Fréttablaðið - 13.01.2005, Síða 57

Fréttablaðið - 13.01.2005, Síða 57
Dýrkeyptur for- sætisráðherrastóll FIMMTUDAGUR 13. janúar 2005 Það er oft vandi að sitja í annars manns skjóli. Það fær Halldór Ásgrímsson að reyna þessa dagana og er jafnvel kallaður „forsætis- ráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar“. Þeir birtast sem póli- tískir eineggja tvíburar og sjálf- stæðismenn ná öllum óskamálum sínum fram. Má heita að stefnumál framsóknarmanna séu fullkom- lega fótum troðin í þessu sam- starfi. Talað er um „Litla íhaldið“, hópinn sem nú ræður Framsóknar- flokknum og fylgir formanninum í undirlægjuhættinum við Sjálf- stæðisflokkinn. Ef fram heldur sem horfir verð- ur það hlutskipti Halldórs Ás- grímssonar sem yfirmanns einka- væðingarnefndar að selja Símann. Gallup gerði í mars 2002 skoðana- könnun um afstöðu þjóðarinnar til þeirrar sölu. Rétt 64% kjósenda Framsóknarflokksins voru henni andvíg og yfir 60% allra lands- manna vildu að Síminn yrði áfram í opinberri eigu. Fjöldi framsókn- arfélaga um allt land hefur ályktað gegn sölunni. Öllum ætti að vera ljóst að í svo fámennu og dreifbýlu landi verður aldrei raunveruleg samkeppni í grunnþjónustu fjarskipta. Síminn skilar 2-3 milljarða arði í ríkissjóð árlega svo ekki er hann nú baggi á eigendunum. Þvert gegn vilja meginþorra framsóknarmanna og mikils meirihluta þjóðarinnar ætlar Halldór Ásgrímsson að lúta í gras fyrir frjálshyggjuöflum Sjálfstæðisflokksins og selja Sím- ann. Framsóknarmenn ættu að stöðva formann sinn í þessu máli. Pólitísku tvíburarnir tóku einir ákvörðun um stuðning við innrás- ina í Írak. Að þjóðinni forspurðri settu þeir Ísland á lista hinna vígfúsu ríkja. Aldrei áður hafa íslenskir ríkisborgarar þurft að skammast sín á alþjóðavettvangi og jafnvel leyna þjóðerni sínu til að tryggja öryggi sitt á ferðalögum eða í hjálparstörfum. Um þetta höfum við nú staðfest dæmi frá Írak auk fjölmargra landa Asíu og Afríku. Samkvæmt nýrri skoðanakönn- un Gallups eru 84% þjóðarinnar og um 80% framsóknarmanna á móti stuðningi Íslands við innrásina í Írak Halldór Ásgrímsson lét að því liggja í fréttum að almenningur skildi ekki málið. Hann er augljós- lega orðinn viðskila við sinn eigin flokk eins og raunveruleikann. Eftir hina makalausu fram- göngu í fjölmiðlamálinu hefði mátt vænta þess að forystumenn ríkis- stjórnarflokkanna reyndu að end- urheimta sátt við þjóðina í um- gengni við lýðræðið og stjórnar- skrá landsins. Forysta Sjálfstæðis- flokksins hefur þó valið að snið- ganga stjórnsýslulega stöðu for- setaembættisins og sýna því lítils- virðingu. Er skemmst að minnast ræðu forseta þingsins við setningu Alþingis í haust og fjarveru megin- þorra þingmanna og ráðherra Sjálfstæðisflokksins í boði forseta á Bessastöðum 1. desember sl. Um miðjan síðasta mánuð til- kynnti Halldór Ásgrímsson að hann hygðist skipa nefnd til að endurskoða stjórnarskrána. Í bréfi sem formönnum stjórnmálaflokk- anna var sent með beiðni um til- nefningu voru