Fréttablaðið - 13.01.2005, Qupperneq 78
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Bremerhaven.
Arnarholti.
Hrafninn flýgur.
46 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Útvarpsþátturinn Tvíhöfði, með þá
Sigurjón Kjartansson og Jón
Gnarr innanborðs, er að hætta.
Þetta tilkynntu þeir félagar í þætt-
inum í gærmorgun.
„Við erum að fara að snúa
okkur að öðrum vettvangi, sem
myndi væntanlega vera í öðrum
fjölmiðlum en útvarpi,“ segir
Sigurjón Kjartansson um þessi
óvæntu tíðindi í íslenskum fjöl-
miðlaheimi. „Það er ekki útséð
nákvæmlega hvað verður en þessi
þáttur eins og við þekkjum hann er
á enda runninn.“
Sigurjón segir að þátturinn hafi
ekki borið sig þrátt fyrir miklar
vinsældir. Þrátt fyrir að um 15 til
20 þúsund manns hafi hlustað á
hann á hverjum morgni virðist
sem auglýsendur hafi ekki tekið
við sér. „Markaðsfræðin hefur
ekki dansað í sama takti og það
sem við höfum verið að bjóða upp
á. Það eru engar sérstakar skýr-
ingar á þessu. Það hefur bara
gengið illa að selja auglýsingar í
þáttinn,“ segir hann en bætir því
við að hann og Jón hafi fullan hug
á að starfa saman áfram. Að sögn
Jóns er ein af ástæðum fyrir aug-
lýsingaskortinum sú að þeir fé-
lagar hafi ekki verið sérlega fyrir-
tækjavænir í gegnum tíðina. „Við
höfum viljað halda okkar sjálf-
stæði og ekki farið í beinar útsend-
ingar í bílaumboð eða kjammsað á
snakki eða súkkulaði í þættinum
eins og víða er gert. Það bitnar
bara á dagskrárgerðinni.“
Tvíhöfði hóf göngu sína sum-
arið 1996 og var samfleytt í loftinu
sem morgunþáttur á árunum 1998
til 2002. Þá tóku þeir félagar sér frí
þar til þátturinn byrjaði aftur
fyrir tæpu ári síðan. Nú er hann
sem sagt að renna sitt skeið á enda
á nýjan leik og verður síðasti þátt-
urinn líklega í næstu viku.
Aðspurðir játa þeir báðir að
söknuður sé að Tvíhöfðanum. „Ég
sakna þess sannarlega að gera
þetta eins og við gerðum þetta á
daglegum „basis“. Þetta er samt
tregablandin gleði. Það er líka
mjög spennandi að huga að öðrum
hlutum og ég er dauðfeginn að fá
að prófa að mæta í vinnuna
klukkan níu eins og flestir aðrir,“
segir Sigurjón og Jón bætir við:
„Það er náttúrlega þykk sorg yfir
því að hætta en maður verður líka
að sætta sig við að þetta gengur
ekki.“
Hvorugur þeirra vill gefa upp
hvað þeir taki sér fyrir hendur
næst en sjónvarpið telst þó vera
líklegur kostur. Sigurjón byrjar
væntanlega að leika í nýrri þátta-
röð af Svínasúpunni á næstunni,
sem yrði sýnd á Stöð 2 næsta haust
og hugsanlega verður Jón þar með
í för. freyr@frettabladid.is
Það er alrangt að Kate Winslet
hafi verið á næturklúbbi í Reykja-
vík um helgina. Hún hefur aldrei
komið til Íslands og var í Los Ang-
eles með fjölskyldu sinni á
laugardaginn var,“ segir
Sara Keene hjá fyrirtæk-
inu Premier PR í London
en fyrirtækið sér um öll
almannatengsl fyrir
Winslet.
Dyraverðir á
skemmtistaðnum Rex
töldu sig hafa borið
kennsl á Winslet á
laugardagskvöld og að
þeirra sögn var hún
glæsileg en lét lítið
fyrir sér fara. DV
og Fréttablaðið
sögðu frá þessu
meinta Íslands-
djammi Titanic-
leikkonunnar og
birtust þær
fréttir einnig á vefmiðlinum
Vísi.is og bárust þannig inn á borð
Söru, sem varð að bregðast skjótt
við og bera fréttirnar til baka.
„Daily Mail hérna á
Englandi hringdi í
okkur og vildi fá
staðfestingu á
fréttum frá Ís-
landi um að frú
Winslet hefði
verið á nætur-
klúbbi í
Reykjavík í
fylgd annars
manns en eig-
i n m a n n s
h e n n a r.
V i ð
u r ð -
um að senda tilkynningu út á alla
fjölmiðla í Bretlandi og láta vita
að þessi frétt væri ekki á rökum
reist.“
Sara segir að það geti verið
vont að eiga við það þegar svona
fréttir eru prentaðar þar sem þær
fari eins og eldur í sinu út um
allan heim með tilkomu netsins.
„Þetta kemur sér vitaskuld mjög
illa fyrir frú Winslet, sem er ham-
ingjusamlega gift kona,“ segir
Sara og bætir því við að það væri
verðugt verkefni að hafa uppi á
tvífara Winslet sem afvegaleiddi
dyraverði Rex og tvö íslensk dag-
blöð. Sé hún jafn lík Winslet og
ætla megi gætu henni opnast ein-
hverjar dyr í Hollywood. ■
Winslet á tvífara í Reykjavík
ÚTVARPSSTJÖRNUR HÆTTA Í LOFTINU: SNÚA SÉR AÐ ÖÐRUM VETTVANGI
Tvíhöfði á enda runninn
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
...fær Hrafn Gunnlaugsson fyrir
að leggjast í metnaðarfulla DVD-
útgáfu af kvikmyndinni Hrafninn
flýgur. Diskurinn, sem verður tal-
settur á nokkur tungumál, kemur
út um páska.
