Tíminn - 11.05.1975, Síða 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 11. mai 1975.
Baðföt
í rigningu
Lengi má láta sér detta eitthvaB
nýtt i hug til aö fullnægja eftir-
spurn i tizkuheiminum. Hiö
allra nýjasta I baöfatatizkunni
eru regnkápur til að skýla sér
meö ef svo skyldi fara aö þaö
rigndi á ströndinni eöa i sund-
lauginni. Um notagildi þessarra
hliföarflika er ekki aö efast, og
veröur þessari nýju baöfata-
tizku sjálfsagt vel tekiö, eins og
svo mörgum stundarfyrirbær-
um fyrr og siðar.
■ .
Eremitasjen-
safn sýnir í
Bandaríkjunum
Nú stendur yfir, i Metropolitan-
safninu i New York sýning á
munum frá Eremitasjen-safn-
inu i Leningrad.
A sýningunni, sem hófst i
april, gefur að lita fjölda sér-
stæöra sýnishorna af list þeirra
austrænu þjóðflokka, sem fyrir
löngu siöan bjuggu á landsvæði
þvi, þar sem nú eru Sovétrikin.
Meðal annarra hluta, sem
þarna eru sýndir, má nefna
fjársjóð, sem fannst i grafhýsi i
Kákasiu og ýmsa hluti úr hinu
forna Urartiska riki (Trans-
kákasiu). Einnig eru þarna at
hyglisverðir hlutir, sem fundizt
hafa i Altaifjöllum i Siberlu, en
þaö má þakka hinum eilifu
kuldum á þessu svæöi, að þessir
hlutir eru mjög vel varðveittir.
Munir frá hinu heimsþekkta
gullsafni, sem varðveitt er i
Erimitasjen, skipa einnig veg-
legan sess á þessari sýningu.
Metropolitan-safniö I New
York mun endurgjalda þessa
heimsókn með sýningu i Ere-
mitasjen-safninu á meira en
hundrað verkum eftir- vestur-
evrópsia málara, frá Tizian til
Picasso og sýnishornum af
amerlskri málaralist frá 18., 19.
og 20. öld.
*
Úlfaldamjólk
Rikisbú nokkurt á Mangysjlak-
skaga við austurströnd Kaspia-
hafs er nú byrjað að rækta
úlfalda. Búið mun sérhæfa sig I
framleiöslu á „sjubata”, bragð-
góðum og hollum drykk, sem
framleiddur er úr úlfaldamjólk.
Býlin á þessu svæði eru nú sam-
tals með meira en 13.000
úlfalda.
Landbúnaðar-
vélarnar
batna stöðugt
Sovézk fyrirtæki, sem framleiða
landbúnaðarvélar eru stöðugt
að bæta framleiðslu sina á eldri
gerðum og hefja framleiðslu á
nýjum. 1 Leningrad er nú til
dæmis smlðuð dráttarvél, sem
getur unnið sama verk og f jórar
til fimm dráttarvélar af eldri
gerðum.
Dráttarvélastjórnendur njóta
æ betri vinnuaðstöðu. 1 stýris-
húsi dráttarvéla frá Kharkov er
t.d. miðstöðvarkerfi, og hægt að
stjórna hitanum, bæði að sumri
og vetri, og þar er einnig full-
komið loftræstikerfi. Alls eru nú
framleiddar um það bil 100
endurbættar vélargerðir, sem
einnig eru fluttar út I stórum
stil, auk þess, sem þær eru
notaöar á innanlandsmarkaði.
¥
Fjárhirzla fyrir
eðalsteina
í Karaganda i Kasakhstan hefur
verið sett á stofn fjárhirzla fyrir
eöalsteina, þar sem safnað hef-
ur verið saman meira en 10.000
sýnishornum málmsteina i öll-
um regnbogans • litum, sem
fundizt hafa I Kasakhstan.
Þama má finna mjög sjaldgæfa
tegund ópals, stóra krystalla og
reykkvarz. Einnig tinnustein,
bergkristal, marmara, jaspis,
silfurklumpa og koparstykki,
sem vega meira en 250 kiló, auk
margs annars.
*
Drekka 14.000
ára gamalt vatn
í meira en tiu ár hefur neðan
' sjávarstöðuvatnið Jzsjan séð
borgum og þéttbýliskjörnum i
vesturhluta sovétlýðveldisins
Turkmeniu fyrir vatni. Turk-
menskir vatnsfræingar hafa nú,
isamvinnu við visindamenn frá
Moskvu, komist að þvi, að þessi
einstæða vatnslind undir Kara-
kum-eyðimörkinni hafi mynd-
ast i saltvatnslagi fyrir 14.000
árum. Þetta styður þá tilgátu að
Jasjan hafi eitt sinn i fyrndinni
veriö hluti af fljóti.
★
86 metra
há stífla
Viö ána Talas, i sovétlýðveldinu
Kirgisiu, sem er i Mið-Asi'u, hef-
ur verið byggð 86 metra há
stifla. Við stffluna hefur mynd-
azt grlðarmikið vatn, sem hægt
verður að nota til að vökva
vlðáttumikil landbúnaðarsvæði,
bæði I Kirgisiu og Kasakhstan.
DENNI
DÆMALAUSI
„Maður lærir alltaf eitthvað nýtt
á hverjum degi”.
„Vissuð þið að það er ekki hægt
að baka pönnukökur i brauðrist”.