Fréttablaðið - 13.01.2005, Síða 24

Fréttablaðið - 13.01.2005, Síða 24
Bush Bandaríkjaforseti hefur miklu fleiri mannslíf á sam- vizkunni en Osama bin Laden. Tölurnar liggja fyrir. Rösklega þrjú þúsund manns týndu lífi í árásum hryðjuverkamanna á New York og Washington 11. september 2001. „Óvinurinn réðst á okkur,“ sagði Bush og sendi Bandaríkjaher fyrst inn í Afganistan og síðan inn í Írak, enda þótt Írakar kæmu hvergi nálægt árásunum 11. september. John Kerry, frambjóðandi demókrata, lýsti þessu ágætlega fyrir forsetakosningarnar í nóvember: þetta var eins og Roosevelt forseti hefði brugðizt við árás Japana á Pearl Harbor í desember 1941 með því að ráðast inn í Mexíkó. Og hvernig er nú umhorfs á vígvellinum í Írak? Bandaríkja- menn hafa misst nálega fjórtán hundruð manns auk 10.000 særðra; tölurnar hækka dag frá degi. Um mannfall meðal Íraka er minna vitað með vissu, þar eð hvorki innrásarliðið né bráða- birgðastjórnin í Írak hefur hirt um að safna upplýsingum um það. Brezkir tölfræðingar athug- uðu málið, þeir fóru hús úr húsi og spurðust fyrir um fjölda fall- inna og gizkuðu í eyðurnar með sömu aðferðum og beitt er við skoðanakannanir. Þeir birtu niðurstöðurnar í læknablaðinu Lancet. Stríðið hafði þá kostað um 100.000 óbreyttra borgara lífið, sögðu Bretarnir. Það var fyrir mörgum mánuðum. Mannfallið meðal Íraka er að vísu að mestu leyti af völdum Íraka sjálfra. Það liggur í hlutar- ins eðli. Bandaríkjamenn máttu vita það, að stríð við hermdar- verkamenn lúta öðrum lögmál- um en millilandastríð. Hryðju- verkamenn berjast með því að hræða eigið fólk frá samstarfi við óvininn. Þannig fór t.d. Mau Mau hreyfingin í Keníu að því að bola Bretum burt úr landinu á sinni tíð. Hryðjumenn drápu 20 sinnum fleiri innfædda en Evr- ópumenn 1952-56 og höfðu sitt fram: Bretarnir fóru heim, Kenía fékk sjálfstæði, og friður komst á. Bush forseti ber höfuð- ábyrgð á mannfallinu meðal Íraka nú að því leyti, að innrás Bandaríkjahers og Breta leysti hermdarverkin úr læðingi – með fulltingi Dana, tveggja Íslend- inga, Ítala, Norðmanna, Pólverja og fáeinna annarra „staðfastra“ og „fúsra“ bandamanna. Hvaða vit er í því að hefna þeirra rösklega þriggja þúsunda, sem féllu 11. september, með stríði, sem hefur kostað meira en 100.000 manns lífið og ekki sér enn fyrir endann á? Með þessu árásarstríði eru Bandaríkin að kalla yfir sig ófrið eins langt og augað eygir fram í tímann. Þetta hefndarstríð – Bush forseti hefur jafnvel kallað það kross- ferð – gengur þar að auki í ber- högg við siðferðishugsjón krist- inna manna, enda varla við öðru að búast af forseta, sem gengur að eigin sögn til allra verka með guðs orð á vörum. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn, sem Banda- ríkjamenn gera sig seka um að sjást ekki fyrir í stríði. Robert McNamara, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna 1961-68, hefur lýst því offorsi, sem Bandaríkjamenn beittu Japana eftir árásina á Pearl Harbor. Vitnisburður hans birt- ist í kvikmyndinni The Fog of War (2004), þar sem McNamara talar tárvotur við myndavél í næstum tvo tíma. Hann lýsir loftárásum Bandaríkjahers á japanskar borgir með því að heimfæra eyðilegginguna á sambærilegar borgir í Banda- ríkjunum. Talnaflóðið fær hárin til að rísa á höfði manns: loft- árásirnar