Fréttablaðið - 30.09.2005, Síða 36

Fréttablaðið - 30.09.2005, Síða 36
2 ■■■ { hús & heimili } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Fosshálsi 1 110 Reykjavík simi 525-0800 www.baðheimar.is Victory böð með eða án nudds í úrvali sígild eldhúsáhöld } Þau hafa komið sér vel fyrir í ný- byggðu raðhúsi í Vatnsendahverf- inu Ágústa Þóra og Aðalsteinn ásamt börnunum Margréti Sól og Viktori Helga svo og hundinum Breka. Stílhreint eldhúsið er það fyrsta sem mætir augum þegar komð er upp á aðra hæð og er þar hluti af stóru opnu rými. Lítið sést af heimilistækjum á borðum enda fá þau að hvíla sig inni í skáp þegar þau eru ekki í notkun. Það var Tak á Akureyri sem smíð- aði innréttinguna en Ágústa kveðst hafa haft fastmótaðar hugmyndir um hvernig hún ætti að vera. „Ég pældi rosalega mikið í því hvað ég vildi, bæði hvað varðar útlit og nýtingu,“ segir Ágústa og heldur áfram. „Við útbjuggum eldhús þegar við dvöldum í Noregi svo þar fékk ég smá reynslu, svo fluttum við til Belgíu og þar gaf ég mér góðan tíma til að skoða eldhúsinn- réttingar áður en ég flutti heim. Langaði í háan skápavegg með engum höldum og hafði áhyggjur af að ég gæti ekki fengið neinn til að smíða svoleiðis. Annað kom á daginn því þetta var einmitt hátísk- an hér heima. Fyrst vorum við að hugsa um að hafa skápinn úr eik en hættum við og völdum að sprautu- lakka hann með háglans.“ Í stíl við skápinn eru snjóhvít borð- in. Þau eru úr gerviefni sem nefnist corian og er mjög hart og þolið að sögn húsráðenda. Eldavélareyjan er með hnotuklæddum skúffum og skápum og líka skápurinn við vaskinn þar sem er uppþvottavélin er hálf innbyggð. „Ég hefði viljað hafa uppþvottavélina hærri en því varð ekki við komið. Hins vegar er ofninn í góðri hæð,“ segir Ágústa. Eldavélin er bæði fyrir rafmagn og gas. Þau hjón ljúka miklu lofsorði á það fyrirkomulag. Gaskútarnir eru niðri í geymslu svo engin hætta stafar af þeim í íbúðinni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Eldhúsið hjá Ágústu Þóru Jónsdóttur og Aðalsteini Leifssyni er ekki bara flott. Það er líka búið sérstökum þægindum sem henta fjölskyldunni enda hannaði Ágústa það sjálf. Teiknaði eldhúsið eftir eigin höfði Ágústa vissi hvað hún vildi og teiknaði eldhúsið upp en Tak á Akureyri smíðaði innréttinguna og sendi hana samsetta suður. Borðið kemur í beinu framhaldi af eldavélareyjunni og platan er algerlega heil. Hún er úr corian sem fyrirtækið Orgus flytur inn. Hvíti veggurinn fyrir endanum er haldalaus skápaveggur utan um kæliskápinn og ofninn. Þar á eftir að loka rifum meðfram veggjunum. Eldavélin er af gerðinni AEG og þótt hún sé bæði fyrir gas og rafmagn þá rennur hún saman í eitt enda heitir hún Púsl. Þetta eru gashell- urnar, hinar eru úr keramiki. Neðri skáparnir eru úr hnotu, bæði í eyjunni og vaskborðinu. Vaskurinn og borðið umhverfis hann er úr corian, allt úr einni plötu. Kraninn er mjúk- ur og dæla fyrir sápuna eykur á þrifnaðinn. Flautandi fugl HÖNNUN MICHAEL GRAVES. Ketillinn „Whistling Bird“ var hannaður af arkitektinum Michael Graves fyrir Alessi árið 1985. Ketillinn var fyrsta varan í vörulínu Alessi sem hönnuð var af Bandaríkjamanni og er jafnframt söluhæsta vara Alessi frá upphafi. Hugmyndin er byggð á hefðbundnum flautukatli, en það sem gerir hann sér- stakan er lítill fugl við stútinn sem flautar. Til eru nokkrar gerðir af katlinum en sú upprunalega, með bláu handfangi og rauðbrúnum fugli, er sú vinsælasta. Í takt við nýja tíma hefur hann verið framleiddur sem hraðsuðuketill með rafmagnssnúru. Í til- efni af 20 ára afmæli ketilsins hefur Alessi framleitt sérstaka afmælisútgáfu, en þá er fuglinn úr hvítu plexigleri og sjálfur ketillinn er sérmerktur. Sú útgáfa er framleidd í takmörkuðu upplagi. Whistling Bird fæst í Casa og kostar 8.900 kr. Whistling Bird var hannaður árið 1985 og halda framleið- endurnir upp á árin 20 um þessar mundir.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.