Fréttablaðið - 30.09.2005, Blaðsíða 36
2 ■■■ { hús & heimili } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Fosshálsi 1
110 Reykjavík simi 525-0800
www.baðheimar.is
Victory böð
með eða án nudds í úrvali
sígild eldhúsáhöld }
Þau hafa komið sér vel fyrir í ný-
byggðu raðhúsi í Vatnsendahverf-
inu Ágústa Þóra og Aðalsteinn
ásamt börnunum Margréti Sól og
Viktori Helga svo og hundinum
Breka. Stílhreint eldhúsið er það
fyrsta sem mætir augum þegar
komð er upp á aðra hæð og er þar
hluti af stóru opnu rými. Lítið sést
af heimilistækjum á borðum enda
fá þau að hvíla sig inni í skáp þegar
þau eru ekki í notkun.
Það var Tak á Akureyri sem smíð-
aði innréttinguna en Ágústa kveðst
hafa haft fastmótaðar hugmyndir
um hvernig hún ætti að vera. „Ég
pældi rosalega mikið í því hvað ég
vildi, bæði hvað varðar útlit og
nýtingu,“ segir Ágústa og heldur
áfram. „Við útbjuggum eldhús
þegar við dvöldum í Noregi svo þar
fékk ég smá reynslu, svo fluttum
við til Belgíu og þar gaf ég mér
góðan tíma til að skoða eldhúsinn-
réttingar áður en ég flutti heim.
Langaði í háan skápavegg með
engum höldum og hafði áhyggjur
af að ég gæti ekki fengið neinn til
að smíða svoleiðis. Annað kom á
daginn því þetta var einmitt hátísk-
an hér heima. Fyrst vorum við að
hugsa um að hafa skápinn úr eik en
hættum við og völdum að sprautu-
lakka hann með háglans.“
Í stíl við skápinn eru snjóhvít borð-
in. Þau eru úr gerviefni sem nefnist
corian og er mjög hart og þolið að
sögn húsráðenda. Eldavélareyjan er
með hnotuklæddum skúffum og
skápum og líka skápurinn við
vaskinn þar sem er uppþvottavélin
er hálf innbyggð. „Ég hefði viljað
hafa uppþvottavélina hærri en því
varð ekki við komið. Hins vegar er
ofninn í góðri hæð,“ segir Ágústa.
Eldavélin er bæði fyrir rafmagn og
gas. Þau hjón ljúka miklu lofsorði á
það fyrirkomulag. Gaskútarnir eru
niðri í geymslu svo engin hætta
stafar af þeim í íbúðinni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Eldhúsið hjá Ágústu Þóru Jónsdóttur og Aðalsteini Leifssyni er ekki bara flott. Það er
líka búið sérstökum þægindum sem henta fjölskyldunni enda hannaði Ágústa það sjálf.
Teiknaði eldhúsið eftir eigin höfði
Ágústa vissi hvað hún vildi og teiknaði eldhúsið upp en Tak á Akureyri smíðaði innréttinguna og sendi hana samsetta suður. Borðið
kemur í beinu framhaldi af eldavélareyjunni og platan er algerlega heil. Hún er úr corian sem fyrirtækið Orgus flytur inn. Hvíti veggurinn
fyrir endanum er haldalaus skápaveggur utan um kæliskápinn og ofninn. Þar á eftir að loka rifum meðfram veggjunum.
Eldavélin er af gerðinni AEG
og þótt hún sé bæði fyrir
gas og rafmagn þá rennur
hún saman í eitt enda heitir
hún Púsl. Þetta eru gashell-
urnar, hinar eru úr keramiki.
Neðri skáparnir eru úr hnotu, bæði í eyjunni og vaskborðinu.
Vaskurinn og borðið
umhverfis hann er úr
corian, allt úr einni
plötu. Kraninn er mjúk-
ur og dæla fyrir sápuna
eykur á þrifnaðinn.
Flautandi fugl
HÖNNUN MICHAEL GRAVES.
Ketillinn „Whistling Bird“ var hannaður af arkitektinum Michael
Graves fyrir Alessi árið 1985. Ketillinn var fyrsta varan í vörulínu
Alessi sem hönnuð var af Bandaríkjamanni og er jafnframt
söluhæsta vara Alessi frá upphafi. Hugmyndin er byggð á
hefðbundnum flautukatli, en það sem gerir hann sér-
stakan er lítill fugl við stútinn sem flautar. Til eru
nokkrar gerðir af katlinum en sú upprunalega,
með bláu handfangi og rauðbrúnum
fugli, er sú vinsælasta. Í takt við nýja
tíma hefur hann verið framleiddur sem
hraðsuðuketill með rafmagnssnúru. Í til-
efni af 20 ára afmæli ketilsins hefur Alessi
framleitt sérstaka afmælisútgáfu, en þá er
fuglinn úr hvítu plexigleri og sjálfur ketillinn er
sérmerktur. Sú útgáfa er framleidd í takmörkuðu
upplagi.
Whistling Bird fæst í Casa og kostar 8.900 kr.
Whistling Bird var hannaður árið 1985 og halda framleið-
endurnir upp á árin 20 um þessar mundir.