eyðilögðu 56% af Baltimore, 69% af Boston, 35% af Chicago, 40% af Los Angeles, 51% af New York, 36% af Mi- ami, og þannig áfram borg úr borg – og það áður en Hírósíma og Nagasakí voru jafnaðar við jörðu. McNamara lýsir þeirri skoðun, að Bandaríkjamenn hefðu verið dæmdir fyrir stríðs- glæpi í hrönnum, hefðu þeir tapað stríðinu. En þeir bættu Japönum skaðann eftir stríð, að svo miklu leyti sem það var hægt, enda hafa þjóðirnar æ síð- an verið nánir bandamenn. Það er erfitt nú að gera sér í hugar- lund, að Bandaríkjamenn og Írakar geti náð sambærilegum sáttum innan tíðar. Hitt virðist líklegra, að Bandaríkjamenn hrökklist burt frá Írak eins og þeir hrökkluðust burt frá Víetnam 1975. Osama bin Laden gengur laus. Honum tókst að egna Bandaríkin til árásar og reka fleyg milli þeirra og Evrópu. Bandaríkjamenn ættu að hug- leiða örlög Ísraelsríkis. Sú var tíð, að Ísrael naut óskiptrar vel- vildar víða um heiminn sem sak- laust fórnarlamb illra afla. Svo er ekki lengur. Ísraelsmenn hafa með harðýðgi sinni fyrirgert gamalli samúð. Fjölda fólks stendur á sama um mannfallið fyrir botni Miðjarðarhafs: menn horfa undan eins og þeir hafi gengið af slysni fram á tvo fyllirafta að fljúgast á. Banda- ríkjamenn eiga það á hættu, að heimsbyggðin horfi undan og hósti, þegar hryðjuverkamenn gera næstu árás á Bandaríkin. ■ Davíð Oddsson setti fram hugmynd á fundi með flokks-systkinum sínum um að þeir fjármunir sem fáist fyrirsölu Símans verði notaðir til þess að byggja hátækni- sjúkrahús. Víða hafa menn fagnað þessari hugmynd ráðherrans og talað um hana eins og ákvörðunin hafi verið tekin. Því fer fjarri, eins og sjá má á viðbrögðum ýmissa þing- manna stjórnarliðsins. Hins vegar er það svo að í huga almenn- ings hefur ákvörðunin verið tekin. Hefð stjórnartíðar Davíðs Oddssonar er með þeim hætti að hann hefur getað sett fram hugmyndir og komið þeim í gegn, þrátt fyrir andstöðu við þær í eigin flokki og hjá samstarfsflokknum. Tök hans og máttur á þingflokknum og lagni við að koma málum sem forsætisráð- herra í gegnum ríkisstjórn hafa séð til þess að flest mál sem hann hefur látið sig varða hafa náð alla leið. Undanskilin eru fjölmiðlalögin, sem stoppuðu ekki fyrr en á Bessastöðum. Áhugamenn um að ráðist verði í byggingu hátæknisjúkra- húss geta velt því fyrir sér hvort tök Davíðs séu enn hin sömu nú, eftir að hann sté úr stóli forsætisráðherra. Einnig má velta því fyrir sér hvort sá stjórnunarstíll og hefð sem hefur mynd- ast í tíð Davíðs, að hugmyndir settar fram án undangenginnar umræðu séu nánast orðnar að lögum, samræmist almennum hugmyndum um lýðræðisleg vinnubrögð. Hinu verður vart neitað að útspil Davíðs nú er klókt. Innan rík- isstjórnarinnar eru enn skiptar skoðanir um sölu Símans; hvað eigi að selja og hvaða kvaðir eigi að fylgja með í kaupunum. Einnig eru skiptar skoðanir um hvernig beri að verja þeim fjár- munum sem fást við sölu Símans. Yfirlýsingin gerir úrtölumönn- um erfitt fyrir. Andstöðu við sölu Símans og öðrum hugmyndum um hvernig verja beri fjármunum sem losna við söluna verður eflaust snúið upp í andstöðu við byggingu hátæknisjúkrahúss. Davíð slær fleiri flugur í þessu höggi. Hann tekur enn á ný frumkvæðið af Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra. Ákvörðun um að ráðast í byggingu hátæknisjúkrahúss