Fréttablaðið - 13.01.2005, Page 62
Þennan dag árið 1942 fékk
Henry Ford einkaleyfi á bíl úr
plasti. Plastið var tiltölulega
nýtt efni á þessum árum en olli
byltingu á mörgum sviðum sam-
félagsins. Plast er reyndar ekk-
ert eitt efni, heldur fremur
flokkur óskyldra efna sem flest
eru unnin úr jarðolíu, þótt plast-
ið í Fordinum væri gert úr soja-
olíu. Reyndar hafa þessi efni
gengið undir þversagnakenndu
nafni á íslensku: gerviefni. Ekki
kom til framleiðslu á plastbíl
Fords. Þótt yfirbygging hans
væri úr plasti var hann aðeins
30% léttari en bræður hans sem
gerðir voru úr stáli. Í hann var
notað mikið magn af málmi og
því var hann kannski ekkert sér-
staklega hentugur til fram-
leiðslu á stríðstímum. Seinna
komu á markað bílar með yfir-
byggingu úr plasti, af ýmsum
tegundum, austan hafs og vest-
an. Chevrolet Corvette er senni-
lega frægasti ameríski plastbíll-
inn, fyrst framleiddur 1953. Í
Evrópu er þekktasti plastbíllinn
eflaust Trabant 601. Ingvar
Helgason flutti hann til Íslands,
fyrst árið 1963 og seldi hann hér
alla tíð síðan, meðan hann var
framleiddur í Austur-Þýska-
landi. Trabant átti forföður, P-
70, sem var fluttur hingað til
lands á sjötta áratugnum. P-70
entist ekki sérstaklega vel en
Trabant var furðu seigur og enn
eru gangfær eintök til. (Heim-
ildir m.a. sóttar í bók Sigurðar
Hreiðars, „Saga bílsins á Íslandi
1904 – 2004“.) ■
30 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
JAMES JOYCE (1882-1941)
dó þennan dag.
Plast-Fordinn og
sporgenglar hans
“Engin trúvilla né heimspeki vekur
kirkjunni jafn mikinn viðbjóð og
maðurinn sjálfur.“
Hann vakti ekki beinlínis fögnuð kirkjunnar manna.
timamot@frettabladid.is
Þennan dag 1950 rauk fastafull-
trúi Sovétríkjanna í öryggisráði
SÞ, Jakob Malik, á dyr í annað
sinn á einni viku. Þetta voru við-
brögð við niðurstöðu atkvæða-
greiðslu um brottvísun ríkis þjóð-
ernissinna sem eftir valdatöku
kommúnista var takmarkað við
Taívan eða Formósu. Nokkrum
dögum fyrr hafði Malik gengið á
dyr eftir að tillaga um aðild Kín-
verska alþýðulýðveldisins að
Sameinuðu þjóðunum var felld.
Um leið og Malik gekk á dyr í
seinna skiptið tilkynnti hann að
Sovétríkin mundu hunsa fundi
öryggisráðsins. Aðrir fulltrúar í
ráðinu ákváðu að halda áfram
starfsemi þess, þrátt fyrir brott-
hvarf Sovétríkjanna. Þessi afstaða
Rússa átti eftir að koma þeim í
koll. 27. júní 1950, eftir að Norð-
ur-Kórea réðst inn í Suður-Kóreu
fluttu Bandaríkin tillögu um við-
brögð af hálfu Sameinuðu þjóð-
anna. Sovétmenn voru fjarver-
andi og gátu því ekki beitt neit-
unarvaldi sínu gegn tillögunni.
Því var herliðið sem brást til varn-
ar og Bandaríkin veittu forystu,
undir fána Sameinuðu þjóðanna.
Þetta sveið Sovétmönnum æ síð-
an. Samkvæmt stofnskrá Samein-
uðu þjóðanna höfðu stórveldin
neitunarvald í öryggisráðinu. Þau
voru – og eru – auk Sovétríkj-
anna, Bandaríkin, Bretland, Frakk-
land og Kína. Þetta fyrirkomulag
hefur sætt vaxandi gagnrýni á
seinni árum en á sér líka einarða
stuðningsmenn.
Jakob Malik greiðir atkvæði á fundi í
öryggisráði SÞ.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1898 Grein Zola, J’accuse, birtist
í frönsku blaði.
1942 Fulltrúar níu þjóða sem
hersetnar voru af Þjóðverj-
um samþykkja að þeir
verði lögsóttir fyrir stríðs-
glæpi að styrjöld lokinni.
1949 Fyrsta íslenska talmyndin í
litum og fullri lengd, „Milli
fjalls og fjöru“ eftir Loft
Guðmundsson, frumsýnd.
1964 Karol Wojtyla verður bisk-
up í Kraká. Hann varð
seinna Jóhannes Páll páfi.
