Tíminn - 11.05.1975, Síða 31
Sunnudagur IX. mai 1975.
TÍMINN
31
Hljómplötudomar
Nú-tímans
• ö ■ v .. .
★ ★ ★ ★ ★
EKKERT LAG geysist jafn-
hratt upp erlenda vinsæida-
lista og lagið „Lovin’ You”
með söngkonunni Minnie
Riperton. Perfeckt Angel er
fyrsta sólópiata hennar og ég
ætla mér ekki það að hæla
plötunni, — látum Stevie
Wonder um þá hlið málsins.
Hann segir: „Þegar Minnie
syngur titrar allt og skelfur
innra með mér. Söngur henn-
ar snertir mig eins og enginn
annar hefur gert né getur
gert. Það er erfitt að trúa þvi
hversu hátt og fallega hún get-
ur sungið. En þar sem ég
þekki hana, trúi ég þvi. Stund-
um ligg ég og reyni að ímynda
mér hversu falleg sái hennar
hljóti að vera. Þakka þér fyrir
tónlist þlna, Minnie.... Astar-
gjöf, sem allur heimurinn ætti
að sjá.
Ekki ætla ég mér að bæta
hér um. Stevie Wonder veit
sennilega fullvel hvað hann
segir. Hann leikur með Minnie
á plötunni og hún syngur tvö
lög eftir hann.
Útsetning laga er eftir hann
(Wonderlove) og I heild ber
platan þess merki, að vinnu-
brögð Stevie Wonder hafa ver-
ið I hávegum höfð, auk þess
sem tónlistin sver sig I ætt við
hans eigin. __g.S.
★ ★ ★ -s-
HLJ ÓMSVEITIN BLUE
ÖYSTER CULT er Htt þekkt
hér á landi og má rekja ástæð-
urnar fyrir þvi til þess, aö
hljómsveitin hefur skipað sér I
þann flokk bandariskra
,,heavy”-rokk hljómsveita,
sem aldrei hafa komizt upp úr
meðalmennskunni, og þar af
leiöandi aldrei vakið verulega
athygli.
Plata þessi eða réttara sagt
plötur (tvöfalt albúm) eru
teknar upp á allmörgum
hljómlcikum Blue öysters
Cult og hefur hljóðritunin að
minu viti tekizt meö ágætum.
Lögin á plötunum eru I
svokölluöum hard-rokk stn, og
þar sem hér er um „live”-
plötur að ræða fléttast inn I
lögin tilheyrandi löng og mis-
góð gltarsóló, sem einhver
þriggja gltarleikara hljóm-
sveitarinnar framkvæmir I
það og það skiptið.
Allur annar hljóöfæraleikur
er eins góöur og hægt er að bú-
ast við af „live”-plötu. Hard-
rokkið þeirra félaga má flokka
undir frekar tormelta tónlist,
en fyrir þá, sein gaman liafa
af hávaðasömu rokki og löng-
um gltarsólóum, er platan hin
ákjósanlegasta. Ég tel þó, að
útkoman heföi orðið betri, ef
þvi bezta á plötunum tveimur
heföi verið safnað saman á
eina skifu. —
SþS
★ ★ ★ ★ +
/~V'vx
MICHAE t. ,*t MUKPHEV
KLUE' SKY NIGHT THUNOKK
MICHAEL MUSPHEY er enn
eitt dæmi um tónlistarmann,
sem við íslendingar höfum al-
gjörlega látið fara framhjá I
okkur. Nýjasta plata hans er
sú fjórða I röðinni og nefnist
Blue Sky Night Thunder.
Platan er aö mlnu mati
bezta plata hans sökum þess
hve heilsteypt hún er. Sem
fyrr liggja rætur tónlistarinn-
ar I country-tónlistinni, þó svo
ekki sé hægt að kalla tónlist
Murphey’s country-tónlist
Nær sanni væri að segja, að
hún væri sambland af
(Eagles) léttu country-rokki
og þjóðlagatónlist (DanMc
Lean).
Murphy til aðstoðar eru
ýmsir góðir kappar eins og
þeir félagar Jeff Hanna og
John McEuen úr The Nitty
Gritty Dirt Band, — og Jack
nokkur Murphey, sem leikur
frábærlega vel og meö mikl-
um tilþrifum á pianó, — og
minnir leikur hans oft á Chuck
Leawell úr Allman Brothers.
Blue Sky Night Thunder er
bráðskemmtileg og vönduð
plata, sem allir, Eagles,
Pokos Byrds og jafnvel Jack-
son Browns aödáendur ættu að
kunna að meta, — að
ógleymdum öllum hinum
country-rokk aðdáendunum.
— GG
★ ★ ★
ÞAU eru ekki mörg árin liöin
slðan þrfr blökkumenn vestur
I Bandarikjunum stofnuðu trió
sitt, sem þeir nefndu O’Jays,
— en þótt skammur timi sé liö-
inn þá hafa þeir með plötum
sinum skapað sér eitt stærsta
nafn I soul-tónlistinni og virð-
ast áhrif þeirra og vinsældir
sizt fara þverrandi.
Tónlist O’Jays er þessi
rythmiska og þungtaktaöa
soul-tónlist, sem aðeins er á
færi blökkumanna að leika, og
á tónlistin allan sinn grunn I
negratónlistinni, og sækir
akkúrat ekkert á önnur mið.
Strengjahljóðfæri eru mikið
notuð, og eins er eitt einkenni
þeirra mikil og góö radd-
færsla.
Margir hafa viljað halda þvl
fram, að O’Jays séu arftakar
hljómsveitarinnar Four Tops,
sem varð glfurlega vinsæl á
slnum tlma. Að minni hyggju
er margt til I þeim orðum, þvl
að þeim svipar óneitanlega til
Four Tops. Þó er þvl ekki að
neita, að Four Tops fluttu
meira léttmeti (án þess að
gagnrýni felist I oröinu) en
O'Jays.
Hér er plata, sem erfitt er að
segja til um hvort er betri eða
verri en fyrri plötur O’Jays.
Alltént ætti hún að falla I góö-
an jarðveg þeirra, sem þekkja
til þeirra og meta ósvikna
soultónlist. — G.S.
EJE]G]E1E]E|E]E]E1E1E]@E]E]E]E]G]E]E]E]E]E]B]EJE]B]E]E]E]E]E]
STURTUVAGNAR og vorvinnutæki
Eigum sturtuvagna
4 1/2 tonna
á 1000x16-8 laga flot-
börðum kr. 288 þúsund.
Henta vel fyrir alhliða
flutninga- og votheys —
sem baggahirðingar.
HAUGSUGUR — COLMAN/B&SA
aftur fyrirliggjandi með mjög öflugum búnaði
— Verð kr. 543 þúsund með barka
Kaupfélögln
UM ALLTIAND
Sambánd islenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
Ármula 3 Reykjavik simi 38900
0E]E]E]E]E]E]E!E]E]E]G]G]E]EJE]E]E|B]E|E]E]E]E]E]E]E]B]E]S]g|