Fréttablaðið - 30.09.2005, Side 8

Fréttablaðið - 30.09.2005, Side 8
30. september 2005 FÖSTUDAGUR Bæjarstjóri um flutning þjóðskrár: Vill fljó›skrána til Ísafjar›ar STJÓRNMÁL „Þetta smellpassar við stefnu ríkisstjórnarinnar,“ segir Halldór Halldórsson, bæjar- stjóri á Ísafirði. Halldór segir að þegar hann hafi lesið fréttir um fyrirhugað- an flutning á þjóðskránni frá Hagstofu til dómsmálaráðuneyt- is hafi hann strax haft samband við Þorstein Geirsson ráðuneyt- isstjóra til þess að minna á þá stefnu ríkisstjórnarinnar að flytja starfsemi til landsbyggð- arinnar svo sem kostur er. „Hann sagði mér að vinna við málið væri ekki hafin, en þetta yrði einn þeirra kosta sem hafð- ir yrðu til hliðsjónar í ferlinu,“ segir Halldór. Halldór segir að ríkinu hafi margoft verið bent á að það eigi stofnanir víðs vegar á landinu svo sem skattstofur og sýslu- mannsembætti þar sem fyrir sé hæft og gott starfsfólk og venju- lega sé húsnæðið einnig fyrir hendi. „Það þarf að skoða það al- varlega hvort ekki er hægt að fá þessa starfsemi flutta til Ísa- fjarðar,“ segir Halldór. - saj Íshella nor›urskauts í sögulegu lágmarki Íshellan á nor›urskautinu hefur aldrei mælst minni en í flessum mánu›i og er hl‡nandi loftslag tali› sk‡ringin. Óttast er a› vítahringur sé í uppsiglingu sem erfitt geti reynst a› komast út úr. LOFTSLAG Vísindamenn óttast að hlýnun loftslags á norðurslóðum sé orðin hraðari en við verði ráð- ið. Nýjar mælingar á íshellunni á norðurskautinu sýna að hún hefur aldrei verið minni en í þessum mánuði. Íshellan í Norður-Íshafi er jafnan minnst í septembermánuði eftir að sumarhlýindin hafa brætt ísinn en þegar veturinn færist yfir stækkar hún á ný. Mælingar frá 21. september síðastliðnum sem vísindamenn við US National Snow and Data Centre í Colorado, Bandaríkjunum gerðu, sýna að flatarmál íssins er 5,18 milljónir ferkílómetrar. Íshellan hefur aldrei mælst jafn lítil síðan mæl- ingar hófust en þetta er fjórða árið í röð sem stærð íshellunnar dregst saman. Á síðasta aldarfjórðungi hefur norðurskautsísinn bráðnað smátt og smátt og segja vísindamenn þá þróun beina afleiðingu af hlýnun jarðar. Það sem veldur þeim sérstökum áhyggjum er að umfang bráðnun- arinnar virðist aukast stöðugt. Bráðnunin nú er tuttugu prósent- um meiri en meðaltal síðustu 35 ára og lætur nærri að bráðnunin þetta sumarið nemi 1,2 milljón ferkílómetrum, það er svæði á stærð við Texas. Skýringin á því að ísinn bráðn- ar með sífellt meiri hraða er ein- föld. Skjannahvíta íshelluna má í raun í líta á sem risastórt endur- skinsmerki sem endurvarpar sól- arhitanum aftur út í geiminn. Dökkur sjórinn drekkur hins veg- ar sólargeislana í sig svo hann hlýnar og andrúmsloftið þar með. Eftir því sem ísinn dregst meira saman eykst yfirborð sjávar og þar með hækkar hitinn hraðar. „Keðjuverkun í umhverfinu er þegar far- in að eiga sér stað. Ef til vill verða breytingarnar á íshellunni mun örari en okkur grunar og það skiptir máli því án Norðurskauts- íssins má búast við miklum breyt- ingum á veðurfari jarðarinnar,“ segir Ted Scambos, formælandi rannsóknarinnar. Lofthiti yfir Norður-Íshafinu hefur verið 2-3 gráðum hærri í sumar en meðaltalshiti áranna 1955-2004 og hafa siglingaleiðir norður fyrir Ameríku og Asíu að mestu leyti verið greiðfærar. Sú staðreynd er sjófarendum eflaust fagnaðarefni en ekki er víst að dýrin séu jafn ánægð með þróun- ina. Til dæmis missa ísbirnir á þessum slóðum mikilvægan hluta heimkynna sinna því á veturna hafast þeir við á ísnum. sveinng@frettabladid.is HALLDÓR HALLDÓRSSON BÆJAR- STJÓRI Halldór hefur hug á því að fá þjóðskrána til Ísafjarðar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N K AR LS SO N FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P NORÐURSKAUTSÍSINN Þessi gervihnatta- mynd sem NASA birti í vikunni sýnir íshelluna í Norður-Íshafi. Ísinn sem hefur bráðnað í sumar er á stærð við Texas. TYRKLAND, AP Abdullah Gul, utan- ríkisráðherra Tyrklands, sagði í gær að samninganefnd Tyrklands í fyrirhuguðum aðildarviðræðum við Evrópusambandið yrði ekki send til að hefja viðræðurnar nema henni bærist fyrst skjalið sem geymir samningsumboð ESB. „Enginn getur ætlast til þess af okkur að fara til Lúxemborgar áður en við fáum að sjá samn- ingsumboðið,“ sagði Gul, en hann á að verða formaður samninga- nefndar Tyrkja. „Auðvitað er hugsanlegt að viðræðurnar hefj- ist ekki,“ sagði Gul en bætti við að „allt yrði reynt“ til að jafna ágreining svo að unnt verði að standa við áformin um að hefja viðræðurnar á mánudag. Utanríkisráðherrar ESB munu á sunnudag halda bráðafund um málið eftir að fastafulltrúum ESB-ríkjanna 25 mistókst að ná samkomulagi um samningsum- boðið í gær, en í því skal kveðið á um samningsgrundvöll ESB í hverjum málaflokki fyrir sig. Fulltrúar Austurríkis hafa staðið í vegi fyrir að skjalið sé af- greitt, en þeir vilja að Tyrkjum séu boðin náin tengsl við sam- bandið en ekki full aðild. -aa Aðildarviðræður í uppnámi: Tyrkir bí›a samningsumbo›s ABDULLAH GUL Utanríkisráðherra Tyrk- lands. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.