Fréttablaðið - 13.01.2005, Síða 20
20
Mörður Árnason alþingismaður lagði
á dögunum fram fyrirspurn á Alþingi
um trúnaðarstörf sendiherra fyrir
stjórnmálaflokkana í tilefni þess að
Þorsteinn Páls-
son, sendiherra
Íslands í Kaup-
mannahöfn, var
skipaður fulltrúi
Sjálfstæðisflokks
í stjórnarskrár-
nefnd. Vildi
hann fá að vita
hvort það til
væru fordæmi
fyrir slíku og
hvort það hefði
talist eðlilegt ef
aðrir en núver-
andi stjórnarflokkar hefðu skipað
starfandi sendiherra í nefndina.
Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneyt-
isstjóri í utanríkisráðuneytinu, segist
nokkuð viss um að til séu fordæmi
fyrir nefndaskipan sem þessari.
Eru til fordæmi þess að sendiherrar
sinni trúnaðarstörfum fyrir stjórn-
málaflokka?
Þetta er ekki til á skrám hjá okkur.
Meginreglan innan ráðuneytis er hins
vegar sú að ef starfandi embættis-
menn taka að sér trúnaðarstörf utan
starfslýsingar, þá þarf leyfi utanríkis-
ráðherra. Ég hef ekki dæmi á hrað-
bergi, en ég er nokkuð viss um að til
séu dæmi um nefndarskipanir sem
eru að einhverju leyti pólitískt hugs-
aðar.
Hverjar eru skyldur sendiherra?
Það er talsvert mismunandi eftir því
hvar þeir starfa hverju sinni. Umfram
allt er það að efla og styrkja sam-
skipti við gistiríkið, verja hagsmuni
Íslands og kynna land og þjóð. Hér
heima fer það eftir því við hvaða
verkefni viðkomandi sendiherra fæst.
Það er því erfitt að vera með eina
allsherjar kynningu á starfi sendi-
herra. Almennt er það verkefni utan-
ríkisþjónustunnar að verja hagsmuni
landsins og kynna land og þjóð. ■
Nokkuð viss
um fordæmi
SENDIHERRAR AÐ STÖRFUM
FYRIR STJÓRNMÁLAFLOKKA
SPURT OG SVARAÐ
Fulltrúar íslensku verkalýðsfélaganna hafa
látið til sín taka undanfarið vegna aðbún-
aðs, aðstæðna, kjara og ráðninga starfs-
manna ítalska verktakafyrirtækisins
Impregilo á Kárahnjúkum.
Hvenær urðu verkalýðsfélögin til? Á
Íslandi urðu fyrstu verkalýðsfélögin til um
aldamótin 1900 í kjölfar mikilla breytinga
á atvinnulífi þjóðarinnar. Á tímum þegar
Ísland var að breytast úr bændasamfélagi
í nútímaþjóðfélag, tímum þegar fólk
streymdi úr sveitum í þéttbýli og fjölmenn
stétt verkamanna varð til. Verkamanna-
félagið Dagsbrún var stofnað árið 1896 og
tuttugu árum seinna var Alþýðusamband
Íslands (ASÍ) stofnað. Alþýðusambandið
er nú stærsta fjöldahreyfing launafólks í
landinu. Félagsmenn þess eru tæplega 90
þúsund.
Hvert er hlutverk verkalýðsfélaga? Sam-
kvæmt lögum um stéttarfélög ráða þau
málefnum sínum sjálf með ákveðnum
takmörkunum. Meginhlutverk þeirra hefur
verið og er að auðvelda baráttu félags-
manna sinna fyrir bættum kjörum. Kjara-
mál, starfsöryggi, góðar vinnuaðstæður,
líkamleg og andleg vellíðan á vinnustað
eru með mikilvægustu hagsmuna- og
réttindamálum launafólks sem verkalýðs-
félögin berjast fyrir.
Hvers vegna eru verkalýðsfélögin að
gagnrýna Impregilo? Verkalýðsfélögin
telja að Impregilo fari ekki að íslenskum
lögum hvað snertir kjaramál, réttindi og
aðbúnað starfsmanna á Kárahnjúkum. Þá
hafa þau líka gagnrýnt ráðningar fyrirtæk-
isins á erlendum starfsmönnum í gegnum
alþjóðlegar starfsmannaleigur. Telja þau
að með þessum ráðningum sé Impregilo
að hlunnfara starfsmenn með því að
greiða þeim ekki samkvæmt íslenskum
kjarasamningum. Þar sem eitt af megin-
hlutverkum verkalýðsfélaganna er að
gæta hagsmuna launafólks gagnvart at-
vinnurekendum og stjórnvöldum hafa þau
látið til sín taka á þessum vettvangi. ■
Gæta hagsmuna launafólks
FBL GREINING: VERKALÝÐSFÉLÖG
13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Birtan er aðeins brot af
því sem hún ætti að vera
Rannsóknir íslenskra
vísindamanna leiða í ljós
að tíðni skammdegis-
þunglyndis er lægri hér-
lendis en á samsvarandi
breiddargráðum enda
þótt birta hér sé einungis
sextíu prósent af því sem
hún ætti í raun að vera.
Skammdegisþunglyndi á Íslandi er
ekki eins algengt og í löndum á
svipaðri breiddargráðu og hefur sú
staðreynd meðal annars verið út-
skýrð með endurvarpi af snjó. Ný
íslensk rannsókn leiðir hins vegar í
ljós að dagsbirta á Íslandi er aðeins
sextíu prósent af þeirri birtu sem
hér ætti að vera og því er ekki hægt
skýra þessa tegund þunglyndis með
birtuskortinum einum saman.
Flóknari ástæður búa að baki.
