Fréttablaðið - 30.07.2005, Page 40
„Himininn heiður og blár, hafið var skínandi bjart...“ Svo ekki sé minnst á öll litbrigðin af grænu. Þessi einmana hjól benda til þess
að kannski hafi hjólreiðakapparnir ákveðið að fleygja sér í grænkuna smástund áður en þeir héldu ferð sinni áfram eitthvað út í
þennan stórkostlega blá.
SJÓNARHORN
30. júlí 2005 LAUGARDAGUR8
Vissir þú ...
... að Adriaan van der Donck var
fyrsti og eini lögfræðingurinn í
New York-borg árið 1653?
... að grænir demantar eru sjald-
gæfastir?
... að Sahara-eyðimörkin þenst út um
einn kílómetra í hverjum mánuði?
... að 1.040 eyjur eru í kringum
Bretland og ein af þeim er sú
minnsta í heiminum, Bishop’s
Rock?
... að þrettán þúsund jarðskjálftar
verða á hverju ári að meðaltali?
... að Dauðahafið er 365 metrum
fyrir neðan sjávarmál?
... að hestar sofa oft standandi?
... að gerviauga var eitt sinn grætt í
snák í dýragarðinum í London?
... að það var 1964 sem fyrstu tölv-
urnar komu til Íslands?
... að í bænum Tidikelt í Sahara
eyðimörkinni rigndi einu sinni ekki
í tíu ár?
... að orðið Síbería þýðir „sofandi
land“?
... að alls hafa tólf manns komið til
tunglsins?
... að einu sinni voru 3.110 gall-
steinar fjarlægðir úr gallblöðru
þýskrar konu?
... að Alice Walton er ríkasta kona
heims? Hún er dóttir Sam Waltons
sem stofnaði Wal-Mart verslunar-
keðjuna.
... að 70 prósent jarðarbúa, sama
hverrar trúar þeir eru, trúa á líf eftir
dauðann?
... að við það að kyssa einhvern í
eina mínútu brennir maður allt að
26 hitaeiningum?
OPIÐ ALLA
HELGINA
STÓRÚTSALA
HEFST 30. JÚLÍ
Yfirhafnir í úrvali
20 - 50% afsláttur
Vesti og peysur 2000 kr
Opnunartími:
Laugardag: 11-16
Sunnudag: 12-16
Mánudag: 10-18
Topphúsið - Mörkinni 6 - S: 588 5518
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »