Fréttablaðið - 30.07.2005, Síða 26

Fréttablaðið - 30.07.2005, Síða 26
Loftþrýstingur Áður en lagt er af stað í lengri ferðir er gott að athuga loftið í dekkjunum. Það er mikið örygg- isatriði að hafa réttan loftþrýsing í dekkjunum enda getur of mikið eða of lítið loft beinlínis ver- ið slysagildra. Gættu þess einnig að hafa jafnan loftþrýsting í öllum dekkjum. [ ] Almennar bílaviðgerðir Jafnvígur á allan akstur Volkswagen Touareg er einn þeirra bíla sem sameinar marga kosti. Sama er hvort ekið er innanbæjar, úti á þjóðvegi eða á fjöllum, alltaf stendur Touareginn sig vel og jafnvel gott betur. Volkswagen Touareg telst í flokki lúxusjeppa. Einkenni þeirra bíla er að vera liprir og þægilegir um leið og þeir eru kraftmiklir og yfirleitt allstórir. Touareginn hefur notið mikilla vinsælda eftir að hann kom fyrst á markað fyrir rúmum tveim- ur árum. Biðlistar hafa verið eftir bílnum, og eru enn í Evrópu, ekki síst eftir díselbílunum. Hér hafa þeir þó verið fáanlegir um hríð án biðar og fyrirsjáanlegt að svo veriði áfram. Og vinsældir bílsins eru ekki sprottnar af engu. Volkswagen Tou- areg er margbrotinn bíll. Þegar ekið er innanbæjar er hann þægilegur og lipur lúxusbíll, á vegum liggur hann eins og klettur og er framúr- skarandi ferðabíll og þegar komið er á grófari vegi reynist hann líka ágætur fjallabíll. Að innan er bíllinn vel búinn. Sætin eru einstaklega þægileg og takkar og mælar sem bílstjóri þarf að nota afar aðgengilegir. Þrátt fyr- ir tiltölulega margbrotið mælaborð með margskonar stjórnrofum tekur það nýjan bílstjóra ekki nema stutta stund að átta sig. Bíllinn er búinn lágu drifi, stillanlegum höggdeyf- um (sport, comfort og auto) og stór- skemmtilegri hækkanlegri loft- púðafjöðrun (aukabúnaður í þessum bíl) sem óneitanlega bæði bætir akstursgæði hans og gerir hann um leið að skemmtilegu leikfangi þess sem hefur gaman af því að aka bíl. Í hæstu stöðu fer veghæðin frá 237 mm upp í 300. Þegar tveir sitja í aftursæti má fella niður breiðan armpúða sem gerir að verkum, ásamt góðu plássi fyrir fætur, að bíllinn er lúxusfarar- tæki fyrir fjóra fullorðna. Það eina sem mætti finna að er að glasahald- ara vantar aftur í en frammi í eru þeir fyrir hendi og ágætir. Sömu- leiðis er nokkuð lágt undir loft í bílnum þannig að mjög hávaxið fólk gæti rekið sig uppundir. Öryggis- búnaður í Touaregnum er allur er eins og við er að búast í lúxusbíl, stöðugleikastýring, rafstýrð driflæsing og aflhemlar, svo eitt- hvað sé nefnt. Volkswagen Touareg er skemmtilegur valkostur fyrir þá sem hafa gaman af að aka bíl og vilja sameina margskonar akst- urseiginleika í einum bíl. Hækkun- arbúnaðurinn og stillanlegir högg- deyfar eru hér punkturinn yfir i-ið, ásamt því að bíllinn er sparneytinn miðað við það afl sem hann skilar. Hér gildir þó það sama og svo oft að verðið er ekki á allra færi. steinunn@frettabladid.is VOLKSWAGEN TOUAREG þriggja lítra 225 hestafla sex cylindra TDI dísilvél Meðaleyðsla 10,9 lítrar á hundraði Eyðsla í utanbæjarakstir 8,7 lítrar á hundraði sex þrepa sjálfskipting með hand- skiptivali Grunnverð: Kr. 5.950.000 AUKABÚNAÐUR Í BÍLNUM SEM REYNSLUEKIÐ VAR Leðuráklæði og rafstýrð sæti: 455.000 Loftpúðafjöðrun með stillanlegri veghæð: 335.000 Lykillaust aðgengi: 125.000 REYNSLUAKSTUR Söluhæsti bíll Evrópu er Renault Mega- ne með 4,5 prósent markaðshlutdeild eins og kemur fram á heimasíðu B&L, bl.is. Í öðru sæti er Ford Focus með fjögur prósent markaðshlutdeild og í því þriðja er Volkswagen Golf með 3,5 prósent. Renault Megane hefur verið geysilega vinsæll í Evrópu og var meðal annars útnefndur Bíll ársins árið 2003 í álfunni. Megane spannar verulega breidd og er bíllinn fáanlegur þriggja, fjögurra eða fimm dyra og sem Sport Tourer lang- bakur. Allar útgáfurnar eru gæddar ör- yggi og góðum aksturseiginleikum en línan hefur einmitt unnið fjölda verð- launa fyrir tæknilegar útfærslur og framúrskarandi hönnun. Volkswagen Touareg svipar um margt í útliti til annarra lúxusjeppa. Volkswagensvipurinn leynir sér þó ekki. Evrópa kann að meta Megane RENAULT MEGANE ER SÖLUHÆSTI BÍLL EVRÓPU EN FAST Á HÆLA HANS FYLGJA FORD FOCUS OG VOLKSWAGEN GOLF. 10 SÖLUHÆSTU BÍLAR EVRÓPU: Renault Megane 4,5% Ford Focus 4,0% Volkswagen Golf 3,5% Peugeot 206 3,2% Opel Astra 3,2% Citroen Xsara + C4 2,6% Peugeot 307 2,5% Ford Fiesta 2,3% Renault Clio 2,1% Opel Corsa 2.0% Renault Megane Sport er nýleg viðbót í línuna.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.