1968 Tet-sóknin hefst í Víetnam.
1975 Guðmundur Sigurjónsson
verður stórmeistari í skák,
27 ára gamall. Hann var
annar Íslendinga til þess
að ná þessum titli. Fyrstur
var Friðrik Ólafsson.
1976 Jarðskjálfti upp á 6,2 stig á
Richter veldur skemmdum
á Kópaskeri.
Sovétríkin hunsa öryggisráðið
Elskulegur eiginmaður minn, stjúpfaðir, bróðir
og mágur,
Jóhann Ásmundsson
safnstjóri Minjasafns Egils Ólafssonar,
Hnjóti, Örlygshöfn,
sem andaðist á Líknardeild LSH í Kópavogi föstudaginn 31. desember
síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 14.
janúar kl. 15. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem
vilja minnast hans er bent á safnreikning Minjasafns Egils Ólafssonar,
Hnjóti, í Sparisjóði Vestfirðinga nr. 1118 05 402255, kt. 560184-0269.
Magnea Einarsdóttir
Árni Klemensson,
Einar Dagfinnur Klemensson, Hildur Sonja Guðmundsdóttir
Jenný Ásmundsdóttir, Guðmundur Benediktsson
Hildur Hanna Ásmundsdóttir, Gylfi Jónsson
Benedikt Grétar Ásmundsson, Kristín Jóhannesdóttir.
Ástkær móðir okkar, amma og langamma
Maj-Britt Stefánsson
fædd Bülow,
Lindargötu 66, 101 Reykjavík, áður Akureyri,
lést á Landspítala-háskólasjúkrahúsi, þriðjudaginn 11. janúar.
Jarðarför hennar fer fram í kyrrþey.
Percy B. Stefánsson, Stefán B. Sigtryggsson, Arnar, Alex, Sigtryggur,
Stefanía, Maj-Britt, Aníta og Ilmur.
Elsku litli drengurinn okkar,
Karl Hannes Unnarson
lést á heimili sínu sunnudaginn 9. janúar,
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 7. janúar kl. 13.
Unnur Karen Karlsdóttir, fjölskyldan Langagerði 9
og aðrir aðstandendur.
Ólafs Stefánssonar
lögfræðings, Engihjalla 1, Kópavogi,
Við þökkum innilega þeim fjölmörgu sem hafa sýnt
okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 30. desember sl.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landspítalans
í Kópavogi og krabbameinsdeildar Landspítalans við Hringbraut.
Soffía M. Sigurjónsdóttir, Bragi Ólafsson, Sigrún Pálsdóttir,
Helga Ólafsdóttir, Helgi Björn Kristinsson, Sigurjón Ólafsson,
Arna Kristjánsdóttir og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir mín, dóttir, systir
og mágkona,
Kristrún Sigurvinsdóttir Georges
Mentor, Ohio, USA, (Vesturbraut 11, Keflavík),
lést á Háskólasjúkrahúsi Fossvogi 9. janúar. Jarðarförin fer fram
frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 14. janúar kl. 11.00.
Leo Georges, Christopher Georges, Jóhanna Karlsdóttir, systkini
og makar.
Útför frænda okkar
Gunnars Páls Björnssonar
frá Grjótnesi,
fer fram frá Snartastaðakirkju
laugardaginn 15. janúar kl. 14.
Aðstandendur.
AFMÆLI
Margrét Nikulásdóttir, frá Ási í Keldu-
hverfi, varð áttræð á þriðjudaginn, 11.
janúar. Af því tilefni býður hún til kaffi-
samsætis í Laugaborg á laugardaginn
kemur klukkan 14.00.
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri
Landsbankans, er fimmtugur í dag.
Ingimundur Sigfússon sendiherra er 67
ára í dag.
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari er 38
ára.
ANDLÁT
Dóróthea Fr. Ólafsdóttir, áður í Löngu-
hlíð 3, Reykjavík, lést mánudaginn 10.
janúar.
Karl Hannes Unnarsson lést sunnudag-
inn 9. janúar.
Magnús Eiríksson vörubílstjóri lést
sunnudaginn 2. janúar. Útförin hefur far-
ið fram í kyrrþey.
JARÐARFARIR
13.00 Óli Jóhannes Ragnarsson frá
Skálum, Langanesi, Gyðufelli 12,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju.
13.30 Vildís Jónsdóttir, áður Dalsgerði
3b, Akureyri, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju.
14.00 Íris Birta Eyjólfsdóttir, Þverholti
14, Keflavík, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju.
Henry Ford við plastbílinn sem hann fékk einkaleyfi á 1942. Trabant 601 er eflaust þekktasti plastbíllinn í Evrópu.