Fréttablaðið - 30.09.2005, Page 13

Fréttablaðið - 30.09.2005, Page 13
FÖSTUDAGUR 30. september 2005 13 Áskorun listmálara: Enginn salur fyrir myndlist LISTIR Hópur myndlistarmanna sendi í gær frá sér áskorun til borgarstjórnar Reykjavíkur um að opna vestursal Kjarvalsstaða á ný fyrir umsóknum listamanna, en þeir segja stöðu sína mjög slæma síðan lokað var fyrir um- sóknir þeirra að staðnum. Alls skrifaði 41 myndlistar- maður undir áskorunina. Þeir segja í henni að það sé íslenskri myndlist nauðsynlegt að hafa að- gang að góðum sýningarsal eigi hún að vaxa og dafna. -grs Seldu ósamþykkta íbúð: Fasteignasala grei›i bætur DÓMSMÁL Fasteignasali hefur ver- ið dæmdur til að greiða konu 1,3 milljónir króna vegna þess að ris- íbúð sem hún keypti í Reykjavík veturinn 2001 reyndist ósam- þykkt þegar eignaskiptasamning- ur var gerður eftir kaupin. Íbúðin var nýuppgerð og komust dómkvaddir matsmenn að því að verðmæti hennar hefði lækkað um ofangreinda upphæð, en kostað gæti 1,2 til rúmlega 1,8 milljónir króna að fá hana sam- þykkta. Maðurinn sem seldi kvaðst grandalaus um að íbúðin væri ósamþykkt og var sýknaður af bótakröfu en fasteignasölunni gert að greiða bætur og 420.000 krónur í málskostnað. - óká Héraðsdómur: Spörku›u í höfu› manns DÓMSMÁL Aðalmeðferð í máli tveggja tæplega tvítugra manna fór fram í Héraðsdómi Norður- lands eystra fyrr í vikunni. Mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa veist að öðrum manni fyrir utan veitingahús á Norðurlandi eystra í janúar fyrir tæpum tveimur árum, og slegið og spark- að í höfuð hans. Þolandinn krefst tæpra 100.000 króna í bætur. Dómurinn verður kveðinn upp í næsta mánuði, og má búast við að hann verði vægari vegna þess hve langur tími hefur liðið síðan rann- sókn lauk. ■ KJARVALSSTAÐIR Hópur listamanna vill að vestursalurinn verði opnaður á ný. Árshátíð haldin í Höfn: Bakvakt hjá dómstólum DÓMSMÁL Lágmarksstarfsemi er hjá dómstólum landsins vegna árshátíðar Dómstólaráðs sem haldin er í Kaupmannahöfn núna um helgina. Bakvakt mun þó vera hjá hér- aðsdómstólunum öllum og ein- hver starfsemi, enda áttu ekki all- ir heimangengt á fagnaðinn. Því geta dómstólarnir nú sem endranær brugðist við möguleg- um gæsluvarðshaldsbeiðnum og öðrum málum sem ekki þola bið. Starfsmenn héraðsdómstól- anna sem komust á árshátíðina héldu af landi brott í gær, en verða að sögn mættir aftur til starfa sinna á mánudaginn. - óká Barnahús opnað í Svíþjóð í dag: Starfsemi a› íslenskri fyrirmynd BARNAVERND Barnahús að ís- lenskri fyrirmynd verður opnað í Linköping í Svíþjóð í dag og markar opnunin nokkur þáttaskil í réttarstöðu barna í Svíþjóð. Húsið verður opnað með form- legri athöfn að viðstaddri Silvíu Svíadrottningu. Bragi Guð- brandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu, og Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Stokkhólmi, verða viðstaddir at- höfnina. Bragi heldur ræðu við þetta tækifæri og mun svo taka þátt í blaðamannafundi. Íslenska Barnahúsið hefur vakið mikla athygli erlendis, ekki síst á hinum Norðurlöndun- um. Í Linköping hefur verið starfrækt miðstöð í rannsóknum og meðferð kynferðisbrota á börnum. Það er að hluta til fyrir frumkvæði Silvíu drottningar að Barnahúsið er nú orðið að veru- leika. Íslenska Barnahúsið sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðis- legri áreitni eða ofbeldi. Börn og forráðamenn þeirra geta með til- vísun barnaverndarnefnda feng- ið alla þjónustu í Barnahúsi sér að kostnaðarlausu. Greint er frá þessu í tilkynningu frá Barna- verndarstofu. - saj BRAGI GUÐBRANDSSON Bragi er forstöðumaður Barnaverndarstofu. Hann heldur erindi í Linköping í dag. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.