er dæmi- gert útspil forsætisráðherra í áramótaávarpi. Halldór kom ekki með neitt slíkt í sínu ávarpi og skildi eftir autt svæði fyrir leið- toga samstarfsflokksins. Hugmyndin sem slík er góðra gjalda verð og verðskuldar það að verða rædd af alvöru. Fyrir liggur að með slíkri byggingu myndi sá kostnaður sem hlýst af núverandi óhagræði í rekstri Landspítala Háskólasjúkrahúss víða um borgina lækka tölu- vert. Arðsemi byggingarinnar er því augljóslega nokkur. Við þetta bætist að undirbúningstíminn þarf að vera langur og því kæmu áhrif slíkrar framkvæmdar ekki inn í hagkerfið á núver- andi þensluskeiði. Miklu máli skiptir að grunnkerfi velferðarríkisins virki vel og á sem hagkvæmastan hátt. Nýtt hátæknisjúkrahús er liður í því að halda þjóðinni í fremstu röð í heilbrigðismálum. Þar eig- um við að vera. ■ 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR SJÓNARMIÐ HAFLIÐI HELGASON Getur nokkur verið á móti hátæknisjúkrahúsi? Snjall er hann FRÁ DEGI TIL DAGS Innan ríkisstjórnarinnar eru enn skiptar skoðanir um sölu Símans; hvað eigi að selja og hvaða kvaðir eigi að fylgja með í kaupunum. Einnig eru skiptar skoðanir um hvernig beri að verja þeim fjármunum sem fást við sölu Símans. Yfirlýsingin gerir úrtölumönnum erfitt fyrir. ,, Í DAG STRÍÐIÐ Í ÍRAK ÞORVALDUR GYLFASON Augu fyrir auga Halldór hrifinn Gagnrýnendur dagblaðanna hökkuðu í sig jólaleikaleikrit Þjóðleikhússins, Öxina og jörðina. Ekki er víst að óbreyttir áhorf- endur séu sama sinnis; að minnsta kosti er ekkert lát á aðsókn að sýningunni. Einn úr hópnum var svo ánægður að hann sá ástæðu til að hringja í nýja þjóðleikhús- stjórann, Tinnu Gunnlaugs- dóttur, til að lýsa hrifningu sinni. Það var Halldór Ás- grímsson forsætisráðherra og hafa skilaboð hans, sem sam- stundis voru send öllum leikendum, að vonum mælst vel fyrir í húsinu. “Þetta lið“ Hilmar Jónsson, leikstjóri Axarinnar og jarðarinnar, var erlendis þegar verkið var frumsýnt. Þegar leikdómarnir höfðu birst sendi hann leikendum orðsendingu í tölvupósti, sem virðist hafa farið víðar um netið því hann barst meðal annars til rit- stjórnar Fréttablaðsins. Hilmar tekur til varna og kveður fast að orði: „Blaðagrein- ar þessara fyrrum virtu fjölmiðla eru illa skrifaðar, til háborinnar skammar og dæma sig sjálfar. Við hljótum að eiga heimtingu á því að um verk okkar sé fjallað af virðingu, kurt- eisi og fagmennsku þó að þetta lið telji að okkur hafi tekist illa til. Sú fagmennska er því miður ekki til á fjöl- miðlunum í dag“. Sirkus mætir Síðar í orðsendingunni til leikaranna segir Hilmar Jónsson: „Úthaldsleysi þeirra sem um sýninguna fjalla er ... aumkunarvert og óskiljanlegt. Steininn tekur þó úr þegar sirkusinn mætir í bæinn með Jón Viðar Jónsson sem notar sinn tíma í að kasta rýrð á verk Ólafs Gunnarssonar sem á allt gott skil- ið fyrir það afrek sem bókin er. Þetta sá ég ekki fyrir og það hryggir mig. En kæru leikarar látum þetta offors ekki slá okkur út af laginu stöndum með þessu verki okkar minnug hlýlegra orða Ólafs í okkar garð í lok generalprufunn- ar. Fyrst hann er ánægður erum við að gera eitthvað rétt „þrátt fyrir alla dóma“ eins og maðurinn sagði.“ gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 SKOÐANIR OG UMRÆÐUR Á VISIR.IS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.