engin skilyrði sett fyrir vinnu nefndarinnar. Eitthvað hefur þetta farið fyrir brjóstið á aftursætisbílstjóranum því í næsta bréfi sagði að stjórnarskrárnefnd- in ætti einkum að endurskoða þá kafla, sem lúta að stöðu forseta- embættisins. Forysta Sjálfstæðis- flokksins ætlar sér að afnema mál- skotsrétt forsetans og herða svo á reglum um þjóðaratkvæða- greiðslur að þær verði óvirkar. Það hlýtur að vera nöturlegt fyrir framsóknarmenn að einnig í stjórnarskrármálinu skuli formað- urinn ganga gegn vilja þeirra en fylgja kröfum sjálfstæðismanna, sem eru kampakátir. En margur framsóknarmaðurinn hlýtur að vera dapur og finnast forsætisráð- herrastóllinn dýru verði keyptur. ■ Fjölgum liðum í efstu deildinni Nú þegar nálgast 59. ársþing KSÍ, sem haldið verður laugardaginn 12. febrúar, er í lagi að taka þá umræðu um að fjölga liðum í efstu deild úr 10 í 12. Það er alveg ljóst í mínum huga að það er tíma- bært. Það er auðvelt að færa rök fyrir því. Undanfarin ár hefur KSÍ gert átak í þjálfaramálum og er það undantekning ef þjálfari yngri flokka eða meistaraflokks er ekki íþróttamenntaður á einhvern hátt eða hefur lokið ein- hverjum þjálfaranámskeiðum á vegum KSÍ. Þannig eru nú fleiri hæfir þjálfarar að búa til fleiri leikmenn. Aðstaðan hefur batnað og knattspyrnuhallir hafa gert góða hluti. Á síðustu árum hefur aðstaða flestra félaga batnað töluvert og auk þess hafa knatt- spyrnuhallir verið að bæta æf- ingaaðstöðu að vetri til. Iðkendum hefur fjölgað margfalt síðustu ár. Eins og þeir vita sem fylgjast með knattspyrnu hefur iðkendum fjölgað mikið á síðustu árum og er knattspyrna vinsælasta íþróttin á Íslandi í dag. Þessi fjölgun iðk- enda gerir það að verkum að fleiri góðir leikmenn eru til. Áhorfend- um hefur fjölgað á leikjum í efstu deild og ekki spurning um að þeir fagna því að fá að sjá fleiri leiki með sínu liði. Síðast en ekki síst vilja knattspyrnumenn freka spila leiki en vera á æfingu. Það eru ýmsar leiðir sem hægt er að fara við að fjölga liðum í efstu deild. Hægt er að spila tímabilið þéttar en gert hefur. Það er hægt að lengja tímabilið fram á haustið eða byrja tímabilið fyrr og nota þá íþróttahallirnar í fyrstu umferð- um. Blanda þessu saman og lengja jafnframt keppnistímabilið í heild. Fyrir stjórnarmann liðs og þá sem eru að vinna við leikina eru þetta tveir leikir sem spilaðir yrðu á heimavelli eða í knatt- spyrnuhöll. Fyrir stuðningsmann liðs er þetta fjölgun um fjóra leiki, það sama á við leikmenn og þjálfara. Það er ekki spurning hvort heldur hvenær á að fjölga liðum í efstu deild. Vonandi verður sú ákvörðun tekin á þessu ársþingi KSÍ. ■ JÓN BJARNASON ALÞINGISMAÐUR UMRÆÐAN STJÓRNARSAMSTARFIÐ Það er oft vandi að sitja í annars manns skjóli. Það fær Halldór Ás- grímsson að reyna þessa dagana og er jafnvel kallað- ur „forsætisráðherra í ríkis- stjórn Davíðs Oddssonar“. ,, ÓMAR STEFÁNSSON FORSTÖÐUMAÐUR ÍÞRÓTTAVALLA Í KÓPAVOGI UMRÆÐAN KNATTSPYRNA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.