HRÓSIÐ
AÐ MÍNU SKAPI
STEFNIR GUNNARSSON, SÖNGVARI Í LADA SPORT
TÓNLISTIN Tónlist hefur alltaf verið
mjög stór partur af mínu lífi og til dæm-
is byrjaði ég víst að syngja áður en ég
byrjaði að tala. Það var lagið Don’t
Worry, Be Happy, sem reyndar á mjög
vel við mig vegna þess að ég er mjög
rólegur strákur. Annars hef ég verið að
hlusta mikið á diskinn Relationship of
Command með hinni merku en látnu At
the Drive-In og Betty Takes a Ride með
snillingunum í íslenska bandinu Ísidór,
og svo alltaf smá Ensími með.
BÓKIN Ég hef aldrei verið mikið í því að
lesa en þó eitthvað. Þegar ég les bók
þarf ég að vita, áður en ég byrja, að hún
sé áhugaverð og almennt góð. Seinast
las ég ljóðabókina Blá fiðrildi eftir
Leonard Cohen í þýðingu Guðmundar
Sæmundssonar, en Cohen samdi
einmitt lagið Hallelujah sem varð hvað
vinsælast í flutningi Jeffs Buckley.
BÍÓMYNDIN Ég fór með kærustunni á
nýju Stuðmannamyndina í síðustu viku.
Það var alveg hreint prýðisskemmtun.
Annars finnst mér flest bíóhús á landinu
óþægileg og vil heldur liggja heima með
vinum eða fjölskyldunni yfir góðri grín-
mynd.
BORGIN Þar sem ég hef aldrei farið út
fyrir landsins steina ætla ég bara að
nefna fæðingarstaðinn minn; Vest-
mannaeyjar. Pabbi býr þar enn með
sinni fjölskyldu og mér þykir ótrúlega
gott að kíkja þangað við og við til að
slappa af og ná mér niður af stressinu í
„stórborginni“.
BÚÐIN Ég er tiltölulega nýbúinn að upp-
götva búðina Illgresi á Laugaveginum
þar sem fást hreint ótrúlega flott föt á
nánast ekki neitt. Svo eru vitaskuld tón-
listarbúðirnar algjörlega ómissandi; eins
og 12 Tónar og Geisladiskabúð Valda.
Eins og flestir Íslendingar er ég ekkert of
hrifinn af Skífunni vegna ótrúlega hás
vöruverðs.
VERKEFNIÐ Við strákarnir í Lada Sport
erum byrjaðir að semja á fullu fyrir nýja
plötu sem, ef allt gengur að óskum, á að
verða fjölbreyttari, þéttari, vandaðri og
bara betri en platan okkar Personal
Humour sem kom út í septermber og
fékk þrátt fyrir allt frábærar viðtökur. Ég
vil nota tækifærið, fyrir hönd okkar allra,
og þakka innilega fyrir okkur.
Blá fiðrildi, Vestmannaeyjar, Illgresi og hamingjan
KATE WINSLET Þessi fræga leikkona var víst ekki
að tjútta á Rex um helgina. Tvífari hennar hefur
þó líklega verið á staðnum og fjölmiðlafulltrúi
Winslet gæti vel hugsað sér að fá að kynnast þeirri
konu betur.
– hefur þú séð DV í dag?
-Loðin tíska
í vetur
-Fitness-
drottning
-Flott í rækt-
inni
TÍMARITIÐ
MAGASÍN
FYLGIR DV Í DAG
2. TÖLUBLAÐ 3. ÁRGANGUR – FIMMTUD
AGURINN 13. JANÚAR
Guðrún Ingadansar af ástríðu
Læknaðist af
kvíðanum
með hjálp
minnistaflna
Loðin tíska í vetur
Sjóðheitir pelsar
FLOTT
Vertu
í ræktinni
Börnin hjá pabba
Reynslusaga
forsjárlausrar móður
FREYJA FITNESSDROTTNING
OPNAR FATASKÁPINN[ ]
MAGASÍN
20tips fyrir
fallegt hár
Heilsurækt
og námskeið
á nýju ári
TVÍHÖFÐI Þátturinn Tvíhöfði er að hætta. Þetta tilkynntu þeir félagar Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr í gærmorgun.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
Lárétt: 2 hróp, 6 hvíldi, 8 sláa, 9 lengst frá, 11
tveir eins, 12 brothætt, 14 stóran fugl, 16 í röð,
17 tímabili, 18 beisk, 20 frá, 21 sáðland.
Lóðrétt: 1 fánýtt skraut, 3 rykkorn, 4 andleg
flatneskja, 5 háttur, 7 kærleiksþurfi, 10 eins um
ö, 13 veitingastaður, 15 ganga, 16 frysta, 19
ending.
Lausn.
Lárétt: 2kall,6lá,8ráa,9yst,11gg,12stökk,
14strút,16íj,17ári,18súr, 20af, 21akur.
Lóðrétt: 1glys,3ar, 4lágkúra,5lag,7ástsjúk,
10töt,13krá,15tifa,16ísa,19ru.