Skammdegisþunglyndi er nán-
ast óþekkt við miðbaug enda er
birta þar stöðug árið um kring, þótt
í raun og veru sé hún minni í heild
en á svæðum nær pólunum. Eftir
því sem nær heimskautunum dreg-
ur hækkar tíðnin vegna þess hve
veturnir eru myrkir. Þetta er
þungamiðjan í svonefndri breidd-
argráðukenningu.
Ellefu prósent íslensku þjóðar-
innar eru talin þjást af skammdeg-
isþunglyndi, þar af eru 3,6 prósent
illa haldin af þessum sökum. Þótt
mörgum þyki þetta vera hátt hlut-
fall er staðreyndin sú að tíðni þung-
lyndis af völdum birtuskorts er
mun lægri hérlendis en á svæðum á
svipaðri breiddargráðu, til dæmis í
Alaska. Þetta stangast augljóslega
á við breiddargráðukenninguna. Til
að koma öllu heim og saman hafa
fylgismenn hennar á móti bent á að
endurvarp vegna snjós bæti Íslend-
ingum birtuskortinn upp.
Í grein í nýútkomnu hefti vís-
indaritsins International Journal of
Circumpolar Health, hnekkja
nokkrir vísindamenn við Háskóla
Íslands breiddargráðukenning-
unni, þeir Jóhann Axelsson,
Sólveig Ragnarsdóttir, Jörgen Pind
og Ragnar Sigurjónsson. Niður-
stöður sínar byggja þeir á ljósmæl-
ingum í Reykjavík sem sýnir svo
ekki verði um villst að birta hér-
lendis er síður en svo meiri en á
samsvarandi breiddargráðum, hún
er einungis sextíu prósent af því
sem hún ætti að vera miðað við
bestu aðstæður. Myrkrið hérlendis
í desember er svo mikið að birtan
þann mánuðinn er einungis 2,5 pró-
sent af ljósinu sem við njótum í
júní hvað sem snjóþekjunni líður.
Í þessu ljósi er afar athyglisvert
að tíðni skammdegisþunglyndis er
lægri hérlendis en víðast hvar á
svipuðum breiddargráðum, ekki
hærri eins og búast mætti við fyrst
birtan er okkur skömmtuð svo
naumt. Greinarhöfundarnir benda
á að vegna legu landsins á norðan-
verðu Atlantshafinu þar sem
lægðakerfi ganga stöðugt yfir þá
sé birta afar breytileg hérlendis.
Þannig getur ljósmagn verið svip-
að á þungskýjuðum sumardögum
og léttskýjuðum vetrardögum og
því er sveiflan á milli sumars og
veturs ekki eins afdrifarík og hún
annars gæti verið.
Það virðist því ljóst að það er
ekki einungis skammdegið sem
veldur myrkursmæðunni heldur er
að líkindum hið gamalkunna sam-
spil erfða og umhverfis hér enn
einu sinni að verki, í bland við vet-
ur og sumar, ljós og myrkur. Þótt
fræðimenn viti ekki enn hver orsök
skammdegisþunglyndisins ná-
kvæmlega er þá færa niðurstöður
íslensku vísindamannanna okkur
skrefi nær svarinu.
sveinng@frettabladid.is
BRATTUR MIÐAÐ VIÐ BREIDDARGRÁÐU
Svona var umhorfs í Reykjavík um hádegisleytið í síðustu viku. Samt sem áður er skammdegisþunglyndi ekki eins algengt eins og það
ætti að vera sé miðað við legu landsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
TILRAUNIR Breskir vísindamenn
áforma að nota pyntingar til að
skilja betur áhrif sársauka og
viðbrögð mannslíkamans
við honum. Hundruð
þátttakenda munu
taka þátt í rannsókn-
inni.
Tilgangurinn er
að kanna heilastarf-
semi fólks þegar
það upplifir líkam-
legan sársauka á
meðan það er við
meðvitund. Sársauk-
inn sem tilrauna-
dýrin þurfa að
gangast undir
er þó ekki
mjög mikill.
Hlaupi blönd-
uðu sílípipar
verður smurt
á handarbök
þeirra og sjóðheitir bakstrar lagð-
ir á húð þeirra. Vísindamenn
munu á meðan kvölunum stendur
rýna í heilalínurit fórnar-
lambanna.
Liður í rannsókn-
inni er að kanna hvort
trúað fólk bregðist á
annan hátt við sárs-
auka en trúleys-
ingjar. Á meðan
meðferðinni stend-
ur verða þeim
sýndar helgimynd-
ir og ýmis trúar-
tákn.
Í viðtali við
BBC segir
formaður
breska geðlæknasambandsins að
ólík stig sársauka ráðist helst af
líffræðilegum þáttum eins og
hversu stór hluti líkamans er
meiddur og hversu mikið endor-
fín heilinn losar til að slá á sár-
saukann. „Það er þekkt að trúaðir
geta þolað miklar kvalir á meðan
þær þjóna ákveðnum tilgangi og
ég tel að skýringin felist í endor-
fínlosun heilans“ segir formaður-
inn en að hans sögn geta bænir og
hugleiðsla framkallað þetta boð-
efni. Talsmenn ensku biskupa-
kirkjunnar taka undir þetta
viðhorf og segja engan vafa leika
á mætti trúarinnar.
Auk vísindamannanna hugsa
sérsveitir breska hersins sér gott
til glóðarinnar því með tilraunun-
um telja þeir að auðveldara verði
að sigta út nýliða sem kvalist
geta með bros á vör.
- shg
Breskir vísindamenn:
Pyntingar notaðar við tilraunir
GUNNAR SNORRI
GUNNARSSON