland í fyrrinótt og gær-
dag. Vindurinn reif tré upp með
rótum og felldi símastaura. Mest-
ur mældist vindurinn á Vestureyj-
um Skotlands og náði 198 kíló-
metra hraða í hvössustu hviðun-
um í Skotlandi. 60 þúsund Skotar
voru rafmagnslausir af völdum
óveðursins.
Um tíma var óttast um afdrif
nítján skipverja spænsks togara
sem var saknað en hann fannst í
gær.
Mikið óveður gekk yfir Noreg í
gær. Víða á vesturströndinni
flæddi sjór um götur bæja og
borga og inn í hús, meðal annars í
Björgvin og Álasundi. Vindurinn
mældist mestur 37 metrar á sek-
úndu í hviðum. ■
BEÐIÐ BROTTFLUTNINGS
Flóð hafa valdið miklum skemmdum í Bretlandi. Þessi maður beið þess að ónýtir innan-
stokksmunir yrðu fluttir á haugana.
Bretlandseyjar:
Þrír létust í veðurofsa